Réttur - 01.01.1993, Blaðsíða 55
Ólafur Rafn Einarsson.
Ásgeir Blöndal Magnússon.
Nexö og Upton Sinclair, ári síðar grein
eftir Tschekov og þýðing, með inngangi
Brynjólfs Bjarnasonar, á Athugasemdum
um Gotha-Programmið, eftir Karl Marx.
Annað hefti ársins 1931 er þýðing á Launa-
vinnu og auðmagni, eftir Marx. Talsvert
fleira er að sjálfsögðu þýtt og ritað um
Karl Marx og Friedrich Engels, meðal
annars eftir Lenin.
En fleiri erlendir höfundar koma við
sögu: Berthold Brecht, Maxim Gorki,
Anatole France, Malraux, Erskine Cald-
Well, Ilja Ehrenburg og jafnvel Bob Dyl-
;>n. En þar gefur einnig að líta Krustjoff
°g Malenkoff, Beria og Stalin, Bucharin
°g Dimitrioff, Mikojan og Malenkof,
Mao og Ho Chi Min, Ernst Thalmann og
Kathe Kollwitz, Karl Liebknecht og Rosu
Luxemburg, Passionöra og Önnu Seg-
hers, Togliatti og Berlinguer, Ernst Fi-
scher og Paul Sweezy, J.D. Bernal og Isa-
ac Deutscher, Leo Huberman og Ernst
Toller, Arthur Köstler og Franz Fanon,
Georg Lucás og Maurice Dobbs, Luis
Corvelan, Perry Anderson og John Le-
wis, Herbert Marcuse og Angelu Davis,
Allende, Che Guevara og Castro, Victor
Jara og Violettu Parra, Neruda og Nelson
Mandela, svo einhverjir séu til sögunnar
nefndir. Lesendur Réttar voru sem sagt í
tengslum við hinn alþjóðlega marxisma.
Víðsjá, yfirlit um erlenda viðburði á
55