Réttur


Réttur - 01.08.1976, Síða 41

Réttur - 01.08.1976, Síða 41
persneskra kaupmanna, en þeir stóðust ekki Portú- gölum snúning í sjóhernaði og urðu að láta í minni pokann fyrir þeim. Þannig tókst Portúgölum um skeið að ná fast að því einokunaraðstöðu í Austur- landaversluninni og nutu þeir þar þess að hafa verið brautryðjendur í könnun nýrra siglingaleiða frá Evrópu til Asíu. Það voru portúgalskir sæfarar sem opnuðu suðausturleiðina til Indlands, þ.e. leið- ina suður fyrir Afríku og það var þetta frumkvæði og brautryðjendastarf sem tryggði Portúgölum það forskot á aðrar verslunarþjóðir sem dugði þeim til þeirrar einokunaraðstöðu sem áður var getið. Rétt er að minna á að það er í tengslum við þessa verslun sína við Asíulönd að Portúgalar tryggja sér ítök og aðstöðu víðs vegar meðfram strönd Afríku, svo sem á Grænhöfðaeyjum, í Gineu, Angóla, Mósambíque og víðar. Bækistöðvar þeirra á þessum slóðum áttu fyrst og fremst að þjóna þeim tilgangi að tryggja samband Portúgala sjálfra við Asíu en jafnframt að bægja skipum annarra þjóða á brott. Hið mikla veldi Portúgala varð skammlíft og lágu til þess ýmsar ástæður. Skal hér aðeins bent á tvær. Portúgal var ekki fjölmennt land og þjóðin megnaði ekki til langframa að rísa undir því stór- veldishlutverki er hún hafði axlað, allra síst er hún þurfti að standa i síharðnandi samkeppni við aðrar verslunarþjóðir sem bæði voru fjölmennari og áttu þar að auki langtum traustari bakhjarl í blómlegum atvinnuvegum heimalandsins. Hin á- stæðan var sú ..herleiðing" sem Portúgalir lentu í árið 1580, er riki þeirra komst undir spænsk yfiráð sem stóðu allt til 1640, en allan þann tíma voru málefni ríkisins í megnasta ólestri. Enda þótt Portúgalir hefðu glatað stöðu sinni í Asíuversluninni, fór því fjarri að nýlenduveldi þeirra væri með öllu úr sögunni. Má miklu fremur segja að þungamiðja þess hafi fiust til Vestur- heims, til Brasilíu. Þar höfðu Portúgalir eignast itök þegar um 1500, en það er einkum á 17. öld 18. öld að þeir taka að arðnýta auðlindir hennar að marki. Þetta gerðist einkum með tvennum hætti: Annars vegar var stundaður plantekrubúskapur með vinnuafli þræla. Var einkum ræktað sykur, tóbak og þegar frá leið kaffi. Hins vegar var mikið grafið af málmum úr jörðu einkum gull. Undirstaða þessa atvinnurekstrar var stöðugur flutningur svertingja frá Afriku til þrælkunar vestanhafs. Var stærsti þrælamarkaður í Suður-Ameríku i borginni Bahía í Brasilíu. Vert er að undirstrika sérstaklega að á þessum tíma voru ítök Portúgala í Afríku þeim einkar mikilvæg vegna þrælaverslunarinnar. Gildir það einkum um Angólu og portúgölsku Gíneu. Þau urðu endalok á yfirráðum Portúgala í Bras- ilíu að Brasilía lýsti yfir sjálfstæði 1822 í sama mund og nýlendur Spánverja þar um slóðir brutust undan yfirráðum þeirra. Þótt Portúgalir misstu þannig tvö nýlenduveldi hvort á fætur öðru, fyrst á Indlandshafi og síðar í Brasiliu, var þó saga nýlenduveldisins Portúgals engan veginn öll, heldur gekk það með vissum hætti í endurnýjun lífdaganna á siðustu áratugum 19. aldarinnar í tengslum við kapphlaup hinna imperíalisku stórvelda um nýlendur í Afríku sem komst í algleyming upp úr 1870. Fljótt á litið virð- ist kannski sem Portúgalir hafi ekki haft mikla burði til að etja kappi við stórveldin og er það vissulega rétt. Það var einkum tvennt sem gerði Portúgölum kleift að færa út kvíarnar í Afriku meðan kapphlaupið um uppskiptingu álfunnar milli Evrópuveldanna stóð yfir. Þar kom til í fyrsta lagi að Portúgalir áttu þarna traust og gróin ítök sem hægt var að nota sem eins konar brúarsporð frek- ari útþenslu og svo hitt að þeir gátu spilað á mót- setningar og samkeppni stórveldanna sín á milli, einkum Breta og Þjóðverja, sem hvorir um sig gátu fremur sætt sig við yfirráð Portúgala heldur en gagnaðilans. Atburðarásin varð einkum hröð eftir Berlínar- fundinn 1884—1885, en þar var því slegið föstu að yfirráðatilkall eitt saman nægði ekki til að helga einhverju riki tiltekið landsvæði, heldur þyrftu að koma til raunveruleg yfirráð viðkomandi ríkis á hlutaðeigandi svæði. Það var ekki síst þessi á- kvörðun sem ýtti undir Portúgalsstjórn að skil- greina nánar yfirráðasvæði sitt og tryggja það. Meðal portúgalskra valdamanna vaknaði sú hug- mynd að tengja saman lönd Portúgala á vestur og austurströndinni og eignast þannig belti ný- lendna yfir álfuna þvera. Þessi áform strönduðu á algerri andstöðu Breta, sem voru sem óðast að færa út kvíarnar til norðurs frá Höfðanýlendunni í suðri. Áður en vikið verður að innlendri stjórnmála- þróun í Portúgal á siðari tímum langar mig að víkja að einum þætti í sambúð Portúgala við um- heiminn. Hér á ég við hin langvarandi bandalags- tengsl milli Englendinga og Portúgala, sem rekja má allt til 1654 og viðskiptatengsl sem fylgdu í kjölfarið, einkum Methuensamninginn frá 1703, 177

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.