Réttur - 01.01.1993, Side 57
Jóhannes úr Kötlum.
Brynjólfur Bjarnason.
(Konur á vinnumarkaði, 1973), Pál Berg-
þórsson (Kjarnorkuvetur, 1985), Hjörleif
Guttormsson (Náttúruvernd, 1971), Sig-
úrjón Pétursson (Að stjórna eða vera
stjórnað, 1972), Öddu Báru Sigfúsdóttur
(Um almannatryggingar, 1969), Helga
Guðmundsson (Æskan og atvinnuleysið,
1969), Líneyju Skúladóttur (Stúdenta-
hreyfingin í Frakklandi og íslenskir stúd-
entar, 1969), og þannig mætti lengi áfram
telja: Gest Guðmundsson, Tómas R.
Einarsson, Sigurð Magnússon, Albert
Einarsson, Arnmund Bachman, Soffíu
Guðmundsdóttir og svo framvegis ... fjöl-
^narga hér til viðbótar síðasta áratuginn.
'Ýmsir hagfræðingar hafa komið við
sögu Réttar. Þannig má sjá greinar eftir
Eenjamín Eiríksson (1939) og Jónas Har-
alz (1946), en þeir sneru fljótt baki við
hugmyndafræði vinstri manna. Hið sama
var ekki hægt að segja um Hauk Helga-
son (Tveir heimsmarkaðir, 1953, Efta-
Finnefta, 1967, Dollarakreppa, 1973),
Hjalta Kristgeirsson (Parísarkommúnan,
1961, Vinnugildi og gildisauki, 1964),
Þröst Ólafsson (Skólakerfi og hugmynda-
fræði, 1969, Um Rósu Luxemburg, 1971,
Kreppurnar tvær, 1976, Stjórnlist sósíal-
ískrar hreyfingar - Alþýðubandalagið,
1977), eða Guðmund Ágústsson. Á síðasta
áratug Réttar bregður fyrir nöfnum þeirra
Ara Skúlasonar og Birgis Bjöms Sigurjóns-
sonar. Merkar greinar um Thatcherismann
og efnahagskreppu (1986) birtust eftir
ívar Jónsson, og Ragnar Árnason skrifaði
um Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinn-
ar og kjaramál launþega (1982) og ísland
og óheftar fjármagnshreyfingar (1989).
57