Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 1
léttvr
59. árgangur
1 976—2. hefti
Það brakar i morkinni mannfélagshöll auðvaldsheimsins. Bandaríkin, for-
osturíkið, hafa glatað miklu af trausti sínu og áliti, þegar tvær höfuðstoðir
þeirra urðu fyrir óbætanlegu áfalli:Leyniþjónustan CIA afhjúpuð af Banda-
ríkjaþingi sjálfu sem hryðjuverkasveit, — og Bandarikjaher hefur orðið að
gefast upp og flýja eftir að hafa framið einhverja hryllilegustu stríðsglæpi
sögunnar í Víetnam.
Afríka — heil heimsálfa — er að bresta úr greipum auðdrottnanna. Hvert
rikið þar á fætur öðru heldur nú inn á einhverskonar leið alþýðuvalda í átt
til sósíalisma: Mósambik, Tansanía, Somalía, Etíopía, og nú síðast Angola
bætast við þau sem fyrir voru. — Og sjálf höfuðvígi harðstjórnarinnar:
Rhodesía og Suður-Afríka riða svo til falls að sjálfir auðhringarnir búa sig
til að bregðast hvítu yfirstéttinni og reyna makk við blökkumenn til að bjarga
auði sínum.
I Vestur-Evrópu kraumar svo að Kissinger er orðinn hræddur um sigur
marxismans þar innan áratugs! Frakkland, Portúgal, Spánn — og Ítalía nú
þegar á næstunni — standa frammi fyrir umskiptunum miklu. Bandaríska
auðvaldið þorir nú vart að setja von sína á valdarán herforingja á Italíu að
grískri eða chilenskri fyrirmynd — og grípur nú til bannfæringar frá páfa-
stóli að miðaldasið: allt er hey í harðindum, líka fyrir Mammon.
Um ýmsa þætti þessara miklu umbreytinga er fjallað í þessu hefti.
★
Hér heima rísa nú fjöldahreyfingar hærra en fyrr með kyngi af nýjum toga:
Eftir stórsókn vinnandi kvenna á nýliðnu ári, hasla vígreif verklýðssamtök
sér völl í stjórnmálabaráttunni, afdráttarlaust og stórhuga — og hreyfingin