Réttur


Réttur - 01.04.1976, Síða 22

Réttur - 01.04.1976, Síða 22
vinnurekstur og þess vegna grotnaði togaraflotinn niður, bátaflotinn sem hafði aflað hráefna handa frystihúsunum varð lélegri með hverju árinu því að takmörkuð og engin endurnýjun átti sér stað, og búnaður frystihúsanna gekk úr sér. Þetta trú- leysi á innlenda atvinnuforsjá hafði á síðari hluta viðreisnaráranna í för með sér sívaxandi atvinnu- leysi, og síðan landflótta. Síðustu misseri viðreisnarstjórnar bötnuðu við- skiptakjör okkar verulega. Stjórnin sá til þess að batinn kom allur fram í auknum gróða fyrirtækj- anna. Fyrir kosningarnar 1971 birtu þessi fyrirtæki sum hver skýrslu um rekstrarafkomuna 1970, sem sýndu gróða upp á 100 miljónir og meira I stærstu fyrirtækjunum, til dæmis þar um eru Eimskipafélag Islands og tvö olíufélaganna. En atvinnuleysið og landflóttinn hafði opnað augu margra fyrir því hversu háskaleg viðreisnarstjórnin og stefna hennar var. Það var nefnilega ekki að- eins stefna viðreisnarflokkanna að láta fyrirtækin græða, það var um leið stefna þeirra að halda laununum niðri. Island átti að verða láglaunasvæði girnilegt fyrir erlend stórfyrirtæki, enda auglýstu íslenskir aðilar I erlendum tímaritum ódýra orku og ódýrara vinnuafl á Islandi. Gerið þið svo vel: íslendingar vilja vinsamlegast vinna hjá ykkur fyrir sama og ekki neitt og orkan í íslenskum fallvötnum kostar svo sem ekki neitt. Sjötti til sjöundi hver félagsmaður alþýðusam- takanna missti atvinnuna um tíma á síðari hluta viðreisnaráranna og eitt til tvö þúsund voru land- flótta. Stefna viðreisnarflokkanna hafði því snert mörg heimilin í landinu og þess vegna fór það svo að viðreisnarflokkarnir misstu meirihluta sinn; þeir töpuðu samanlagt fjórum þingsætum yfir til stjórn- arandstöðuflokkanna, sem nú höfðu meirihluta á þingi. Þegar atvinnuleysið og landflóttinn og áróðurinn fyrir erlendri stóriðju til dæmis tuttugu álverk- smiðjum var I hámarki var krafa okkar fyrst og fremst íslensk atvinnuleg forsjá. Við kröfðumst þess að togaraflotinn yrði endurnýjaður, að frysti- húsin yrðu bætt, að gerðar yrðu ráðstafanir til þess að efla íslenskan iðnað. Við gerðum þá kröfu að landhelgin yrði færð út í 50 sjómílur og í þess- um málaflokkum öllum var forusta Alþýðubanda- lagsins alveg ótvíræð. I þessu sambandi gátum við vitnað til þess að tekist hafði á nýsköpunarárun- um og vinstristjórnarárunum fyrri að reisa íslenskt atvinnulíf úr láginni. I nýsköpunarstjórninni var lagður grundvöllur að þeim lífskjörum alþýðu sem i meginatriðum hafa haldist síðan. I vinstristjórn- inni fyrri sýndu sósíalistar fram á, að þjóðin gat unnið fyrir sér sjálf og þurfti hvorki hernámsvinnu né gjafakorn. VINSTRISTJÓRNIN Þessi málatilbúnaður flokksins á viðreisnarárun- um síðari hlaut að hafa það í för með sér að flokkurinn yrði þátttakandi I vinstristjórninni frá 1971. Það var heldur ekkert hik á okkur við það og aðild að stjórninni var samþykkt einróma I öllum helstu forustustofnunum flokksins, þingflokki, framkvæmdastjórn og miðstjórn. Vinstristjórnin hófst þegar í stað handa við að framkvæma þau fyrirheit sem gefin höfðu verið í kosningunum 1971. Fyrst voru gerðar ráðstafanir til þess að stórhækka allt kaup í landinu bæði verka- laun og lífeyri handa öldruðum og öryrkjum. Þannig var bata viðskiptakjaranna veitt frá fyrirtækjunum til fólksins. Um leið var verðlagi á framleiðslu og þjónustu fyrirtækja haldið niðri þannig að á fyrstu misserum. vinstristjórnarinnar varð hverfandi verðbólga hér á landi. Með hækkandi kaupmætti og lifeyri bötnuðu lífskjör manna verulega og einkaneysla fór vaxandi. I atvinnumálum tók vinstri- stjórnin einnig rösklega til hendinni. Þar lagði hún áherslu á alhliða eflingu íslenskra atvinnuvega. Togaraflotinn var aukinn og endurnýjaður mjög myndarlega. Miljörðum króna var varið til þess að treysta fiskiðnaðinn með endurbótum á frystihús- unum. Margfölduð voru framlög til hafnarmála. Allt hafði þetta og fleira I för með sér traustari atvinnu- grundvöll en áður; sjávarpláss sem áður höfðu orðið að sæta atvinnuleysi nokkra mánuði á ári hverju urðu nú verstöðvar með mikilli atvinnu allt árið. Forsenda þess að unnt var að eyða öllu þessu í endurbyggingu sjávarútvegsins var að sjálfsögðu sú að efnahagur þjóðarinnar í heild batnaði með aukinni framleiðslu og betri viðskiptakjörum. Samhliða þessari stórhuga stefnubreytingu í sjávarútvegsmálum var undirbúin ný og víðtæk stefnumótun í iðnaðar- og orkumálum. Islenskar skipasmíðar tóku risaskref fram á við og hið sama má segja um margar aðrar iðngreinar. Undirbúin var allsherjar iðnaðaráætlun. I orkumálum var fylgt þeirri meginstefnu að gera landið allt að einu orku- veitusvæði og lögð var áhersla á nýtingu rafmagns til húsahitunar. Horfið var frá bæjarlækjavirkjunum 86

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.