Réttur - 01.01.1993, Blaðsíða 39
af því að það var utanþingsstjórn sem sat
þessa dagana. Þingmenn hafa þess vegna
haft frelsi! Atkvæði falla alla vega:
Tillaga Stefáns Jóhanns um aldur for-
seta var felld með 7 atkvæðum gegn 5.
Tillaga ríkisstjórnarinnar (45 ár) var
fekin aftur.
Tillaga Brynjólfs Bjarnasonar var felld
naumlega með 6 atkvæðum gegn 5.
Tillaga Sveinbjörns Högnasonar var
felld með 6 atkvæðum gegn 4.
Þar með hafði nefndin fellt tillögur frá
óllum og eftir stóð að lágmarksaldur for-
setans skyldi vera 35 ár.
5. febrúar er enn fundur, þriðja daginn
1 röð. Þar var fyrst farið í 14 gr. Þar stóð
' 1. málslið:
„Ráðherrar bera ábyrgð á embættis-
rekstri sínum.“
Stefán Jóhann flutti þessa tillögu að í
staðinn kæmi:
vRáðherrar bera ábyrgð á stjórnar-
framkvæmdum öllum.“ Þessi tillaga var
Samþykkt með 7 atkvæðum gegn 3.
Einar Olgeirsson flutti eftirfarandi
^reytingartillögu við 20. gr:
„Með lögum má undanskilja ákveðna
embættismannaflokka, auk embættis-
'T'anna þeirra sem taldir eru í 61. gr.“
Þessi tillaga var samþykkt með 8 sam-
Eljóða atkvæðum.
23. gr. kom þá til meðferðar og í frum-
varpinu stóðu þessi orð:
»Forseti lýðveldisins getur frestað
*undum Alþingis tiltekinn tíma, þó ekki
lengur en tvær vikur og ekki nema einu
s*nni á sama þingi.
vTillaga Einars var sú að í stað orðanna
’’Sarna þingi“ kæmi „á ári“ og var tillaga
Einars samþykkt með 8 samhljóða at-
^væðum.
24. gr. stjórnarskrárinnar fjallaði um þing-
r°lsheimildina °g stóð þar í frumvarpinu:
„Forseti lýðveldisins getur rofið al-
þingi. Skal þá láta nýjar kosningar fara
fram svo fljótt sem föng eru á, enda komi
alþingi saman eigi síðar en 8 mánuðum
eftir þingrof.“
Þessu vildi Stefán Jóhann breyta og
flutti þessa breytingartillögu:
„Forseti lýðveldisins getur rofið alþingi
og skal þá stofnað til nýrra kosninga áður
en tveir mánuðir séu liðnir frá því, er það
var rofið, en alþingi stefnt saman eigi síð-
ar en 8 mánuðum eftir að það var rofið.“
Við þessa breytingartillögu kom fram
breytingartillaga frá Einari Olgeirssyni
um að í stað orðanna „en alþingi stefnt“
komi „enda komi alþingi“. Var sú breyt-
ingartillaga samþykkt með 11 samhljóða
atkvæðum og breytingartillaga Stefáns
Jóhanns síðan samþykkt svo breytt með 6
atkvæðum gegn fjórum. Tekið skal fram
að í fundargerðum samvinnunefndarinn-
ar er þess yfirleitt aldrei getið hverjir það
eru sem greiða atkvæði með eða á móti —
aðeins birtar tölurnar.
Á næsta fundi var afgreidd 11. gr. sem
fjallar um það hvernig forseti lýðveldisins
verði settur frá embætti og hvernig að
henni skuli staðið svo og um að forseti
lýðveldisins beri ekki ábyrgð á stjórnarat-
höfnum.
Á 7. fundi nefndarinnar var fjallað um
5. gr. sem kveður á um forsetakosningar
og um meðmælendur með forsetafram-
bjóðanda. Einar flutti þessa tillögu sem
var samþykkt:
„Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst
1500 kosningabærra manna og mest
3000.“ Tillaga ríkisstjórnarinnar kom
ekki til atkvæða.
Þá kom til meðferðar tillagan um þjóð-
kjör forseta. Eftir var útfærslan á kjöri
forseta. Stefán Jóhann flutti þá tillögu að
hver kjósandi hefði leyfi til að kjósa for-
39