Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rúrí Köllun, þörf eða klikkun  „Ef allar stelpur eiga að sitja stilltar í pífukjól og óhreinka ekki skóna sína hef ég örugglega verið óþekk.“ á morgun SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ segir alls ekki standa til að vegagerðar- menn fái víðtækt lögregluvald með nýju frumvarpi til breytinga á um- ferðarlögum, þrátt fyrir að frumvarp- ið heimili starfsmönnum vegagerðar að banna áframhaldandi för ökutækis ef grunur er um brot á lögum sem varða aksturs- og hvíldartíma öku- manna, farm og hleðslu, og ástand og þunga ökutækja. Landssamband lög- reglumanna hefur gagnrýnt fyrirhug- aðar breytingar og segir frumvarpið gefi vegagerðarmönnum víðtækt lög- regluvald. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneyt- isstjóri samgönguráðuneytisins, segir það rétt að Landssambandi lögreglu- manna hafi ekki verið sent frumvarp- ið sérstaklega til umsagnar. Hins veg- ar hafi það verið sent ríkislögreglu- stjóra og lögreglunni í Reykjavík og fleiri aðilum og einnig hafi það verið sett á netið og óskað eftir umsögnum þar. Þá hafi ráðuneytinu lengi verið ljós andstaða LL á umræddu ákvæði Stöðvunarheimild þegar fyrir hendi Ragnhildur bendir á að í núgildandi umferðarlögum sé vegagerðarmönn- um þegar heimilt að stöðva bíla en viðbótin nú felist í að heimilt verði að banna frekari för til að hindra áfram- haldandi brot þar til lögregla kemur á vettvang. Skal ökumaður hlíta því banni. „Með þessu frumvarpi var aldrei ætlunin að færa Vegagerðinni neitt rannsóknarvald eða heimildir lög- reglu sem lögreglan hefur samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála og lögreglulögum o.s.frv.,“ segir Ragn- hildur. „En hinsvegar er mjög mik- ilvægt að vegaeftirlitsmenn fái þessa heimild ef umrætt ákvæði að ná til- skildum árangri. Markmiðið er að auka umferðaröryggi,“ segir hún og leggur áherslu á gott samstarf Vega- gerðarinnar og lögreglu á grundvelli umferðaröryggisáætlunar sam- gönguráðuneytis. Verið er að fara betur yfir frumvarpið með dómsmála- ráðuneytinu að sögn Ragnhildar og er búist við niðurstöðu eftir helgina. Ragnhildur tekur fram að eftirlits- heimild Vegagerðarinnar nær aðeins til þátta á borð við aksturs- og hvíld- artíma, þunga og ástand ökutækja og hleðslu og frágangs farms. Ragnhild- ur tekur jafnframt fram að sam- gönguráðherra mun samkvæmt frumvarpinu setja reglur um hæfi og þjálfun eftirlitsmanna, einkennisbún- að þeirra, skilríki og framkvæmd eft- irlitsins. Markmiðið að auka umferðaröryggi Samgönguráðuneytið segir ekki standa til að veita Vegagerðinni lögregluvald FRAMTÍÐIN, málfundafélag Menntaskólans í Reykjavík, hélt í gær annað árið í röð Gleði til góð- gerða, en þar hétu nemendur á aðra nemendur skólans fyrir að leika ýmiss konar kúnstir. Meðal atriða voru maraþon- tónlistarleikur nokkurra tónlistar- manna en einnig brá einn nemandi sér í gervi Kristjáns „heiti ég“ Ólafssonar sem þekktur eru úr Spaugstofunni og gekk um skól- ann í líki hins þjóðþekkta fjöl- miðlamanns allan daginn. Þá hljóp nemandi fáklæddur kringum Reykjavíkurtjörn við góðar und- irtektir. Einhverjir töluðu spænsku allan daginn og aðrir voru bundnir saman á höndum og fótum og gengu þannig í röð. Þá klæddi Sig- urlaug Elín Þórhallsdóttir, í 5. bekk A, sig í 101 stuttermabol og vakti með því uppátæki mikla að- dáun og kátínu samnemenda sinna. „Ég fæ ekki innilokunarkennd,“ segir Sigurlaug. „Við pössuðum okkur á að klippa alla bolina að- eins í hálsmálið svo ég myndi ekki kafna, en ég var orðin dálítið blóð- laus í handleggnum eftir þetta.