Réttur - 01.01.1993, Blaðsíða 85
heilum hug. Með tímaritinu Rétti vann
Einar Olgeirsson sér það nafn í sögu ís-
lands sem mun lifa meðan land byggist og
söguþjóðin leitar sannleikans í rituðu
máli. Einar var frumkvöðull að krafta-
verki aldarinnar, sem hefur lyft almenn-
ingi frá ömurlegri örbirgð til mannsæm-
andi lífskjara, uppreisn alþýðu, svo að
menning og mennt varð almennari en áð-
ur þekktist. Má líkja þeirri höfuðbreyt-
ingu við göngu frá myrkri til ljóss. Réttur
undir ritstjórn Einars Olgeirssonar og
þeirra manna annarra sem gáfu þar nafni
sínu gildi og virðingu almennt, á þar stór-
an hlut að máli, jafnframt því að vera
hvetjandi aflgjafi verkalýðsbaráttunnar.
Og enn má geta þess sem gefið hefur
Rétti kraftinn til menningarlegra athafna
og umsvifa, sósíalismans, en allt það sem
skrifað var um sósíalisma í Rétti varð
okkur almennt skóli, sem við sóttum
mennt okkar til í áratuga baráttu um feg-
urra mannlíf, baráttu sem enn er í fullu
gildi og á sér engan enda.
Einar hefur með útbreiðslu sósíalism-
ans gefið þjóð sinni hugþekkt og göfugt
verk að vinna, sem á eftir að bera ávöxt,
þar sem öll mannréttindi eru að fullu virt.
Tryggvi Emilsson, var wn áratuga
skeið forystumaður í verkalýðshreyfing-
unni, bœði á Akureyri og í Reykjavík.
Hann átti samleið með Einari Olgeirs-
syni, ekki einasta í þjóðfélagsmálum
heldur einnig í tímalegum skilningi:
Tryggvi fœddist í október 1902, að
Hamarkoti við Akureyri, en lést í Reykja-
vík í mars 1993. Síðustu tvo áratugina
eða svo helgaði hann sig ritstörfum og
hlaut mikla viðurkenningu fyrir. Pekkt-
ust verka hans er sjálfsœvisagan, sem út
kom í þremur bindum, 1977-1979: Fá-
Réttur. 1. hefti VI. árg.
tœkt fólk, Baráttan um brauðið og
Fyrir sunnan. Auk þess kom út eftir
hann ein barnabók, Pétur prakkari og
hestaþjófarnir, 1991, tvœr Ijóðabœkur,
Ríniuð Ijóð, 1967 og Ljóðmœli, 1971
og fjórar skáldsögur: Kona sjómanns-
ins, 1981, Sjómenn og sauðabœndur,
1988, Blá augu og biksvört hempa,
1990 og Konan sem storkaði örlögun-
um, 1991.
85