Réttur - 01.04.1976, Page 32
Hið „drepandi orð“ amerísk-mengaðra áróð-
ursblaða hefur þegar Ieitt til þess að 55000 ís-
lendingar hafa í hugsunarleysi, vanþekkingu og
ofstæki beðið um áframhald eitrandi árásar-
stöðvar amerísks hervalds á Miðnesheiði.
Ef róttæk, þjóðleg alþýðustjórn kemst til
valda á íslandi með Iöglegan meirihluta þings
og þjóðar að baki og vildi losa landið við her-
stöðina, — við hverju mættum við þá búast eft-
ir reynslunni af CIA, sem nú er lýðum ljós?
Segjum svo að ríkisstjórn Bandaríkjanna léti
her sinn fara samkvæmt samningi, þótt hún
hafi ella sýnt sig í að svíkja samninga við Is-
lendinga — eins og 1945 — eða láta þröngva
upp á okkur hernámi eins og 1941 og 1951.
En hvað væri hugsanlegt að CIA væri látið
gera? Hvernig myndi sú stofnun, sem þegar
hefur á spjaldskrá sinni skráð „innræti“ flestra
íslendinga, — reyna að hagnýta sér það ofstæki,
sem hún og erindrekar hennar hefðu gróðursett
í hugum tugþúsunda þeirra? Við þekkjum þeg-
ar framferði CIA í Grikklandi 1967 og Chile
1973 gegn löglegum þingræðisstjórnum. Lýðræð-
isleg, þjóðleg ríkisstjórn á íslandi væri varnar-
laus gegn því hyski, sem launaðir undirróðurs-
menn CIA og ofstækisfullir áhangendur þeirra
tryllti til óhæfuverka eftir að afturhaldssöm
borgarablöð hefðu blindað það fólk með blekk-
ingaráróðri árum saman, — nema meirihluti
þjóðarinnar og þá fyrst og fremst verkalýðssam-
tökin væru vakandi og virk á verði um lýð-
ræði og þjóðfrelsi vort.
Það er margföld hætta á ferðum, sem íslensk
alþýða og allir þjóðlegir Islendingar þurfa að
rísa gegn.
íslensk þjóð á í þessum efnum allt, alla fram-
tíð sína, undir verkalýðshreyfingunni.
Það dugar ekki fyrir íslenska verkalýðshreyf-
ingu að einblína á endalaust kapphlaup við verð-
bólguhjólið, sem yfirstéttin snýr æ hraðar. Það
þarf siðferðilega, þjóðlega, pólitíska — það er
sósíalistíska vakningu í verkalýðshreyfingunni.
Öðruvísi verður Islandi, jafnt arfi þess sem
framtíð ekki bjargað. Sú alþýða, sem rís upp
gegn endalausu arðráni og þjófnaði og frelsar
sjálfa sig af ánauð, mun leysa Island úr efna-
hagslegum fjötrum og frelsa það frá yfirvofandi
andlegri og síðar líkamlegri tortímingu í þágu
þess myrkravalds, sem CIA er alræmdasti full-
trúinn fyrir.
96