Réttur - 01.04.1976, Page 17
bankamaður og aðstoðar-utanríkisráðherra
Kennedys, segir að Vietnam-stríðið sé eins
og hvert annað slys, þá hafi hermálaráðu-
neytið — Pentagon, eins og það er kallað
eftir byggingu þess, — farið að stjórna mál-
um sjálfstætt án þess að hafa fast land veru-
leikans undir fótum.
Æfintýrapólitík og einangrunarstefna er
eitur í beinum þessara ábyrgu hugsuða og
drottnara heimsauðvaldsins. Þeirra takmark
er gróði, peningar og völd, — og þegar um
þá hluti er að ræða þekkja þeir ekki hleypi-
dóma. Keisarinn af lran og kongar olíulanda
eru velkomnir í kapítalistaklúbbinn Og ef
græða má á viðskiptum við Sovétríkin og
Kína — ja, „business er business" — heitir
það á þeirra máli. Ráðið hefur líka sinn sér-
fræðing í viðskiptum við sósíalistísku löndin:
Zbignieiv Brzezinski, pólskur að ætt, próf-
essor við Columbia-háskólann.
Heimsauðvaldið hefur sinn alþjóðlega
hugsandi „stjórnmála-heila", raunsæjan,
vægðarlausan, framsýnan. — En hvað um
sósíalismann, alþjóðastefnu alþýðunnar? Eiga
hleypidómar og heift enn að ráða þar ríkj-
um lengi?
[Stuðst við grein Wilhelm Bittorfs:
„Ein Politburo fur den Kapitalismus?"
i „Spiegel" 8. des. 1975].
Síðan þetta var skrifað koma tveir þeirra
manna, sem hér eru nefndir, skyndilega við
sögu í sambandi við úlfaþyt þann, sem Kiss-
inger er að reyna að gera út af því að Komm-
únistaflokkur Italíu verði ráðandi stjórnar-
flokkur þar í landi.
Starfslið „International Herald Tribune"
segir frá því 15. apríl sl. að tveir fyrrverandi
stjórnarmeðlimir í stjórn demokrata í Banda-
ríkjunum hafi lýst yfir því að ríkisstjórn
Bandaríkjanna eigi að vera reiðubúin að
vinna með slíkri stjórn á Italíu.
Allan Dulles og John F. Dulles 1948 („Splegel").
George Ball kvað „Kristilega demokrata-
flokkinn" á Italíu vera spilltan flokk, mátt-
lausan og gagnslausan. Hinsvegar hafi
Kommúnistaflokkur Italíu tryggt alþýðu at-
vinnu og íbúðir. Svipaða skoðun lét Zbigniew
Brzezinski í ljós. Og Paul Warnke, fyrrver-
andi aðstoðarhermálaráðherra, kvað Ford-
stjórnina hafa breytt rangt, er hún taldi átök-
in í Angola þátt í heimsátökum Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna í stað þess að skoða
þau sem óhjákvæmileg innanlands átök þar
eftir afnám nýlenduþrælkunarinnar.
Það er greinilegt að skynsamari menn
bandaríska auðvaldsins gerast æ raunsærri
eftir ófarir hervalds þeirra í Vietnam.
81