Réttur - 01.04.1976, Síða 33
Guðrún Gísladóttir og Valgerður Gísladóttir
Katrín Thoroddsen
Katrín Thoroddsen hefði orðið áttræð
í sumar, ef hún hefði lifað. Skal nú minnst
aðallega tveggja þátta úr pólitísku lífs-
starfi hennar, — og sögð er ein endur-
minning úr öllu hennar mikla og marg-
brotna læknisstarfi.
Katrín Thoroddsen var dóttir þeirra
þjóðfrægu hjóna Theodóru og Skúla
Thoroddsen, fædd 7. júlí 1896 á Isafirði.
Katrín varð stúdent 1916 og útskrifaðist
úr læknadeild Háskóla íslands 1921,
stundaði framhaldsnám í Noregi og
Þýskalandi, varð viðurkenndur sérfræð-
ingur í barnasjúkdómum 1924, stundaði
héraðslæknisstörf í Flateyjarhreppi 1924
—26, en settist síðan að í Reykjavík.
Árið 1927 tók hún að sér forustu ung-
barnaverndar Líknar og síðan varð hún
yfirlæknir barnadeildar Heilsuverndunar-
stöðvarinnar, er ungbarnaverndin fluttist
þangað. Eftir 1961 dró hún sig að mestu
í hlé frá læknisstörfum. Katrín andaðist
11. maí 1970.
Sverrir Kristjánsson sagði í eftirmæl-
um eftir hana þessa smásögu, táknræna
fyrir vinsældir hennar meðal barna:
,,Svo bar við fyrir mörgum árum —
ætli það hafi ekki verið á þessum frægu
kreppuárum, — að í barnaskóla einum
í höfuðborginni lét kennarinn krakkana
svara þeirri spurningu skriflega, hverjar
þeir álitu vera bestu manneskjurnar, sem
uppi hefðu verið á jörðunni. Lítil stúlka
svaraði spurningunni á þessa lund: ,,Ég
held að bestu menn, sem lifað hafa hafi
verið Jesús Kristur og postularnir, og svo
er það hún Katrín Thoroddsen."
Katrín var eldheitur baráttumaður fyrir
þjóðfrelsi og sósíalisma, barðist í fylk-
ingarbrjósti fyrir þeim hugsjónum þá hríð-
in var hörðust. Hún var löngum í mið-
stjórn Sósíalistaflokksins, var um þriggja
áratuga skeið á framboðslistum Komm-
únistaflokksins, Sósíalistaflokksins og
Alþýðubandalagsins við þingkosningar
og bæjarstjórnarkosningar. Hún átti sæti
á stormasömu Alþingi frá 1946 til 1949 og
i bæjarstjórn Reykjavíkur 1950—54. —
Hér á eftir rekur Guðrún Gísladóttir
nokkur atriði úr þingstörfum hennar og
starfi í borgarstjórn, en Valgerður Gísla-
dóttir minnist eins atviks úr viðamikilli
sögu hennar sem læknis.
I
KATRÍN THORODDSEN
ÞINGMAÐUR 1946—’49
Kjörtimabilið 1946—49 var örlagaríkt tímabil fyrir
þjóðina. I upphafi þess, haustið 1946, var Keflavík-
ursamningurinn samþykktur og í lok kjörtímaþilsins,
vorið 1949, samþykkti Alþingi inngöngu Islands i
Atlantshafsbandalagið.
Katrin Thoroddsen tók virkan þátt í baráttu þmg-
97