Réttur


Réttur - 01.01.1981, Síða 56

Réttur - 01.01.1981, Síða 56
Það er lífsnauðsyn hverri þjóð og ekki síst oss íslendingum að horfast af fullu raun- sæi í augu við það, sem nú hefur gerst í Bandaríkjunum: valdataka Reagans og harð- vítugustu hernaðar- og árásaraflanna. Berum þá stefnu, sem nú á að herða á, saman við það, sem bestu menn Bandaríkj- anna hefðu gert, væru þeir nú lifandi og ráðandi. Þegar að lokum heimsstyrjaldarinnar síðari dró spurði Churchill Roosevelt hve lengi Bandaríkin myndu hafa herlið í Evrópu að stríði loknu. Roosevelt svaraði: ,,í hæsta lagi tvö ár”. Það er ljóst að ef menn eins og Roose- velt og Henry Stimson, hermálaráðherra hans, hefðu lifað lengur og stefna þeirra fengið að ráða, þótt framkvæmd væri af öðrum mönnum, þá liti heimurinn ekki eins út og nú: á heljarþröm vegna ágangs bandaríska auðvaldsins. En bestu stjórn- málamönnum, sem unnu í Roosevelts anda var eftir dauða hans alstaðar vikið frá, enda áleit auðvaldið ameríska hann í rauninni kommúnista.1 Hvað hefur gerst? Árið 1933 höfðu Bandaríkin aðeins herlið í þrem erlendum löndum. Árið 1949, er Nato var stofnað, höfðu þau herlið í 39 löndum. Nú hafa þau herlið í 110 löndum. Bandaríkin hafa erlendis 2500 her- stöðvar, birgðageymslur og flugvelli. Þar hafa 500 þúsund hermenn aðsetur sitt og þar eru 12000 kjarnorkusprengjur. Eftir dauða Roosevelts krafðist Banda- ríkjastjórn 1. október 1945 þriggja her- stöðva á íslandi til 99 ára sem amerískra svæða: Keflavíkurflugvöll fyrir flugher sinn, Skerjafjörð fyrir sjóflugvélar og Hvalfjörð fyrir volduga flotastöð. — ís- lendingar neituðu sem frjáls þjóð. — Bandaríkin sátu samt kyrr á Keflavíkur- velli. Sovétríkin kölluðu í sama mund (1945- 6) her sinn heim, er frelsað hafði Norður- Noreg og Borgundarhólm undan drottn- un nasista. Nú er bandaríska hervaldið að knýja fram kjarnorku-hervæðingu í Vestur- Evrópu, gera Þrándheim að voldugri hergagna-birgðastöð í því árásarstríði, sem það undirbýr — og hyggst gera Keflavíkurvöll að höfuð-áfangastöð í vopnaflutningum öllum til Þrándheims. Og Reagan hótar þeim, sem rísa gegn fyrirætlunum herdrottnanna öllu illu og segist sérstaklega munu styðja með her- valdi hvern þann harðstjóra, sem alþýða manna reyni að steypa. Er hann þegar byrjaður að senda miljónir dollara, vopn og hermenn til harðstjórans í San Sal- vador. — Og þetta er piaður sem stjórn- ar því ríki, sem kúguð alþýða skóp fyrir tveim öldum með því að rísa upp gegn kúgurum sínum, háði sitt frelsisstríð í sjö ár og reit í stjórnarskrá sína réttinn til að rísa upp gegn harðstjórn og steypa henni. Þegar horft er á þessa vítis-stefnu drottnandi í ríkasta og hervæddasta ríki heims, er hollt að hugsa til þeirra orða, 56

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.