Réttur


Réttur - 01.08.1976, Qupperneq 38

Réttur - 01.08.1976, Qupperneq 38
ofureflingu embættisvaldsins — þessa áfenga valds, sem fær ósköp litla karla til að tútna út og halda sig vera mikla menn, þegar þeir eru komnir í háar stöður, — og embættis- vald var óhugnanlega landlægt í þessu eld- forna yfirstéttarríki. Abyrgðartilfinning hins samviskusama leiðtoga birtist í þessum á- hyggjum. — Lenin leið og undir svipuðum áhyggjum síðustu ár ævi sinnar.0) — „Menn ingarbyltingin" var árangurinn af þessum áhyggjum, uppreisnarsvarið gegn embættis- valdinu. En þar biðu öfgarnar, ofstækis- og einangrunarstefna „vinstri" kommúnistanna á næsta leiti, og aðeins jafnvægis-stjórnlist Chou En-lais fékk afstýrt því að hún leiddi til stjórnleysis og hruns. Vandamálið mikla, sem angrar sterka og heita siðgæðiskennd foringjanna miklu, Len- íns og Mao á síðustu árum þeirra er vanda- mál ríkisvaldsins (og flokksins) í þjóðfélagi sameignarinnar á fyrra skeiði þess, meðan ríkisvaldið enn er til — og voIdugt.7) Það vandamál er svo viðkvæmt að það fæst enn ekki rætt af alvöru í heimi sósíal- ismans. I því máli getum við upplifað allt — allt frá því að ríkisvaldið svo að segja umhverfi flokknum í höfuðstoð sína og til hins að stjórnlaus hreyfing æsku og alþýðu næstum umturni og grandi sjálfu ríkisvaldi alþýðunnar í ofstæki sínu.8) Frúmskilyrðið til þess að leysa þetta vanda- mál eru frjálsar umræður um það, fyrst og fremst í flokknum og verkalýðshreyfingunni, — m.a. það, sem eitt sinn var kallað sjálfs- gagnrýni flokksins.0) Það er hugsanlegt að sá „vestræni" kommúnismi verði á undan að ræða það mál og Ieggja drög að lausn þess, — vegna frelsiserfða alþýðunnar þar, —• þótt kommúnistaflokkar Sovétríkjanna og Kína hafi orðið á undan með sjálfa alþýðubylt- inguna, valdatökuna. Og það er ekki óhugs- andi að rauð Vestur-Evrópa kynni að verða á undan brautryðjendum byltinganna í því að ná þeim áfanga í þróun sósíalismans, þar sem frelsið tekur í vaxandi mæli við af ríkis- valdinu, kúgunarvaldinu, — þar sem alþýðan sjálf og öll tekur í vaxandi mæli við að stjórna, en læmr ekki lengur embættismenn sína, fulltrúa sína, stjórna fyrir sig. * o * Mao Tse-tung, Chou En-lai, Chu Te. Svo nálœgir af því þú hefur eitt sinn þrýst hönd þeirra sem félaga, mælt þá máli, fylgst með lífi þeirra í fjörutíu ár. Svo fjarlœgir, horfnir allir í senn, orðnir nöfnin gylltu á spjöldum sögunnar. Þjóð þeirra hefttr misst mikið, en þeir höfðu gefið henni mikið, hið mesta sem nokkur maður getur gefið þjóð sinni. Hvað verður um arfinn þeirra? Við skulum vona og óska að Kommún- istaflokki Kína og kínverskri alþýðu, auðnist að varðveita og ávaxta þann arf. En gangan eftir refilstigum ríkisvaldsins mun ekki síður en „gangan mikla" reyna á hugsjónatryggð- ina, siðferðisþrekið og viskuna, þótt á allt annan hátt sé — en þó framar öllu á al- þjóðahyggjuna án tillits til ríkishyggju stór- veldisins. E. O. SKÝRINGAR: Hér verður alls ekki rakin ævi Mao's, en bent á eftirfarandi rit á íslensku: „Réttur" birti 1950 allýtarlega frásögn af fyrri hluta ævi Mao's, bls. 7—17, tekin saman af Halldóri Stefánssyni og síðan skrifaði Magnús Torfi Ólafsson greinina „Sigur kínverskrar alþýðu“ 1951, bls. 18—31. 1950 kom út hjá Heimskringlu „Bókin um Kina“ eftir Sverri Kristjánsson, er fyrri hlutinn saga Kína, en síðari hlutinn sjálfsævisaga Mao’s, skráð af Edgar Snow, en þýdd af Sverri. — 1964 kom út bókin „Bak við bambustjaldið" eftir Magnús Kjartansson. 1959 hafði komið út „Byr undir vængjum. Ferðasaga frá Kína“ eftir Kristinn E. Andrésson. „Ritgerðir", úrval úr rit- 174
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.