Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 59
Marchais ræðir við fulltrúa Vietnam.
fyrir „þýðuræðu” Krústjovs 1956. Nú hafa
leiðtogar flokksins sett sér að fjölga flokks-
mönnum um 100 þúsund á þessu ári. Það er
ekki óraunhæft takmark, þar sem 90 þúsund
nýir félagar gengu í hann á síðasta ári. Takist
þetta mun það enn auka áhrif ungs fólks í
flokknum.
Það leikur e-nginn vafi á því að stór hluti
æskufólks í Frakklandi hetur fylkt sér um
kommúnistaflokkinn eftir að hafa kynnst því
að byltingarórar geta orðið vatn á myllu stór-
kapítalsins og handlangara þess í ríkisstjórn.
Jafnframt hafði valdarán herforingjanna í
Chile og örlög Allende mikil áhrif.
Sú niðurstaða virðist hafa verið dregin af
þessum atburðum, að áður en hægt sé að
takast á við núverandi valdastétt í háþróuöu
kapítalísku þjóðfélagi þurfi að mennta al-
þýðuna í sósíalískri meðvitund og til ábyrgð-
arstarfa í sósíalískri umsköpun, og breikka
þannig og styrkja valdagrundvöll sósíalista.
Allt bendir því til að franskir kommúnistar
nái verulegum árangri í sínu flokksstarfi og
innviðir flokksins séu sterkir. Spurningin er
miklu frekar sú hvort honum tekst að koma
boðskap sínum út til franskrar alþýðu, sann-
færa hana um einlægni hans. Það er á því
sem það veltur hvort franski kommúnista-
flokkurinn verður á næstu árum sá fjölda-
flokkur, sem að er stefnt, og forystuafl í
þeirri samfylkingu vinstri afla, sem miðar
að alþýðuvöldum í Frakklandi, „alþýðuvöld-
um í frönskum fánalitum" eins og Marchais,
aðalritari flokksins komst að orði.
123