Réttur - 01.04.1976, Síða 30
hryðjuverkin í kerfi og lærir þar m.a. af slíkum
stofnunum í Þýskalandi nasismans (OSS, kennt
við Gchlen, og Gestapo), en lögfræðifyrirtæki
Dulles-bræðranna Sullivan und Cromwcll hafði
gróin sambönd við þýsku auðhringina, einkum
eiturefnaframleiðandann I. G. Farben. Og nú
voru pólitísku morðin skipulögð út um allan
hoim. Stundum þurfti Bandaríkjastjórn að losa
sig við leppa sína, er orðnir voru til óþurftar
eða jafnvel óþægir, — því var Kal'acl Trujillo,
einræðisherra Dominikanska lýðveldisins myrtur
1961 og Ngo Dinh Diem, forseti Suður-Vietnam
í Saigon 1964, Stundum þurfti að drepa menn
hættulega hagsmunum olíuhringanna, eins og
þegar „flugslys“ grandaði lífi Enrico Mattci,
forstjóra ítalska ríkishringsins ENI (Olíusala
Ítalíu).
Og hvað með morðið á John Kcnnedy for-
seta? 14 bækur hafa verið ritaðar um það morð
og ráðbanana. George D. Tooll, sem var áður
í þjónustu CIA, ljóstaði því upp í mars 1975
að CIA hefði haft þar fingur í spili. Eins og
menn muna var „morðinginn“ Oswald myrtur í
höndum lögreglunnar og alls dóu 15 manns, sem
á einn eða annan hátt voru við morðið riðnir
á dularfullan hátt, myrtir eða „frömdu sjálfs-
morð“ á árunum 1963 til 1967.
Hvað er um morðin á Robert Kenncdy 1968
og á Martin Luthcr King sama ár?
CIA hafði áhuga á að losna við ýmsa leið-
toga blökkumanna í Bandaríkjunum. Medgar
Evcrs var skotinn 1964, Malcoln X árið eftir,
svo og Viola Liu/./.o. Gcorgc Jackson var skot-
inn í fangelsinu í San Quentain 1971. Þetta fólk
var á lista CIA.
En alveg sérstaklega einbeitti CIA sér að leið-
togum þjóðfrelsishreyfinganna út um heim, sem
ógnuðu og ógna enn heimsdrottnunaráformum
amerískra auð- og her-drottna.:
Lumumba, foringi þjóðfrelsishreyfingarinnar í
Kongo og forsætisráðherra lýðveldisins 1960
var myrtur árið 1961. — Og þann 23. nóvember
1975 upplýsir New York Timcs að „leyfið til
að myrða hann hafi verið gefið af Allan Dulles
og staðfest af Eisenhower forseta".
Pio Pinto, sem afhjúpaði fyrirætlanir imperial-
ista viðvíkjandi Kenya, var myrtur 1963.
Ben Barka, leiðtogi þjóðfrelsishreyfingar í
Marocco var myrtur 1965.
Rcné Schncider, herráðsforingi i Chile, var
94
myrtur 1970, — morðið var liður í fyrirætlunum
um að hindra að Allende yrði forseti.
Og hvaða þátt átti CIA í morðinu á Amilcar
Cabral, lciðtoga Guineu-Bissau, eða var leyni-
lögregla fasistanna í Portúgal ein um það 1973?
Margt er ósannað enn þótt grunur sé sterkur.
En hins vegar er viðurkennt að uppi voru fyr-
irætlanir um að myrða Gamal Abdcl Nasscr, for-
seta Egyptalands, -—- Julius Nycrere, forseta
Tanzanía, — Sckon Tourc, forseta Guineu, — og
auðvitað sjálfan Fidel Castro, höfuðóvininn, sem
skákar sjálfu ameríska auðvaldinu rétt við hús-
vegg þess. — En þessar fyrirætlanir hafa ekki
tekist.
CIA á jafnt heil flugfélög (Air America, Air
Asia, Civil Air Transport, Inter Mountain
Aviation, Southern Air Transport o.fl.) sem og
ræður yfir leiguherjum, svo sem þeim, er beitt
var I innrásinni I Guatemala 1954 og Svína-
flóainnrásinni á Kúbu 1961. Fjöldamorðin sem
kennd eru við „Phönix“-áætlunina 1 Suður-Viet-
nam og urðu 40 þúsund Víetnam-borgurum, að
I