Réttur - 01.01.1988, Síða 10
Vinnandi menn og konur veröa aö taka
höndum saman um að skapa efnahagsleg-
an jöfnuð í landinu. Hér þarf enginn aö
svelta eöa verða að þræla 12-14 tíma á
sólarhring til þess aö öðlast viðunandi
lífskjör. Ef auðjöfrarnir eru látnir borga
eins og rétt er, og þjóðfélaginu stjórnað
af viti og réttlæti, þá er kúguninni létt af
alþýðu.
Én til þess verða konur og karlmenn,
er sjálf vinna hörðum höndum, að fylkja
sér saman í stjórnmálum. Því þá er þessi
fjöldi í meirihluta á Alþingi og getur
komið á réttlæti og jöfnuðu í þjóðfélagi
voru.
Eftirmáli
Auk þeirra rita, sem sértaklega snerta
baráttu kvenna fyrir kvenfrelsi og sósíal-
isma, skal bent hér á bækur, er snerta al-
mennt lífskjör og baráttu íslenskra
kvenna um aldir. Þær eru:
Björg Einarsdóttir: Úr ævi og starfi ís-
lenskra kvenna, 3 bindi, sem út komu á 7.
og 8. áratugnum ef ég man rétt.
Anna Sigurðardóttir: Vinna kvenna á
íslandi í 1100 ár. (Kvennasögusafnið).
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson (V.S.V.).:
Fimm konur. — Útgefið af Setbergi 1962.
— í þessari bók er m.a. margar góðar lýs-
ingar að finna á hörðum lífskjörum al-
þýðu og ekki síst kvenna á þessari öld og
hetjuskap kvenna sem karla í erfiðri lífs-
baráttu þá.
Jóhannes úr Kötlum: Konan, menning-
in og friðurinn. Fyrirlestur, birtur í
„Rétti“ 1975, 3. hefti, bls. 156-168.
10