Réttur


Réttur - 01.04.1976, Síða 14

Réttur - 01.04.1976, Síða 14
þungum ekka. Það er eins og hún viti ekki um ösina, sem fram hjá streymir, en mörgu auga er rennt til hennar og í svip margra má lesa samkennd og hlýju. Engian talar til hennar. Fátt gengur meir til hjarta en grát- stunur þeirra, sem. enginn á orð til að hugga. Menn eru á heimleið frá kirkjunni. Þeir fara eftir þjóðveginum í hópum, stórum og smáum, ríðandi og gangandi. Þeir, sem eiga góðhesta, fara greitt. Mold og sandur þyrlast upp úr veginum og hylur þá, sem næstir eru, í þéttum mekki. Þegar fremsti hópurinn er kominn nokkuð áleiðis, verður einum mann- inum litið á vasaklút, sem liggur við götu- jaðarinn. Hann fer af baki og tekur upp klút- inn, sem er svo velktur og óásjálegur, að hann gerir sig líklegan til að fleygja honum aftur, en hættir við það og læmr hann í tösku við hnakkinn sinn. Og ferðinni er held- ið áfram. Skömmu síðar sér samferðafólkið konu koma á móti sér. Hún fer svo hratt, sem fæturnir geta borið hana og másið heyrist langar leiðir. Þarna er Sveitar-Gunna komin. Fólkið stöðvar ferðina og horfir undrandi á hana. Hvernig í ósköpunum vék þessu við, að hún mætti fólkinu, sem var að koma frá kirkjunni og það á þessum litlu hlaupum, eins og lífið lægi við. Sjaltuskan hennar flaks- ast út í loftið eins og hún væri orðin að vængjum og pilsgarmurinn slettist utan um öklana á henni. Stundum sveiflast það upp undir hné og snýst svo fast að leggjunum, að hún verður að hika um svipstund, til þess að geta hert á hlaupunum á ný. Hún stað- næmist hjá fólkinu, en kemur engu orði upp fyrir mæði. „Þið hafið ekki fundið vasaklút?" segir hún loksins með öndina i hálsinum. Það var þá ekki annað en þetta. Fyrir óhreina klút- dulu hafði h.ún hlaupið eins og hún væri að vinna fyrir lárviðarsveig. Maðurinn rétti henni klútinn. „Þetta fund- um við", segir hann. Þá bregður gleðibjarma á andlit hennar og tárin koma fram í grát- þrútin augun, en það eru gleðitár. „Guði sé lof!" segir hún eins og létt sé af henni þungri byrði. „Fg átti ekki þennan klút. Eg fékk hann að láni í morgun og mér hefði þótt sárt, að.geta ekki skilað honum aftur. Þið hafið gert mér greiða. Eg hefði far- ið alla leið til baka að leita að honum. Eg þakka ykkur kærlega fyrir." Hún segir þetta s\o barnslega og einlæglega, að engum dett- ur í hug að brosa. Það er eins og öll hennar velferð sé undir því komin, að geta skilað klútnum. Svo varpar hún kveðjuorðum á fólkið og snýr við á harða spretti. Hestarnir brokka eftir veginum. Gunna er jafnhliða þeim um stund. Hún er afmr orðin lafmóð og eldrauð og sveitt í andliti. „Þarfm að flýta þér svona mikið?" segir einhver í hópnum. „Já, já, heim til að smala ánum", segir hún með andköfum. Hestarnir herða brokkið eins og þeir séu að reyna sig við hana. Smátt og smátt dregst hún aftur úr. Nýir hópar koma og þeysa framhjá henni. Hún fjarlægist meir og meir. Nú er hún orðin eins og einhver ólöguleg þústa. Sjalið er afmr orðið að vængjum. Handleggirnir sveiflast afmr og fram til að létta undir gönguna. Hægri höndin er kreppt utan um klútinn, sem hún hafði orðið að fá að láni og átti engin ráð til að borga, þrátt fyrir ævilangan þrældóm, klútinn, sem hafði drukkið í sig tárin hennar þegar hún grét einstæðingsskap sinn og auðnuleysi. Hóparnir fara fram hjá henni einn eftir annan. Nú er hún horfin í sandmekki undan fótum gæðinganna. - ...... 78

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.