Réttur - 01.01.1993, Blaðsíða 82
TRYGGVI EMILSSON:
Tímaritið Réttur <.. k ^
Einar Olgeirsson varð eigandi og ritstjóri Réttar á árinu 1926, þá nýkominn af
Vífilstöðum, þar sem hann hafði verið sjúklingur. Stofnandi Réttar og ritstjóri
fyrstu tíu árin eða frá 1916 var Þórólfur Sigurðsson í Baldursheimi í Skútustaða-
hreppi. Á þeim árum hafði Einar Olgeirsson skrifað allnokkrar greinar í Rétt, og
átti því snemma nokkur ítök í tímaritinu sem meðfram varð til þess að hann varð
eigandi að Rétti og jafnframt ritstjóri. Allt frá þeim tíma í full 65 ár var Einar rit-
stjóri Réttar og útgefandi, lengst af í óbreyttu formi og með svo til sömu yfir-
skrift, Tímarit um félagsmál og mannréttindi, eins og til var stofnaö.
Það sem hér er skrifað eiga að vera örfá kveöjuorð til Einars vegna Réttar og
þess hlutverks sem hann hefur gegnt.
Réttur var gefinn út í óbreyttu formi
frá sinni fyrstu tíð, en á árinu 1967 varð
sonur Einars, Ólafur Rafn, frumkvöðull
að nýsköpun Réttar að formi og inni-
haldi. Fátt eitt verður hér nefnt af ævi-
starfi Einars sem er að flestu leiti einstætt
vegna hæfileika hans og atgervis og vegna
þeirrar miklu orku sem hann bjó yfir sem
ræðumaður og ritstjóri, fræðimaður og
starfsmaður. Honum féll aldrei verk úr
hendi.
Einar var fæddur á Akureyri 14. ágúst
1902. Faðir hans var Olgeir Júlíusson,
bakari, frá Barði á Akureyri. Olgeir var
meðal stofnenda Verkamannafélags Ak-
ureyrarkaupstaðar 1897 og var þá í stjórn
þess. Þegar Einar kom heim til Akureyr-
ar frá námi 1924 hófst hann strax handa
um að byggja upp sósíalísk fjöldasamtök
á Akureyri og varð mikiö ágengt. Jafn-
framt skipulagði hann fjöldahreyfingu
verkalýðssamtakanna. Hann átti mestan
og virkastan þátt í að Verklýðssamband
Norðurlands var stofnaö 1925, með fjór-
82