Réttur - 01.01.1988, Qupperneq 32
Grímur við setjarakassann
ans, Þorvarðar Þorvarðarssonar, til að
vinna þetta blað. Vann hann allt, sem
gera þurfti: skrifa blaðið, setja það og
það var þá gert með gömlu aðferðinni að
týna upp hvern bókstaf úr sínum kassa,
prenta það síðan og koma því út. Mun
slíkt einstakt við blaðaútgáfu og hélt
Grímur þessu áfram árum saman. Blaðið
hét „Lýðvinurinn“ og var í senn hið rót-
tækasta og myndarlegasta að öllum frá-
gangi, þótt ekki væri stórt, en hinsvegar
vel myndum skreytt. Og auðvitað var
þetta allt sjálfboðavinna hjá Grími þessi
mörgu ár. Var slíkt títt hjá íslenskum
kommúnistum þá.
1956 varð Grímur ritstjóri „Æskunn-
ar“ og gegndi því starfi til 1. janúar 1985.
Fyrstu árin var hann ritstjóri ásamt öðr-
um og var jafnframt verkstjóri í setjarasal
prentsmiðjunnar. Ritstjórnarstarfinu
gegndi hann til 1. janúar 1985. Þá fór
heilsa hans að bila, enda hafði hann aldrei
hlíft sér í hinu margþætta starfi, sem á
honum hvíldi.
6. apríl 1944 giftust þau Laufey Magn-
úsdóttir verkamanns í Reykjavík og
Grímur. Bjuggu þau allan tíma sambúðar
sinnar að Njálsgötu 42, þar sem Grímur
bjó alla ævi. Laufey lifir mann sinn, en er
sjálf mjög heilsutæp. Sigurjón Birgir Eng-
ilberts er sonur þeirra.
Grímur var virkur í hinum róttæku
samtökum á íslandi, Kommúnistaflokkn-
um og Sósíalistaflokknum — og æsku-
lýðssamtökum þeirra, meðan aldurinn
krafðist þess.
Grímur Engilbcrts er kvaddur mcð
virðingu og þökk af hans gömlu félögum
og innilegar samúðaróskir sendar hans
nánustu sem og vinum hans og samherj-
um.
Einar Olgeirsson.
32