Réttur - 01.01.1988, Blaðsíða 16
Minning
Guðrún Porbjörg Bjarnadóttir
Fœdd 10. maí 1917, dáin 17. janúar 1988
Guðrún Þorbjörg var kona Eðvarðs
Sigurðssonar í Litlu-Brekku í Reykjavík,
þau bjuggu í Stigahlíð 28, í ástríkri sam-
búð tólf síðustu æviár hans. Þegar kynni
þeirra hjóna hófust á árinu 1970, hafði
syrt að í lífi Eðvarðs, systir hans Guðrún
Sigurðardóttir sem svo til ævilangt hafði
búið í Litlu-Brekku og alið þar upp börn-
in sín, var dáin, hún lést í árslok 1965, og
móðir hans Ingibjörg Jónsdóttir dó á ár-
inu 1966 eftir 60 ára búsetu í Litlu-
Brekku. Eðvarð stóð einn eftir í kotinu
sem hafði verið heimili hans frá fæðingu,
heimili og hugljúfur griðastaður. Hann
stóð einn eftir af heimilisfólkinu með
þann hjartasjúkdóm sem hann bar, sjúk-
dóm sem aldrei gefur grið og varð hans
aldurtili þann 9. júlí 1983.
Með komu Guðrúnar Bjarnadóttur inn
á lífsveg Eðvarðs, birti aftur til, sjálf var
hún ímynd sólargeislans, svo björt og hlý
á hverri stund og Eðvarð naut af alhug
16