Réttur - 01.08.1976, Blaðsíða 6
að losna undan fargi viðreisnaráranna. Þótt
flokkurinn hafi beðið mikið afhroð í kosn-
ingunum 1971 og enn haldið áfram að
minnka í kosningunum 1974 á kostnað hins
langa stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokk-
inn á viðreisnarárunum, virðist enn vera inn-
an hans sterk öfl, sem eiga sér þá ósk heitasta
að nýtt viðreisnartímabil sjá dagsins ljós. En
þar eru einnig í forysm menn sem vita, að
flokkurinn á sér aðeins framtíð verði hann
trúr uppruna sínum og standi staðfastur sem
málssvari vinnustéttanna. Þeir gera sér grein
fyrir því, að flokkurinn er nú ekki stærri en
Samtökin vom eftir kosningar 1971, og að-
eins einarðleg vinstri stefna og eindreginn
smðningur við verkalýðshreyfinguna rétt-
lætir tilvist flokksins. Þessir menn vilja líka
sem nánast samstarf við Alþýðubandalagið
í verkalýðsfélögunum.
Enn er nokkuð óljóst hvað ofan á verður
innan Alþýðuflokksins, en ætla verður að
staða vinstri mannanna styrkist, ekki síst ef
um langvarandi stjórnarandstöðu verður að
ræða.
VI.
Sá flokkur sem verkamenn og vinstra fólk
verður því fyrst og fremst að byggja á og
efla er Alþýðubandalagið. Á því hvílir því
mikil ábyrgð. Hlutverk þess er ekki aðeins
að veita hugmyndafræðilega leiðsögn um
leið Islands til sósíalismans, heldur líka að
hafa forystu í pólitískri dægurbarátm alþýð-
unnar. Afl þess fer eftir því hve vel tekst
að fá menn til þátttöku í virku starfi, bæði
að stefnumómn og til styrktar flokknum.
Framtíðarheill alþýðu til sjávar og sveita er
mjög undir því komin hvernig Alþýðubanda-
lagið rækir þetta hlutverk sitt.
Að minum dómi er það pólitíska afl, sem
verkalýðshreyfingin leitar eftir, öflugra og
virkara Alþýðubandalag, sem í traustri sam-
vinnu við verkalýðssamtökin gemr boðið
íhaldsöflunum byrginn. Ekki er útlit á öðm
en peningavaldið muni enn um langa hríð
una sér vel í pókernum við ríkisstjórnar-
borðið. Þaðan verður það ekki auðveldlega
hrakið. Framundan fer því langt og erfitt
barátmskeið. I þeirri barátm duga ekki
vangavelmr um það hvort stjórnin springi
einn góðan veðurdag eða hvort hægt sé að
fá annan íhaldsflokkinn til samstarfs.
Verkalýðshreyfingin og flokkar hennar
verða að nota tímann vel til að treysta sína
eigin innviði, vekja alþýðuna til pólitískrar
vimndar og búa sig sem best undir það end-
urreisnarstarf sem bíður á öllum þjóðlífs-
sviðum.
142