Réttur


Réttur - 01.04.1976, Side 39

Réttur - 01.04.1976, Side 39
dáðist að glöggskyggni hennar sem læknis og ekki síður hjartagæsku hennar og mannkærleika sem voru sterkir þættir í eðli hennar. Aldrei brást okkur það, að hún greindi sjúkdóma rétt hvort heldur það var hjá okkur hjónunum eða börnunum. Þessu til staðfestingar langar mig til að segja frá alvarlegu sjúkdómstilfelli, sem dóttir okk- ar ársgömul fékk. Katrín var strax kvödd til hennar. Eftir að hafa skoðað telpuna vel og vandlega sagði hún við mig: Ef ég greini sjúkdóminn rétt, þá tekur hann 6—8 vikur hvort heldur telpan lifir eða deyr. Ég vil að hingað séu sóttir fleiri læknar, sjálf ætla ég að tala við doktor Helga Tómasson og biðja hann að líta á telpuna fyrir okkur ,því að mínu áliti er sjúkdómurinn í höfðinu og heilasjúk- dómar eru hans sérgrein. Það komu sex læknar auk Katrinar, enginn þeirra þekkti sjúkdóminn nema hún og doktor Helgi. Þau komu sér saman um meðalagjöf og með- ferð sjúklingsins, þar sem Katrín var heimilis- læknirinn og stundaði telpuna lagði hún mér lífs- reglurnar um alla meðferð sjúklingsins, sem var margvísleg. Frá rúmi hennar mátti aldrei víkja nótt né dag, reyna að næra hana á styrkjandi fæðu.og þótt hún kastaði öllu upp, átti aftur að reyna að litlum tíma liðnum. Telpan mókti mestan hluta sólarhringsins og þá alltaf á sömu hliðinni. Katrín sagði að hún lægi á verkinn. Þegar hún mókti átti að hafa kalda bakstra á höfði hennar. Margar aðrar ráðleggingar lagði hún mér barninu til líknar og mér til léttis við hjúkrunina. Veikindin stóðu yfir í 71/2 viku, þau enduðu í krampa og algeru meðvitundarleysi I 3 sólarhringa. Allan veikindatímann kom Katrín þrisvar á dag. Auk þess átti að láta hana vita ef einhver breyting yrði. Það var að nóttu að telpan fékk síðasta kastið. Ég hringdi til Katrínar, hún kom undra fljótt, tók við barninu, lagði það i rúmið og sagði: Hér er ekkert að gera annað en bíða og vona það besta. Katrín kom nú 4 sinnum á sólarhring. Eftir 2 sólar- hringa fullyrti pabbi telpunnar að hún hefði opnað augun og þekkt sig. Þegar hann sagði Katrinu þetta, kallaði hún mig á eintal og sagði:: Ég vona að þetta hafi verið óskhyggja hjá pabba hennar, því frá læknisfræðilegu sjónarmiði skil ég ekki að hún komi andlega óskemmd til lifsins. Svo bætti hún við: En Valgerður mín, góðum guði er ekkert ómáttugt, mundu það. Hún strauk mér um kinnina og sagði: Ég kem aftur í kvöld. Þegar hún kom um kvöldið þekkti telpan hana og orgaði mikið, því náttúrlega hafði hún oft orðið að meiða hana með sprautum og öðrum læknisaðgerðum. Ég gleymi aldrei gleðiljómanum á andliti Katrínar þegar hún sá að barnið þekkti sig. Nú vona ég að veikin sé yfirunnin, ég ætla að hvíla hana á mér og koma ekki í 2 sólarhringa nema eitthvað sérstakt vilji til, þá lætur þú mig vita. Til þess að gera langa sögu stutta, ætla ég aðeins að segja að Katrin hafði rétt fyrir sér, sjálf veikin var yfirstigin, andleg vöntun reyndist engin nema heyrnin fór af öðru eyra, en litli lik- aminn var hart leikinn, þetta kraftmikla hlaupandi barn hélt nú ekki höfði. Margar og góðar voru þær ráðleggingar sem Katrín veitti okkur hjónunum um alla meðferð á telpunni, hún hresstist furðu fljótt en tvö ár tók það hana að læra að ganga aftur, henni gekk vel með allt nám og varð gagnfræðingur á réttum aldri. Nú er hún orðin 43 ára gömul kona og 4 barna móðir. Enga manneskju dáir hún eins og Katrínu jafnt sem mannvin og lækni, þær voru vinir þangað til Katrín fór yfir landamærin miklu. Valgerður Gísladóttir. 103

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.