Réttur - 01.04.1976, Síða 18
Ólafur Jóhann
Sigurðsson:
Theodór
F riðriksson
Minningarorð
{Old er nú liðin síðan skáldið Theodór
Friðriksson fæddist þann 27. apríl 1876 í
Nýjabœ í Flatey á Skjálfanda, en hann and-
aðist 8. apríl 1948 í Reykjavík.
Almenningi er nú kunnugra en fyr líf
þessa alþýðuskálds eftir ágœtan lestur Gils
Guðmundssonar á ceviminningum hans „I
verum" í útvarpinu.
Theodór komst allsnemma í snertingu við
hina sósíalistísku verklýðshreyfingu, talaði
máli sósíalismans á stjórnmálafundum á
Húsavík og var sjálfur í verkamannafélag-
inu þar. 7. mars 1927 mætti hann á fundi
hjá okkur í ]afnaðarmannafélagi Akureyrar.
I „Rétti" 1927 segir m.a. þetta um hann í
ritsjá:
,{Theodór Friðriksson er maðtir, sem allt
sitt líf hefur lifað við fátækt eins og hún
er verst hér á landi. Hann hefur orðið að
þola allt það þrældómslíf, sem verkalýður
sá lifir, er verður að þeytast landshornanna
á milli til að elta tækifærin til að fá að þræla.
Hann hefur stundað hákarlaróðra, verið fjöl-
margar vertíðir á Siglufirði og Vestmanna-
eyjum og á flestum þeim stöðum lands, sem
atvinnu er að hafa fyrir aðkomufólk".
Þórbergur Þórðarson skrifaði i „Tímarit
Máls og menningar" 1942 ýtarlegan ritdóm
um „I verum" (bls. 74—90). Theodór var
einn af þeim róttæku rithöfundum, sem varð
fyrir ofsóknum afturloaldsins undir forustu
Jónasar frá Hriflu á árunum eftir 1939. —
Theodór hafi lýst því i „I Verum" hve glaðitr
hann varð 1936 er hann fékk 1300 kr. styrk-
inn á 18. gr. fjárlaganna og hugði sig örugg-
an með hann framvegis. Þórbergur hefttr
þessi orð um hvað síðar gerðist:
,{Theodór Friðriksson tilheyrði ekki hinum
tryggu mútusugum í málaliði formanns
Menntamálaráðs. Þessvegna lætur hann tusk-
ur sínar í ráðinu lækka styrk þessa snauða
rithöfundar um 300 kr. á ári og gera Alþingi
Islendinga þannig ómerkt orða sinna". —
Theodór lýsir sjálfur þessari meðferð í ,Ofan
jarðar og neðan" (bls. 92) og er það síst til
sóma vissum menntamönnum þjóðarinnar
hvernig þeir létu nota sig þá.
Arnór Sigurjónsson, sem á svo mikinn
82