Réttur


Réttur - 01.01.1988, Blaðsíða 27

Réttur - 01.01.1988, Blaðsíða 27
ensku útgerðarmennirnir í Hafnarfirði og þeir þýsku í „þýsku búðum“, sem enn bera það nafn sitt, rétt sunnan við núver- andi „ræningjakastala“: álverksmiðjuna. Þarna var ausið upp auðnum úr ís- lensku „nýlendunni“ — og stundum börðust ræningjarnir hvor við annan um aðstöðuna á þessum stöðum. Nokkuð mun hafa dregið úr þessum ránskap eftir að Ameríka fannst og ný tækifæri til ránskapar, en þó hélst ágang- ur við og skal ekki rakið hér.1 En 1901 var svo komið að enska auð- valdið kúgaði dönsku stjórnina til að leyfa veiðar allt upp að þrem mílum frá landi, en Danir fengu í staðinn „svína- kjötssamninginn", leyfi til sölu þess varn- ings í Bretlandi! En íslendingar voru bundnir til 50 ára — og björguðu stríðin tvö vafalaust miklu af þorskinum handa okkur, því 1914-18 og 1939—45 urðu Englendingar að láta þorskinn í friði, af því þeir voru þá að drepa menn. 1951 er samningnum frá 1901 sagt upp. Englendingar þorðu ekki í árás á ís- lendinga, þegar vér eftir stríð undir ríkis- stjórn Ólafs Thors 1952, færðum fisk- veiðilögsöguna úr þrem mílum í fjórar og girtum af flóana, svo Faxaflói, aðrir flóar og firðir urðu friðhelgir gagnvart útlend- ingum af því bannlína var þvert yfir þá frá ystu nesjum. Öll íslenska þjóðin stóð sameinuð bak við ríkisstjórnina, er þessi útfærsla fiskveiðilögsögunnar var gerð. Bretinn reyndi að brjóta þau lög á bak aftur með fisksölubanni í Bretlandi, en varð að gefast upp er Sovétríkin studdu íslendinga með miklum fiskkaupum.2 En íslendingum var lífsnauðsyn á frek- ari stækkun fiskveiðilögsögunnar. Þann 30. júní 1958 færði Lúðvík Jós- epsson sjávarútvegsmálaráöherra lög- söguna út í 12 mílur og skyldi hún koma til framkvæmda 1. september. Blöð íhalds og Krata voru óð gegn þessu til- tæki og báru „kommúnistum“ allt illt á brýn. En þjóðin stóð með Lúðvík og þeg- ar að 1. september kom og bresk herskip réðust inn í landhelgina, breyttu blöðin um tón. Það var ekki hægt að standa með Nato-árásarríkjunum opinberlega.3 í desember 1958 fór vinstri stjórnin frá og að ári liðnu mynduðu Ihald og Kratar stjórn, er samdi við Breta, — en 12 míl- urnar stóðu, en Bretar létu ríkisstjórnina lofa því að gera svona aldrei aftur.4 Sökin á þessum svikum er fyrst og fremst Guðmundar I. Guðmundssonar utanríkisráðherra, þótt Bjarni Ben. dræg- ist með, en iðraðist eftir því síðar. Alþýðubandalagið og Framsókn lýstu samninginn nauðungarsamning, til orð- inn undir breskum fallbyssukjöftum, kváðust ekki viðurkenna hann og afnema við fyrsta tækifæri. Það var raunverulega Unilever-hring- urinn breski sem stóð á bak við uppgjöf- ina gagnvart Bretum og ætlaði hann þá að fá Breta inn í Efnahagsbandalagið — og ísland með. Ráðgerði auðhringur sá að hafa þrjá útgerðarstaði á íslandi: Rif, Sandgerði og Tálknafjörð og gerast vold- ugasti útgerðaraðili á íslandi. En Bretar komust ekki inn í E.B. í þetta skipti, von auðhringsins brást. — Þess skal getið að 1) Sjá bók Björns Þorsteinssonar: 10 Þorskastríð. 2) Sjá „lsland í skugga heimsvaldastefnunnar, bls. 184. 3) Sjá rit Magnúsar Kjartanssonar: „Átökin uni landhelgismálið 1958. Sjá einnig „ísland í skugga ' heimsvaldastefnunnar", bls. 185-190. 4) Sjá áfram í riti Magnúsar Kjartanssonar og bókinni „lsland í skugga heimsvaldastefnunnar". 27

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.