Réttur - 01.08.1976, Blaðsíða 54
KOPARINN OKKAR
Koparinn okkar
kjöt gresjunnar
í rauðri jörðu
greyptur þar fyrir norðan.
Baðaður sól og fjöllum
lífsbjörg fólksins
blandaður blóði og sálum
allrar alþýðu.
Koparnum okkar
bornum milli fjallanna
var rænt af útlendum höndum
og breytt í peninga.
Ekki drakk Chile safa þinn
ekki voru það námumennirnir.
Þeir nota þig í byssukúlur
og beina þeim gegn fólkinu.
Koparinn okkar
nú ertu kominn heim
hrærð tekur fósturjörðin á móti þér
með gíturum og víni.
Þeir eiga þig sem dóu
svo þú yrðir ekki tekinn.
Héðan verðurðu ekki numinn
hvorki með sverðum skriðdrekum
né byssum.
Koparinn okkar
kjöt gresjunnar
í rauðri jörðu
greyptur þar fyrir norðan.
Eins og dreng sem aldrei hugkvæmdist
sú gæfa að verða maður.
Þú hefur sigrað chilebúum til góðs
aldrei meir verðum við fátækir.
Ávöxtur þinn ber nýtt líf
þín bíða betri tímar
að eilífu verður koparinn
í höndum alþýðunnar.
Eduardo Yanez.
í herbergjum lögreglunnar og píndur með
því að hleypa á mig rafmagnsstraumi, til
þess að ég kæmi upp um hina starfsmenn
blaðsins. Ég gerði það ekki. Eftir „yfirheyrsl-
una” svaf ég eins og engill. Ég var hamingju-
samasti maður heims, af því ég var mér þess
meðvitandi að hafa staðist þessa eldraun."
Hann var settur í Pisagua-fangabúðirnar, en
mótmæli alþýðunnar víða um heim — knúðu
fram lausn hans. Hóf hann þá starfsemi í
flokknum á laun og 1953 var svo komið að
kommúnistaflokkurinn hóf opinbera baráttu
á ný og þingið varð að aflétta banninu á
starfsemi hans. Corvalán hafði þá fyrir
nokkru verið kosinn aðalritari flokksins.
Corvalán var nú einn aðalhvatamaður að
þeirri þjóðfylkingu,2' er að lokum sigraði í
forsetakosningunum 1970, þegar Salvador
Allende var kosinn forseti. Hafði sú þjóð-
fylking sífellt verið að styrkjast í kosning-
unum undanfarinn áratug. 1961 hafði Cor-
valán sjálfur verið kosinn í öldungaráð þjóð-
þingsins („senatið").
Það voru bjartar vonir, sem alþýðan í
Chile gerði sér eftir sigurinn 1970, er stjórn
Allende forseta tók við völdum og einsetti
sér að þjóð Chile skyldi nú sjálf fá að ráða
náttúruauðlindum sínum svo sem kopar-
námunum miklu, sem bandarískir auðhringir
þá drottnuðu yfir og arðrændu alþýðu vægð-
arlaust. (Ljóðið,sem birtist hér á síðunni og
ort var þá, er dæmi um vonir og gleði alþýðu
þá svo og ávarp Neruda frá júlí 1973).
En bandarískt auðvald fótum treður allt
lýðræði og þingræði, hvenær sem því býður
svo við að horfa, það er að segja: ef það þor-
ir og gemr. Því gerði það út herforingjaklík-
una í Chile til uppreisnar og morða. Allende
forseti var myrtur. Corvalán tókst herfor-
ingjunum að fangelsa og hefur hann nú í
þrjú ár orðið að þola þrælkun í fangabúð-
um og pintingar í dýflissum. En kjarkur hans
190