Réttur - 01.04.1976, Síða 16
Pritt-húsið við Park Avenue („Spiegel").
stærsta banka Bandaríkjanna, hefur síðan
1970 verið forseti ráðsins. Forstjórar stærstu
auðhringanna, helstu lögfræðingar þeir, er
nánast tengja saman auðfélög og stjórnmála-
menn, fremsm stjornmálamenn landsins o.fl.
eru meðlimir þarna.
Elstur ráðsmanna er John McCloy, áður
hernámsstjóri yfir hersetnu V-Þýskalandi,
nú lögfræðingur olíuhrings, hann er nú heið-
ursforseti ráðsins. — Henry Kissinger hóf
framabraut sína sem stjórnandi rannsóknar-
nefndar á vegum ráðsins. Henry Stimpson,
hermálaráðherra í stríðinu, er kom til Islands
þá, var meðlimur ráðsins og McCloy var þá
aðstoðarmaður hans — og sagði þá: Þegar
okkur vantar menn hringjum við i ráðið.
Allan Dulles var forseti ráðsins, þegar
hann var gerður yfirmaður CIA 1953. Eftir-
menn hans eru þar og flestir. John Foster
Dulles, sá alræmdi og voldugi utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna í kalda stríðinu, var
og meðlimur ráðsins. Lögfræðingur sá, er
skipulagði stofnun Atlantshafsbandalagsins
sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna 1949,
og gaf Islendingum svikayfirlýsinguna um
„engar herstöðvar á friðartímum'', Dean
Acheson, var líka meðlimur ráðsins. Og
þannig mætti lengi telja.
Tilgangur þessa ráðs auðjöfra, stjórnmála-
manna og hugsuða auðvaldsins, er að tryggja
alþjóðlega drottnun auðvaldsstefnunnar í
heiminum, vera einskonar stjórnar-heili
kapítalismans. Ráðið varð til 1920, þegar
fólkið kaus vitlaust að áliti þessara „ábyrgu”
auðdrottna, kaus Harding þann fyrir forseta,
er hindraði þátttöku Bandaríkjanna í Þjóða-
bandalaginu og olli þeirri einangrunarstefnu
er jók á kreppuþróun þá, er leiddi til hruns-
ins 1929-
Þeir eru „kaldir" og raunsæir, þeir herrar,
er þarna stjórna. Fyrst þeim tókst ekki að
„kveða niður kommúnismann" með því að
kyrkja Sovétríkin forðum, þá taka þeir nú
upp viðskiptin við þau: Rockefeller hefur
útibú fyrir Chase Manhattan Bank við
„Rauða torgið" í Moskvu — og sovétfull-
trúum er boðið sem gestum í Pritt-húsið við
Park Avenue. Og þar var og strax 1965 farið
að ræða og undirbúa að taka upp sambönd
við hið rauða Kína Mao’s. — Sérfræðingar
ráðsins, svo sem George W. Ball, Wallstreet-
80