Réttur - 01.01.1981, Síða 33
13. Farandverkamenn
Þá gaf ríkisstjórnin fyrirheit um
að beita sér fyrir setningu laga og
reglugerðar um málefni farandverka-
manna. Nú hefur verið lagt fram á
alþingi frumvarp til laga um atvinnu-
rétt útlendinga. í því frumvarpi eru
ákvæði sem tryggja eiga
útlendingum sama rétt og innlendum
mönnum til launa og starfskjara.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir víð-
tækri upplýsingadreifingu erlendis
um starfskjör á íslandi og þar er
einnig gert að lagaskyldu að gera
skriflegan ráðningarsamning fyrir-
fram við hvern þann útlending sem
hyggst ráðast til starfa á íslandi, þar
sem greind eru öll starfsskilyrði og
kjör á íslandi og samið um ýmsa
þætti fyrirfram, eins og húsnæðis-
mál og fleira.
Þá er á vegum nefndarinnar sem
félagsmálaráðherra skipaði af þessu
tilefni unnið að gerð reglugerðar um
aðbúnað farandverkafólks á íslandi.
14. Önnur mál
Auk þess sem að framan er talið
hét ríkisstjórnin því við gerð kjara-
samninganna 27. október s.l. að
beita sér fyrir endurbótum í lífeyris-
málum, dagvistarmálum, málefnum
orlofsheimila verkalýðsfélaganna,
vaxtakjörum orlofsfjár, málefnum
sjómanna hvað varðar sjómanna-
stofur, frídaga yfir jól og lögskrán-
ingarmál.
Þegar þetta er skrifað er verið að
vinna í öllum þessum málaflokkum
og er árangurs að vænta fljótlega.
Hvað sjómenn snertir sérstaklega
hefur ríkisstjórnin í athugun ýmsar
endurbætur svo sem neyðarsenda um
borð í gúmbátum, hert eftirlit með
öryggisbúnaði um borð í fiskiskip-
um, bætta veðurþjónustu og storm-
aðvaranir, ýmsar lagfæringar á líf-
eyrissjóðsrétti sómanna m.a. með
lækkun lífeyrisaldurs og bættar út-
sendingar sjónvarps og útvarps.
15. Öryggismál, húsnæðislöggjöf o.fl.
Síðast en ekki síst skal minnt á lög
um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum, lög um eftir-
laun aldraðra, lög um Húsnæðis-
stofnun ríkisins og ýmis fleiri lög sem
ríkisstjórnin beitti sér fyrir að sett
voru á alþingi.
í lögunum um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum, sem
koma í stað laga um öryggisráðstaf-
anir á vinnustöðum, er stigið mjög
merkilegt skref í aðbúnaðar- og
öryggismálum launafólks. Á það
hefur þótt skorta talsvert að þau mál
væru í sæmilegu horfi hér á landi
borið saman við nágrannalöndin.
Með hinum nýju lögum er skapaður
grundvöilur til stórsóknar á þessu
sviði. Með lögunum er leitast við að
tryggja öruggt og heilsusamlegt
starfsumhverfi, sem jafnan sé í sam-
ræmi við félagslega og tæknilega
þróun í þjóðfélaginu. Þá er með lög-
33