Réttur


Réttur - 01.01.1988, Side 26

Réttur - 01.01.1988, Side 26
Eru fornir og nýir fjendur íslands að taka höndum saman um að eyðileggja land vort og þjóð? Aðrir ræna Islandi undir herstöö, — hinir íhuga að ræna oss fiskveiöi- landh elginni Það eru óhugnanleg örlög, sem nú blasa við Islandi og íslenskri þjóð. Bandarískt hervald hefur nú í 47 ár haldið landi voru herteknu og hyggur nú á meiri og dýrari herfyrirtæki en nokkru sinni fyrr — og sér enginn fyrir endann á þeim yfirgangi meðan sá innrásarher er látinn þrífast hér eða þrífst hér í krafti ofbeldis síns og yfirgangs. — Nýjustu hernaðartækin, sem innrásarherinn nú ætl- ar að ráðast í eru bygging þriggja ratsjárstöðva, er kosta skulu 11 milljarða króna að minnsta kosti. — Þetta bætist við eitrandi olíu á Keflavíkurflugvelli og að- stöðu til kjarnorkuhernaðar. Við þetta bætist nú að fornir fjendur Islands, enskt og þýskt útgerðarauðvald hyggst með aðstoð Efnahagsbandalagsins ræna fiskveiðilandhelgi vorri, þurrausa hana svo sem þeir forðum reyndu og skilja íslenska þjóð eftir sem þræla hernað- arstórveldanna, að svo miklu leyti sem Islendingar fá að búa í landi sínu. Og svo skal alin hér upp yfirstétt, sú auðugasta sem á Islandi hefur lifað, sem á allan sinn auð undir hervaldinu og ræður voldugum blöðum, sem þjóna her- náminu og ætla sér að gera Islendinga að hlýðnum þýjum þess, er kalli ræningja landsins „verndara“ þess og hugsanlega ræningja íiskimiðanna „bandamenn“ Is- lendinga. I. Fiskimiðin Það er best að rifja upp það sem fjærst er í tímanum og hættast við að fólk gleymi. Strax á 15. öld tóku enskir og þýskir út- gerðarmenn að setjast hér að og ræna fiskiinið vor, sem þá voru mjög auðug, ekki síst Faxaflóinn. Þar settust þeir að, 26

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.