“ Alls safnaði Sigurlaug 12.000 krónum í áheitum með uppátæki sínu og lagðist það í pott félagsins. Í fyrradag virkjuðu nemendur kennara sína í leikinn og mynduðu kennarar lið gegn keppnisliði skól- ans í Gettu betur. Hétu samkenn- ararnir á lið kennara að sigra Gettu betur liðið, en Gettu betur liðið marði sigur með tveimur stig- um eftir harða keppni. Að sögn Fannars Freys Ívars- sonar, forseta Framtíðarinnar, fóru leikar mjög vel og náðu margir nemendur að leika sín af- rek með glæsibrag. „Í fyrra söfn- uðust um 320.000 krónur sem fóru til hjálparstarfa á flóðasvæðunum vegna flóðbylgjunnar við Súmötru, og það kæmi okkur ekki á óvart ef niðurstaðan yrði svipuð í ár,“ segir Fannar, sem hvetur aðra skóla til að taka upp á samsvarandi átaki, því ekki veiti af samhjálpinni. Allt það fé sem safnaðist rennur óskert og óskipt til Rauða kross Ís- lands sem nota mun peningana til hjálparstarfa í Pakistan. Klippa þurfti frá hálsinum til að Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir kafnaði hreinlega ekki í því fargani stuttermabola sem hún klæddi sig í. Morgunblaðið/Þorkell Þessi hrausti menntskælingur hljóp á G-streng einum fata hringinn eftir Tjarnarbakkanum í ísköldu janúarveðrinu. Uppátæki nemenda í MR í þágu góðs málsstaðar MENNINGARTENGSL Ís- lands og Rússlands, MÍR, opna formlega ný húsakynni félags- ins á Hverfisgötu 15 í dag kl. 15. Boðið verður upp á kaffiveit- ingar, kokkteil í rússneskum stíl, söng, þjóðlegan dans og spil. Í dag er jafnframt haldin nýársgleði rétttrúnaðarkirk- unnar og mun prestur hennar halda ávarp tengt deginum ásamt rússneska sendiherran- um á Íslandi. Að sögn forsvarsmanna MÍR er nýja húsnæðið mikil breyt- ing til batnaðar fyrir félagið sem hefur undanfarin 20 ár verið til húsa á Vatnsstíg 10. Salurinn er talsvert stærri og aðstæður betri í alla staði, bókasafn er á staðnum og kaffi- aðstaða. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og að- gangur er ókeypis. Að kveldi dags verður svo slegið upp veislu í Alþjóðahús- inu í tilefni af nýarsfagnaði rétttrúnaðarkirkjunnar og hefst gleðin kl. 23. Formleg opnun hjá MÍR í dag Þennan dag hafði hann verið að koma fyrir hræriverki í hak sem það átti að hanga í, þegar hann rann í bleytu á gólfinu, og fékk hnykk á bakið. Hann sagðist hafa farið til verkstjórans og sagt honum frá slysinu. Verkstjórinn hafi sagt honum að „harka af sér“. Síðar um morguninn gafst hann upp á að vinna vegna verkja í bakinu og þó aðallega niður í hægri fót. Hann fór í kjölfarið í skoðun á slysa- deildi og var lagður inn á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri þar sem gerð var aðgerð á honum tveimur dögum síðar vegna brjóskloss í baki. Hann fór í aðra aðgerð á baki í september sama ár og þriðju aðgerðina ári síðar og einnig rafskautainnsetningar á ár- unum 2000 og 2001 án þess að líðan hans lagaðist. Fram kemur í dómn- um, að meðferð mannsins sé ekki lok- ið og því hafi tjón hans vegna slyssins ekki verið metið. KEA taldi að slysið hefði stafað af gáleysi mannsins, en dómurinn segir í niðurstöðu sinni, að af framburðum vitna verði ráðið að maðurinn hafi hagað umræddu verki með þeim hætti sem tíðkað var hjá mjólkur- samlaginu og ekki hafi verið sýnt fram á að hann hefði getað leyst það af hendi með öðrum og öruggari hætti. Segir dómurinn, að umrætt vinnufyrirkomulag hafi ekki verið forsvaranlegt og vegna hins sak- næma og ólögmæta vinnufyrirkomu- lags sé þáverandi eigandi Mjólkur- samlags KEA talinn bera bóta- ábyrgð á tjóni mannsins. HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur fallist á kröfu fyrrver- andi starfsmanns Mjólkursamlags KEA um að Kaupfélag Eyfirðinga sé skaðabótaskylt vegna slyss, sem maðurinn varð fyrir við vinnu sína ár- ið 1997. Slysið varð þegar maðurinn, sem þá var nemi í mjólkurfræði, var að vinna að framleiðslu kotasælu. Mjólkursamlag KEA var á þessum tíma í eigu KEA. Maðurinn hafði þá unnið hjá mjólkursamlaginu í 10 ár. KEA greiði skaðabætur vegna slyss
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.