Réttur - 01.01.1988, Page 25
út hjá „Heimskringlu“ 1967 og mun nú
löngu uppseld. Alveg sérstakar þakkir á
hann fyrir þann fjölda mynda af því al-
þýðufólki er brautina ruddi. Það væri
þörf á að gefa þá bók aftur út og eins að
fá jafn samviskusaman og dugandi mann
sem Gunnar til að rita nokkurt framhald.
Gunnar hafði sjálfur reiknað með öðru
bindi: 1934-1967, en þá voru liðin 80 ár
frá upphafi verkalýðshreyfingar á íslandi.
En því miður varð ekki af því. — Þessi
bók er yfir 200 síður að stærð í stóru
broti.
Hér hefur aðeins verið sagt frá litlum
þætti í miklu lífsstarfi Gunnars. Kennslu-
störf hans í 30 ár, ritun 50 annarra rita,
skipulagsstarf hans, hefur til allrar ham-
ingju verið rætt annarsstaðar. En íslensk-
ir sósíalistar eiga honum sérstakar þakkir
að gjalda, sem hér er lögð aðaláhersla á.
Hann var eitt tímabil þingmaður okkar
og vann og að framboðsmálum auk alls
annars.
Gunnari M. Magnúss eru færðar hjart-
ans þakkir fyrir allt hans mikla starf. Og
afkomendum hans eru sendar innilegar
samúðarkveðjur, en konu sína, Kristrúnu
Eiríksdóttur, missti hann 1970, en þau
áttu 3 syni.
E.O.
25