Réttur - 01.04.1976, Side 10
þá traustu og rishán einingu alþýðu, sem
er frumskilyrði sigurs hennar og valda, og
undirbyggja það bandalag, er tryggir til fram-
btíðar stórhuga forustu alþýðu í stjómmála-
lífi Islands, svo afstýrt verði hruni efnahags-
legs sjálfstceðis og örugg og batnandi lífsaf-
koma almennings tryggð.
SKÝRINGAR:
Sjá nánar um alla baráttuna fyrir áætlunarbúskap
í greininni ,,Átök um áætlunarbúskap á Islandi"
í Rétti 1971 bls. 209—214. — Það er eftirtektar-
vert að strax í skýrslu „Rauðku" 1935 var litið
á það, sem höfuðatriðið í þjóðarbúskap Islend-
inga að „flytja fjármagnið frá versluninni yfir i
framleiðsluna" — og enn er það eitt aðalvið-
fangsefnið en hinsvegar ekki sama hvernig það
er gert.
2) I ræðu sinni á ársfundi Seðlaþankans 6. maí
1976 sagði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
m.a.: ,,Ég er hinsvegar vantrúaður á, að það
takist að tryggja verulegan hagvöxt hér á landi
næstu árin, nema stefnunni í fjárfestingar- og
atvinnumálum verði breytt og því takmarkaða
fjármagni, sem til ráðstöfunar er, beint í aukn-
um mæli til þeirra greina, sem best skilyrði hafa
til arðbærrar framleiðsluaukningar og útflutn-
ings." Bendir hann svo m.a. á að af atvinnu-
vegaútlánum fjárfestingarsjóða hafi „aðeins 15%
farið til almenns iðnaðar, sem þó hefur verið
einn helsti vaxtarbroddur þjóðarbúskaparins
undanfarin ár."
'1) 2 * 4 Orðalag þetta er Katrinar Thoroddsen.
4) Svo menn geri sér ofurlítið Ijóst hvað 4000 milj-
arðar króna eru skal þess getið að samkvæmt
tölum Seðlabankans er þjóðarauður Islendinga
metinn á 466 miljarða 1974 á verðlagi þess árs,
þar af öll íbúðarhús á 146 miljarða kr. Þjóðar-
framleiðslan '74 var samkvæmt sömu heimildum
135 miljarðar (bráðabirgðatölur), allur útflutning-
ur 48 miljarðar, en innflutningur 63 miljarðar kr.
Grein þessi er skrifuð áður en „Dagblaðið" gerir
þá kröfu i „leiðara” 3. júní að farið sé að taka
leigu fyrir Keflavikurflugvöll og vill leigja hann til
10 ára til að byrja með!
74