Réttur - 01.01.1993, Blaðsíða 5
Sigríður Þorvarðsdóttir.
Einar Olgeirsson.
fannst um efnið og höfundinn. Þarna voru
fagurbókmenntir, heimspekirit, ævisögur
og sagnfræðirit á ensku, dönsku og
þýsku. Að loknu stúdentsprófi 1921 fór
hann með þetta veganesti í háskólanám
erlendis og kom heim 1924.
Strax eftir heimkomuna kastar hann
sér í strauminn. Næstu ár urðu mjög
stormasöm, allt fram til 1938. Á þessu
tímabili vekur hann verklýðshreyfinguna
af svefni, gerist sjálfur formaður Verka-
mannafélags á Akureyri, stofnar Jafnað-
armannafélagið, Kommúnistaflokkinn,
ræðst í útgáfu RÉTTAR og fer inn á Al-
þingi í hatrömmum kosningaslag 1937
sem kjördæmakjörinn þingmaður í
Reykjavík og tekur með sér tvo uppbót-
arþingmenn út á 8.5% greiddra atkvæða
á landsvísu. Á þessu tímabili reið heim-
skreppan yfir með sínar ógnir. Með
óþrjótandi elju og starfsorku talaði Einar
Olgeirsson kjark í verkamenn og gaf
þeim von um lausnir á vandamálum
heimilanna byggðum á úrræðum sósíal-
ismans.
Árið 1938 stofnaði Einar Sósíalista-
flokkinn, sem var fádæma afrek í samein-
ingarmálum vinstri manna, og gaf nágranna-
þjóðunum þar með glæsilegt fordæmi rétt
áður en heimsstyrjöld nazisntans brast á.
Galdrastafurinn, sem Einar sveiflaði var
sá, að sameina hina faglegu og pólitísku
arma verklýðsstéttarinnar í eitt reginafl
til átaka í stjórnmálabaráttunni.
5