Réttur


Réttur - 01.04.1976, Qupperneq 27

Réttur - 01.04.1976, Qupperneq 27
Þa8 ber og til tíðinda í máli þessu að dómsmála- ráðherra landsins sór á alþingi að flokkur hans hefði aldrei nokkurn tímann haft neinskonar fjár- málaleg viðskipti við veitingahúsið Klúbbinn. Ekki var prentsvertan þornuð á ræðuhöldum þess mekt- armanns þegar uppvíst varð um það gagnstæða; flokkur hans hafði verið I samskiptum við veitinga- húsið og það eigi alllitlum. Hafði veitingamaður- inn átt inni hjá Framsóknarflokknum að minnsta kosti fimm miljónir króna, en skiptum flokksins og veitingamannsins lauk þó með þeim sérkennilega hætti að hann gaf eftir kröfuna en tók I staðinn að láni hjá flokknum 2,5 miljónir króna. Enn þykir almenningi kostulegt við mál þetta hvað Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra var viðbragðsfljótur að láta opna klúbb þennan. Taldi hann að lögreglustjórinn I Reykjavík hefði beitt geðþóttalokun sem væri hin mesta ósvinna og var ráðherrann því fljótur til að vanda að standa vörð um réttlætið. Hann opnaði veitingahúsið. En sömu dagana var gengið frá skuldabréfi á skrifstofu Framsóknarflokksins fyrir áðurnefndu tveggja og hálfrar miljónar króna láni. Islenska réttarkerfið hefur alltaf og ævinlega ver- ið I höndum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar- flokksins að undanteknum fáeinum mánuðum I höndum Alþýðuflokksins. Þessir flokkar, mafíurnar í þeim, bera ábyrgð á þessu kerfi og þær hafa viljað hafa það algerlega lokað fyrir öðrum mönn- um. Það er tam. eftirminnilegt þegar Ihaldið hrópaði hástöfum og fullt vandlætingar um það I málgögn- um sínum þegar unnið var að myndun vinstri stjórn- arinnar að vísast fengi Alþýðubandalagið dóms- málaráðuneytið. Það hafði auðvitað aldrei komið til tals, en upphrópun íhaldsins var til marks um þann ótta sem ríkir á þeim bænum. Við íslenskir sósíalistar þurfum að svara þeim kröfum sem til okkar eru gerðar i landhelgismálinu og í efnahagsmálum, en okkur ber ekki síður skylda til þess að svara I þessum málum. Við getum ma. svarað með því að benda á að þar sem sósíalistar hafa verið í fyrirsvari hafa ekki komið upp þau einkenni spillingar og rotnunar sem hvarvetna hefur gætt í valdaslóð mafíuflokkanna. En af hverju hafa þessi mál orðið til? Hvernig stendur á því að á Islandi eiga sér stað glæpir sem við héldum til þessa að aðeins væru til i útlandinu? Ég fullyrði þó að meginástæðan fyrir þessum glæpamálum séu sú spilling og það niðurrif mann- gildisins sem hefur fylgt peningadýrkun afturhalds- ins á Islandi á undanförnum áratugum samfara trylltu kapphlaupi undan verðbólgubálinu. Þjóðfé- lag frjálsrar samkeppni er þetta kallað. Gróði, og aftur gróði öskrar formaður Sjálfstæðisflokksins. I slíku þjóðfélagi er það beinlínis rökrétt að stela; sá sem stelur verður ríkastur, hvort sem hann smyglar spíra eða stelur verðbólgugróða. Verðbólg- an er bein undirstaða þessa spillta hugsunarháttar sem hvarvetna gerir vart við sig, en sést I sann- astri mynd í þeim glæpamálum sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. Einhvern tíma hefði það þótt til tíðinda að draga sora af þessu tagi inn í almenna stjórnmálaumræðu. En þessi mál eru dagskrármál í dag og þetta eru pólitísk mál, þeir sem bera ábyrgðina eru stjórn- málamenn ekki siður en ákveðnir embættismenn og okkur er skylt að fjalla um slik mál. Þá kröfu gerir almenningur til okkar. HRÓPAÐ Á SÓSÍALÍSK ÚRRÆÐI Ég hef nú lýst nokkrum atriðum íslenskrar þjóð- málaumræðu um þessar mundir: 1. Landhelg'smálið hefur opnað augu fólks fyrir okkar stefnu í utanríkismálum og svarta skýrslan hefur opnað augu almennings fyrir nauðsyn heildarstjórnar I atvinnumálum í heild. 2. Umræðurnar um kjaramálin hafa gert öll- um hugsandi mönnum Ijóst að þvi aðeins er unnt að tryggja raunhæfar kjarabætur og raun- hæf lifskjör að þjóðfélaginu sé breytt, að sam- an fari fagleg barátta verkalýðshreyfingarinnar og pólitisk barátta islenskra sósíalista. 3. Umræðan um sakamálin hefur gert fólki Ijóst að brýn nauðsyn er á heiðarlegri forustu í réttarfarskerfi okkar. Einnig hefur þessi um- ræða gert fólki Ijóst að forsenda heiðarlegrar stjórnunarhátta er að afnema gróðann sem undirstöðu alls verðmæta- og gildismats; í staðinn verður að koma trúin á manngildið og getu þess. Allstaðar í þessum efnum er beinlinis hrópað á sósialisk úrræði. Og ég verð að viðurkenna að þessar eindregnu kröfur um sósialisk úrræði eru ekki síst hægristjórninni að þakka. Það er kost- urinn við hana! Hún hefur afhjúpað „velferðar- þjóðfélagið." Ekki er minnsti vafi á því að Alþýðubandalagið 91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.