Réttur


Réttur - 01.08.1976, Page 57

Réttur - 01.08.1976, Page 57
 pp* 811 ' . 1 Frá BSRB-þingi. 4. Að kjósa samtökunum forystu. Segja má að miðað við þær vonir sem menn höfðu gert sér hafi ráðstefnan tekist hið besta. Undirbúningur ráðstefnunnar hafði mætt á miðnefnd sem sett var á lagg- irnar á Staparáðstefnunni 1975. Formaður hennar var Andri Isaksson prófessor. Vann miðnefndin mjög gott starf. I henni voru tveir þingmenn Alþýðubandalagsins, þau Gils Guðmundsson og Svava Jakobsdóttir. Beitti nefndin sér fyrir Keflavíkurgöngunni glæsilegu sem sagt var frá í Rétti fyrr á árinu (2. heftinu). Hin nýja miðnefnd her- stöðvaandstæðinga er 12 manna og er hún þannig skipuð: Asmundur Asmundsson, Arni Sverrisson, Baldur Oskarsson, Bergljót Kristjánsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Gunnar-Andrésson, Hörður Zóphóníasson, Jónas Jónsson, Kefla- vík, Jónas Jónsson, frá Ystafelli, Olafur Gíslason, Stefán Jónsson og Vésteinn Ola- son. SJÓMANNASAMBANDIÐ Þing Sjómannasambands íslands var hald- ið 22.—24. okt. Róttækar samþykktir voru gerðar þar, sem sagt verður frá í næsta hefti, svo og miklar breytingar á stjórn. Jón Sig- urðsson baðst undan endurkosningu, en hann hefur verið formaður frá upphafi. Oskar Vig- fússon, Hafnarfirði, var kosinn formaður, Guðmundur M. Jónsson, Akranesi, varafor- maður, Jón Olsen, Keflavík, ritari. Nánar í næsta hefti. 193

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.