Réttur


Réttur - 01.08.1976, Side 25

Réttur - 01.08.1976, Side 25
Marchais Berlinguer Carillo veldi þessi hrunin. England eftir með hefð- arhrokann og nokkra volduga auðhringi að arfleifð — en Þýskaland sjálft skipt í tvennt: uppskeran af valdadraumunum um þúsund ára ríki yfirdrottnunar „germanskrar” herra- þjóðar — en keisaradæmin miklu öll löngu liðin undir lok. A því herrans ári 1878 hugði auðvald og aðall Evrópu sig eilífa drottnendur. Fyrsta alþjóðasamband verkalýðsins hafði orðið að hætta starfi í Evrópu eftir að Parísarkomm- únan var kæfð í blóði 1871 og þýski járn- kanslarinn hugðist brjóta sterkasta flokk þess, þýska sósíalistaflokkinn, á bak aftur með banni á starfsemi flokksins 1878. Nú ern það arftakar þeirra flokka og al- þjóðasambanda, er útrýma skyldi fyrir einm öld, sem koma saman í Berlín, til þess að skipuleggja sókn alþýðu gegn yfirdrottnun auðsins, gegn kreppu og fasisma. Þeir sam- einast um þá stefnu, að alþýða Evrópu eigi að standa saman í þessari ,frelsisbaráttu hvaða leiðir, sem hver flokkur velur í sam- ræmi við aðstæður og erfðavenjur hverrar þjóðar. Og við þeim blasir nýr heimur, ef horft er aftur til 1878: Veldi auðs og aðals hrunið frá Saxelfi til Gulahafs, alþýðan tek- in að byggja upp þjóðfélag sósíalismans á öllu því svæði og allt suður til Eyjahafs í Evrópu en að Suður-Kínahafi í Asíu. Og rísandi alda sósíalismans staðnæmist ekki við meirihluta Evrópu og Asíu: I Afríku hrynja nú fjötrar nýlendudrottnunar hvarvetna og í ýmsum ríkjum þar tekur alþýðan í fátækt sinni að feta sig áfram til sósíalisma, þótt illur arfur aldakúgunar nýlendudrottnanna sé þar erfiður þrándur í götu. Og í sjálfu höfuðvígi auðvaldsins, Ameríku, þar sem fasisminn drottnar í öðru hverju landi í skjóli Bandaríkjaauðvaldsins, hefur sósíalisminn þegar fest rætur á Kúbu — og verður ekki upprættur. Og Berlín varð þingstaður þessarar sögu- legu samkomu alþýðuleiðtoga Evrópu: Berlín, borgin þar sem Marx og Engels eitt sinn námu, þar sem Bebel og Wilhelm Liebknecht börðust fyrir alþjóðahyggju verkalýðsins, er Bismarck léði aðstoð sína til 161

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.