Réttur


Réttur - 01.08.1976, Side 1

Réttur - 01.08.1976, Side 1
icttur 59. árgangur 1 976—3. hefti Stormur er í aðsigi, stormur reiðinnar yfir ranglætinu í skiptingu þjóðar- teknanna fésýsluvaldinu í hag. Verðbólgan er aðalránsaðferð fésýsluflokk- anna. til að stela kaupinu af launastéttunum jafnóðum og þær hafa knúið fram nokkra endurbót á launakjörum sínum og jafnframt til að hækka fast- eignir sínar í verði en lækka raungildi skulda. Stjórnmálavald fésýsluflokk- anna tveggja er undirrót verðbólgunnar. Forsendur fyrir því að ráða við verðbólguna er að brjóta það vald á bak aftur. Stormur er í aðsigi. Þeim stormi þarf að stjórna pólitískt, svo fésýsluvald- inu takist ekki að gera hann að einni verðbólgustórhríðinni enn. Stormurinn, —• stórsókn verklýðs- og starfsmannasamtakanna, — þarf að feykja burt valdi fésýsluflokkanna — og til þess það sé unnt þurfa samtök launafólks og flokkar alþýðunnar að samtvinnast, samfylkja í stéttabaráttunni, pólitísku og faglegu. Engin hræsni fésýsluvaldsins og faguryrði má forða því frá þeim ósigri, er bíður þess, ef alþýðan þekkir sinn vitjunartíma. Hættan af framhaldi á yfirráðum braskvaldsins er ekki aðeins áframhald- andi kauprán er geri ísland að mestu lágjaunalandi Vestur-Evrópu. Fésýslu- flokkarnir eru líka að henda auðæfum þjóðarinnar, — fossum og fallvötnum, — í ginið á útlendu auðvaldi, til þess að kaupa sér sterka kúgara inn í land^ ið sem bandamenn í stéttabaráttunni við alþýðu landsins. Uppreisn gegn þessu þraskveldi þarf að verða á öllum sviðum, því í æ ríkara mæli er blint gróðasjónarmiðið að heltaka þjóðlífið: Unglingunum á sérstökum aldri er raunverulega hent út á götuna, fyrst þeir eru ekki orðnir

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.