Réttur


Réttur - 01.01.1981, Qupperneq 12

Réttur - 01.01.1981, Qupperneq 12
Bandaríkin vígbúast af kappi — og gegn kjarnorkusprengjum er engin vörn. T ortímingarhættan — og hvað er hægt að gera? Hvernig getum við íslendingar reynt að forðast þá hættu að okkur verði tor- tímt í ,,litla kjarnorkustríðinu”, sem Bandaríkjamenn nú stefna að? Við gætum sagt upp ,,herverndar- samningnum”, sem ríkisstjórn íslands að líkindum var kúguð til að gera 1951 með hótunum um hernám ella. — Bandaríkjastjórn myndi að öllum líkind- um reyna að hindra slíkt: t.d. með hót- unum við meirihluta Alþingis um að hún færi hvergi með her sinn, en væri reiðu- búin til að gera nýjan samning um langa leigu á Vellinum gegn gífurlegri dollara- borgun. (Hvað sagði ekki Luns, fram- kvæmdastjóri Nato 1975, að ísland væri 22000 miljóna dollara virði — sem ósökkvandi „flugvélamóðurskip” og skotpallur.) Og þegar búið er að svæfa þjóðina eins andlega og 55000 undir- skriftirnar sýndu, þá þarf ekki neitt ógn- arfé í Nato-flokkana og þeirra „Samein- uðu verktaka” til að svæfa það lítið, sem eftir er af samvisku og viti. Þótt þetta líti ekki vel út, þá er það samt hugsanlegur möguleiki, að þeim, er sæju hættuna tækist að ná meirihluta á Alþingi og segja kúgunarsamningnum upp. — Myndi Bandaríkjaher fara? — Ef þetta gerðist á næstu árum, þá er hugsanlegt hann færi, því hann hefur í „samningnum” frá 1951 áskilið sér rétt til endurkomu, ef „hættuástand” er að hans áliti. Og enn reiknar Bandaríkjastjórnin með minst 3-6 árum áður en hún gæti knúið og vígbúið Vestur-Evrópuþjóðirn- ar til árása á Sovétríkin með ,,meðal- drægum” kjarnorkueldflaugum. (Cruise missiles og Pershing II) En hvað ef íslendingar væru svo ákveðnir i að reyna að bjarga þjóðinni frá tortímingu að Alþingi segði upp öll- um aukaskilyrðum „samningsins” frá 1951 og færu úr Nato? Til að byrja með myndu Bandaríkja- stjórn bíða og sjá hvað hún gæti látið erindreka sína hér gera, til þess að breyta slíkum ákvörðunum Alþingis. (Hún átti góða að, er Alþingi ákvað uppsögn her- námssamningsins 28. mars 1956.) En segjum að ekkert slíkt tækist og Bandaríkjastjórn væri ákveðin í að láta hefja ,,litla kjarnorkustríðið” í Evrópu. — Þá myndi hún umsvifalaust taka Keflavíkurflugvöll herskildi (eins og 7. maí 1951). Því flugvellirnir væru hér og héldu sínu gildi. Þar með væri alt löglega starfið unnið fyrir gíg. Ég kastaði því eitt sinn fram í ræðu á Alþingi forðum daga, er rætt var í alvöru um hvernig helst væri hægt að forða þjóðinni frá tortímingu i kjarnorku- stríði, — að ríkisstjórn íslands léti setja sérstakan sprengjuútbúnað undir alla þá flugvelli, er hugsanlegt væri að erlendar herflugvélar gætu sest á, — og tilkyntu öllum hlutaðeigandi þjóðum, að ef stríð væri í þann veginn að brjótast út, þá myndu íslendingar sprengja upp alla flugvelli, svo flugvélar gætu hvergi lent. 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.