Réttur


Réttur - 01.08.1976, Síða 35

Réttur - 01.08.1976, Síða 35
á borgirnar, — yfirleitt reka allt aðra pólitík en Mao áleit skynsamlegt. (Þeir „28 bolshe- vikkar" voru þessir ungu menn frá Sun-Yat- sen skólanum í Moskvu stundum kallaðir). Hinir ungu menn töldu sig vera að fram- kvæma kenninguna hreina, án afsláttar og frávika. Þeir töldu sig eiga fagra fyrirmynd í voldugri sigursælli hreyfingu erlendis. Og eftir að miðstjórnin varð að flýja úr borgun- um upp í „sovét"-héruðin, réð hún því að lagt var til stórorustu í stað þess að hörfa að skæruhernaðar-hætti. Og er fimmta herferð Sjank-Kai-sjeks gegn sovéthéruðunum hófst'1’ varð rauði herinn undir — og „gangan mikla" frá suðurhéruðunum til Norður-Kína hófst. Hún hófst í október 1934 og í októ- ber 1935 komust þeir fyrstu á áfangastað. En í janúar 1935 var sá miðstjórnarfundur hald- inn, er gerði upp sakirnar, yfirvann einangr- unarstefnuna og villur hennar og gerði Mao að formanni framkvæmdanefndar. Hin sjálfstceða stefna Maos hafði sigrað. Það var fjöldagrundvöllur hjá hændum fyrir sigursælli byltingu, ef henni var stjórnað af þjálfuðum, sjálfstætt hugsandi marxistum, sem kunnu að beita réttum en frumlegum pólitískum og hernaðarlegum bardagaaðferð- um. Með þeirri gerbreytingu sem verður á for- ustu flokksins á janúar-fundinum 1935 hefst líka sú nána gifturíka samvinna milli Mao Tse-mng og Chou En-lai, sem hélst óslitin meðan báðir lifðu. Þeir kunnu að taka tillit hvor til annars og ef draumsjónir skáldsins, heimspekingsins, siðbótamannsins Mao ætl- uðu síðar meir að stofna ríki byltingarinnar í hættu, þá var það raunsæi stjórnmálasnill- ingsins Chou, sem beindi hugsjónakraftinum inn á réttar brautir og forðaði frá óbætanlegu tjóni. — Eg átti þess kost, er ég kom til Kína 1957 í boði Kommúnistaflokksins að ræða ýtarlega við framkvæmdastjóra hans, Liu Sjao-sí, og spurði hann um fundinn 1935. „Hvað varð um Wan-Min og Lí Lí-san eftir janúar-fundinn?" Líu svaraði: „Við vildum reka þá úr miðstjórninni, en Mao formaður vildi það ekki, hann vildi að þeir væru þar kyrrir — og það varð." — Þessu kann að hafa ráðið kænska hjá Mao, því Wan Mín var almennt skoðaður sem fulltrúi Stalíns. En þar kemur og til greina umburðarlyndi, því Mao mun hafa verið ljóst að einangrun- arsinnar geta verið hinir bestu til starfa, ef þeir hlýða sjálfstætt hugsandi forustu, eins og þeir geta hinsvegar verið óþolandi og valdið óumræðilegri ógæfu, ef þeir fá að ráða. — Og Lí Lí-san var trúaður á mikið hlutverk Kína í framtíðarhreyfingu komm- únismans, þótt hann bæri ekki gæfu til að finna leiðina til að framkvæma það. — Og svo kom snilldin: „Gangan mikla” sem var í raun skynsam- lega skipulagt undanhald undan ofurefli, varð fyrir pólitíska snilli gerð að upphafi hinnar víðfeðmu þjóðfylkingar Kínverja gegn hemaðarinnrás Japana. Flutningur hersins frá suðri til norðurs var tengdur því að færa herstöðvar rauða hersins nær jap- anska innrásarhernum og skora á alla Kín- verja að fylkja liði gegn japanska hernám- inu. 3. ÞJÓÐFYLKINGIN GEGN JAPANSKA INNRÁSARHERNUM Nú gerist eitt undrið enn: Út frá Yenan, hellna- og höfuðborg komm- únistanna, berst áskorun um allsherjar þjóð- fylkingu allra Kínverja, líka Sjang-Kai-séks og Kuomintang. Sjang-Kai-sék hafði svikið kommúnistana í tryggðum 1927, hafið blóðbaðið mikla gegn þeim, verið og var enn erindreki og 171

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.