Réttur - 01.08.1976, Blaðsíða 60
Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna: Le-
onid Iljitsch Breshnew, aðalritari miðstjórnar.
Kommúnistaflokkur Spánar: Santiago
Carillo, aðalritari flokksins.
Kommúnistaflokkur Tékkóslóvakíu: Gust-
av Husak, aðalritari miðstjórnar.
Kommúnistaflokkur Tyrklands: I. Bílen,
aðalritari miðstjórnar.
Sósíalistiski Verkamannaflokkurinn ung-
verski: János Kádár, aðalritari miðstjórnar.
Sósíalistíski einingarflokkurinn í Vestur-
Berlín: Erich Ziegler, varaformaður flokks-
ins.
Framfaraflokkur alþýðunnar á Kyprus
(AKEL): Christos Petas, meðlimur fram-
kvæmdanefndar.
Gestgjafinn á ráðstefnunni var: hinn sósí-
alistíski Einingarflokkur Þýskalands og setti
Erich Honecker, aðalritari miðstjórnar, ráð-
stefnuna (Sjá nánar um ráðstefnuna í sér-
stakri grein í þessu hefti).
IRAN
Keisarinn í Iran, hinn olíuríki einvaldur
hinnar fornu Persíu, reynir oft með glæsi-
legum hátíðum að telja umheiminum trú
um að ríki hans sé allt annað en það er.
Alþýða ríkisins býr við örgustu fátækt og
kúgun, en sjálfur er hann blóð-keisari sem
á heimsmet í aftökum pólitískra andstæð-
inga.
Þessi harðstjóri lét myrða 100 andstæðinga
bara á þessu ári, en hefur síðan 1970 látið
taka 300 pólitíska andstæðinga sína af lífi.
Sérstaklega grimmileg er ofsókn hans
gegn rithöfundum og skáldum:
Dr. Saedi, vinsælasta leikritaskáldið, var
dæmt til 13 ára fangelsisvistar, síðan pýndur
til að gefa yfirlýsingu um „iðrun" og er síðan
í stofufangelsi.
Ali Akbar Darwischian, rithöfundur, var
í ár dæmdur í 11 ára fangelsi. Sakargift ó-
kunn.
Mohsen Jalfani leikritasmiður, var í ár
dæmdur í 5 ára fangelsi. Sakargift ókunn.
Nasser Rahmani-Nejad, leikari og leik-
stjóri, hefur verið í fangelsi síðan í febrúar
1975, var nú dæmdur í 11 ára fangelsi.
Akæran: Ætlaði að „setja upp" „Sníkjudýr-
in" eftir Maxim Gorki, átti að taka þátt í
alþjóðlegri leikritasýningu í Nancy 1975, en
var áður handtekinn ásamt öllum leikurun-
um og aðstoðarmönnum. Meðal þeirra voru
þessi skáld og rithöfundar: Said Soltanpour,
Aslan Aslanian og Mahmoud Dalatabadi —
og voru þeir dæmdir í tveggja til fimm ára
fangelsi.
Þannig mætti lengi telja.
Eigi menn vissar bækur eftir Sartre, Bert-
rand Russel, Albert Camus, Maxim Gorki
eða Georg Lukács, lætur leynilögreglan
SAVAK viðkomandi hverfa og tínast í fang-
elsunum.
/
I samræmi við þessa menningarfjandsemi
er það að 41% fjárlaganna fer í herkostnað,
en til stuðnings þeim, sem skapa „menningu
og list" fara 0,3% fjárveitinganna, t.d. eru
það alls 12 leiksvið, sem standa 34 miljónum
íbúa Iran til boða.
Það var vegna þessarar harðstjórnar að
Arthur Miller neitaði að taka þátt í háðíða-
höldunum 1970 og að bandaríski leikhóp-
urinn „Bread and Poppet" fór frá hátíðinni
og lék leik sinn fyrir framan fangelsishlið
í Schiraz.
MAURICE DOBB
Þann 17. ágúst sl. andaðist í Cambridge
einn besti marxistiski hagfræðingur okkar
tíma: Maurice Dobb.
Maurice Dobb var fæddur árið 1900, nam
hagfræði í Cambridge og varð að lokum
196