Réttur


Réttur - 01.08.1976, Page 17

Réttur - 01.08.1976, Page 17
rtíinu og ritstjóranum. Ég fór heim með hon- um beint af reitnum og hann lánaði mér fyrstu heftin af Rétti Einars Olgeirssonar. Fátt er jafnheillandi fyrir alþýðunnglinga og sjá þá heima oþnast, sem sósíalisminn er lykillinn að, kynnast stefnu, sem eggjar til náms og leitar og setur umhverfi þeirra og störf í stórt samhengi, stefnu sem sameinar á jafnfullkominn hátt eldmóð dýrustu hug- sjóna mannkynsins og verksvit í baráttu, þá kunnáttu um vinnuaðferðir hversdagslífsins, sem tryggir að hugsjónin verði ekki þoku- kennd draumsýn, heldur skýr og fagur veru- leiki í lífi alþýðunnar. Réttur varð fyrsta og kærasta fræðibók mín um sósíalismann, enda þótt ég kallaði mig kommúnista áður en hann barst mér í hendur." * o * Hugsjónabarátta mannanna, sem stofnuðu Rétt og sögðu ranglæti og spillingu auð- valdsþjóðfélagsins stríð á hendur með reisn og þrótti, — Jónas frá Hriflu hafði þegar gert það í „Skinfaxa" 1911, — hafði smátt og smátt vikið fyrir dægurbaráttunni hjá þeim flestum, nema Þórólfi. Það varð nú hlutskipti okkar hinna ungu, er tóku við Rétti til að boða í honum sósíal- ismann sem stefnu og lokatakmark, að reyna að sameina eftir bestu getu þá dægurbaráttu, er alþýðan ætíð verður að heyja, og barátt- una fyrir þjóðfélagi sósíalismans, — sam- ræma umbóta- og áhrifa-baráttuna innan hins borgaralega þjóðfélags og byltingar- baráttuna fyrir afnámi auðvaldsdrottnunar- innar yfir alþýðu og grundvöllun þess sam- eignar-mannfélags, sem alþýðan ræður sjálf. Hálf öld er liðin, mesti umbreytingatími íslenskrar sögu, hreyfingu okkar róttækra sósíalista hefur vaxið ásmegin, baráttusamtök og áhrifatæki hennar stóraukist, lífskjara- bylting íslenskrar alþýðu gerst. Við skulum vona að Rétmr hafi að sínu litla leyti smtt að þessari umsköpun — og að honum auðn- ist líka að eiga sinn þátt í því að undirbúa nýsköpunina miklu: þjóðfélagsforustu og valdatöku íslenskrar alþýðu og sigur sósíal- ismans. SKÝRINGAR: J> Sjá „Rétt" 1965 bls. 227—250 og „Rétt" 1966 bls. 117—138. 3) Sjé Rétt 1965 bls. 248—49, úr bréfi Matthíasar og erindi Stephans G. з) Sjá „Rétt" 1916, bls. 13: „En þá (1955 inn- skot E.O.) á 100 ára afmæli verslunarfrelsis Is- lendinga við allar þjóðir, á að vera eitt kaup- félag og á öllu landinu; engin önnur verslun." *> Pólitík Jónasar var á sínum tíma skilgreind all rækilega í Rétti 1939: „Valdakerfið á Islandi 1927—39" bls. 81—145. “) Saga sósíalismans var áður fyrr rituð mjög vel með tilliti til þessara draumsjóna. Gott sögurit I þeim efnum var t.d. Max Beer: Socialismens Historia (á sænsku, frumrit enskt) I tveim bind- um. Ágæt rit um einstaka þætti eru rit Kauts- kys: 1) „Vorlaufer des neueren Sozialismus" um sósíalistískar hugsjónir á miðöldum og siða- bótartímanum, — 2) „Thomas More und seine Utopie" og 3) „Ursprung des Christentums." “) Aðalrit Henry George (1839—97) var „Progress and Poverty" (1879). Var þýtt á dönsku af Jakob E. Lange, forvígismanni georgeismans I Danmörku. 7) Sjá um þetta m.a. greinina „Rautt misseri i Reykjavik fyrir 50 árum' 'í Rétti 1971 bls. 42-50. e) Sjé grein um Guðjón í Rétti 1972 bls. 224-234. “) Um Hólmfríði, sjá Rétt 1974 bls. 64-66, ræða Þorgríms Starra við útför hennar. 10) Finnur Jónsson (1894—1951), síðar þingmaður 1933 til dauðadags, ráðherra í nýsköpunar- stjórninni 1944—47, — Haraldur Guðmundsson (1892—1971), varð alþingismaður 1928, ráð- herra i vinstri stjórninni 1934—38, — Vilmundur Jónsson (1889—1972), síðar landlæknir, þing- maður 1931—41, sagði af sér þingmennsku 7. júlí 1941. и) I árganginum 1926 bls. 78—79. 153

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.