Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 13. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÚTSALA
N†TT
KORTATÍMABIL
Strákarnir
fá liðsauka
Lesbók | Gunnar Gunnarsson og Aðventa Kalli klikk Lifun | Leikræn
lýsing Syndsamleg hollusta Börn | Smásögur Þrautir Íþróttir |
Öruggt gegn Katar Kæra Keflavík Allt um enska boltann
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Ekta
íslensk
fönn“
Þeir Arnar Freyr Thoroddsen og Daníel
Freyr Albertsson voru ánægðir með að
komast á bretti og vona að snjórinn, sem nú
loksins er kominn í fjöllin, haldist.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti vill að fundin verði friðsamleg
lausn á deilunni um kjarnorkuáætl-
anir Írana, en írönsk stjórnvöld til-
kynntu í vikunni að þau hygðust hefja
kjarnorkurannsóknir á ný og gengur
sú ákvörðun gegn samningum við Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunina. Bush
sagði hins vegar í gær ljóst að heim-
inum stæði mikil ógn af því ef Íran
kæmi sér upp kjarnorkusprengju.
Bush fundaði í gær með Angelu
Merkel, nýjum kanslara Þýskalands,
í Hvíta húsinu en Þjóðverjar, Bretar
og Frakkar hafa haft forystu um við-
ræður við Írana. Bush sagði að
Bandaríkjamenn og Evrópumenn
væru sammála um að „óviðunandi“
væri ef Íran tækist að smíða kjarn-
orkuvopn og að „rökrétt“ væri að mál
þeirra færu nú fyrir öryggisráð SÞ.
Stjórnvöld í Íran fullyrða að kjarn-
orkuáætlanir þeirra miði einungis að
því að framleiða raforku. Ráðamenn á
Vesturlöndum eru hins vegar sann-
færðir um að Íranar stefni að gerð
kjarnorkusprengju og í fyrradag
mæltust utanríkisráðherrar Frakk-
lands, Þýskalands og Bretlands til
þess að máli þeirra yrði vísað til ör-
yggisráðsins; en ráðið hefur þann
kost að samþykkja viðskiptaþvingan-
ir gagnvart Íran. Utanríkisráðherra
Írans, Manouchehr Mottaki, brást
hart við þessum tilmælum í gær og
sagði að Íran myndi hætta öllu sam-
starfi við Evrópumenn ef málið kæmi
til kasta öryggisráðsins.
„Rökrétt“ að öryggis-
ráðið fjalli um Íransmál
Reuters
Nýr kafli í samskiptum
VEL fór á með George W. Bush og Angelu Merkel í gær. Þetta er fyrsta
heimsókn Merkel í Hvíta húsið síðan hún varð kanslari. Samskipti Ger-
hards Schröders, forvera Merkel, og Bush þóttu stormasöm og bæði Mer-
kel og Bush sögðu að nýr kafli væri nú hafinn í samskiptum þjóða þeirra.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
MIKIÐ var að gera á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi í gær
vegna hálkuslysa hjá börnum og
fullorðnum. Dagurinn hófst með
mjög þungri færð á götum borg-
innar eftir næturlanga snjókomu.
Um 30 árekstrar urðu í gær, að
sögn lögreglu, og urðu minnihátt-
ar slys á fólki að undanskildu al-
varlegasta slysinu á Sæbraut þar
sem strætisvagnastjóri lést í
árekstri við vörubíl.
Tugir manna leituðu á slysa-
deild. Hafði fólk ýmist dottið og
meitt sig mismikið. Sumir hlutu
mar og tognanir en aðrir heila-
hristing, vægan sem mikinn og
jafnvel beinbrot. Talsvert var um
að fólk hefði misst stjórn á bílum
sínum og meitt sig í árekstrum, að
sögn læknis á slysadeild. Lækn-
arnir vara fólk við slysahættu
samfara slæmri færð næstu daga.
Svo heppilega vildi til í gær að
slysadeildin var óvenjulega vel
mönnuð læknum og gekk því vel
að liðsinna fólki. Deildin verður
hins vegar ekki eins vel mönnuð í
dag, laugardag og gæti því orðið
lengri bið en var í gær.
Annríki vegna hálkumeiðsla
Skíðasvæðið í Blá-
fjöllum opið í dag
GERT er ráð fyrir því að skíðasvæð-
ið í Bláfjöllum verði opið í dag og
næstu daga segir Grétar Þórisson,
forstöðumaður skíðasvæðanna á
höfuðborgarsvæðinu. Lyftur verða
opnaðar kl. 10 og verða opnar til kl.
18. „Snjórinn er þurr og léttur; ekta
íslensk fönn,“ sagði hann við Morg-
unblaðið í gærkvöld. Hann gerir ráð
fyrir að átta til tíu lyftur verði opn-
ar í dag. Töluvert snjóaði í fjöllin í
fyrrinótt en ekki þó nægilega til að
opna megi skíðasvæðið í Skálafelli.
Friðjón Axfjörð Árnason, verk-
efnisstjóri skíðasvæðanna, segir að
uppgræðsla á skíðasvæðunum, sem
unnin var á vegum samtakanna
Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs
í tilteknum brekkum, hafi skilað
góðum árangri. „Uppgræðslan hef-
ur hjálpað mikið og meðal annars
losað við grjótvandamálið sem hef-
ur verið þegar það er þunnur snjór,
en þá þurfum við að nota þunga-
vélar til að ná honum úr brekk-
unni,“ segir Friðjón. „Það er okkar
draumur að geta klætt brekkurnar
svona. Þetta dregur líka úr vatns-
rennsli í vatnsveðrum, en það getur
grafið upp brekkurnar. Þessi upp-
græðsla gagnast skíðasvæðunum
vel.“
Varsjá. AFP. | Pólsk nunna kom ný-
verið upp um spilltan lögreglumann
sem hafði boðist til að þegja yfir af-
broti hennar gegn greiðslu en nunn-
an hafði tvívegis lent í kasti við lögin.
Saksóknarar greindu frá þessu í gær
en gefin hefur verið út ákæra á
hendur lögreglumanninum.
Nunnan gerðist fyrst brotleg við
lögin í mars 2004 en þá settist hún
drukkin undir stýri á dráttarvél
einni og ók henni á kyrrstæða bifreið
fyrir utan nunnuklaustur Benedikt-
ínareglunnar, sem hún tilheyrir.
Nunnan braut síðan aftur af sér ári
síðar þegar hún ók bifreið á ofsa-
hraða og endaði úti í skurði.
Nunnan vildi komast hjá því að
seinna brot hennar spyrðist út og
hét lögreglumaðurinn því að sjá til
þess – gegn því að hún greiddi hon-
um u.þ.b. 60.000 ísl. kr. Þegar hann
hins vegar gerðist svo kræfur að
krefja nunnuna um aðra eins
greiðslu ákvað hún að tilkynna um
framferði hans.
Síbrotanunna klagar
lögreglumann
Lesbók, Lifun, Börn og Íþróttir
Atli Þór Albertsson og Gunnar Sig-
urðsson bætast í hópinn Menning