Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 27 MINNSTAÐUR SUÐURNES Reykjanesbær | Hafnar eru fram- kvæmdir við nýtt íþrótta- og útivist- arsvæði í Reykjanesbæ. Svæðið er fyrir vestan og sunnan Reykjanes- höllina. Byrjað verður á gerð æf- ingavalla fyrir knattspyrnudeild Ungmennafélags Njarðvíkur enda verða íþróttavellir félagsins teknir undir uppbyggingu hjúkrunarheim- ilis og annarrar þjónustu í þágu aldraðra. Alls verða sex íþróttavellir á svæðinu auk nýs aðalleikvangs Reykjanesbæjar. Nýja íþróttasvæðið er á svoköll- uðu Neðra-Nikkelsvæði sem varn- arliðið notaði sem olíubirgðasvæði en skilaði til íslenskra stjórnvalda fyrir nokkrum árum. Íþróttasvæðið er vel staðsett í Reykjanesbæ, það telst til Njarðvíkur en er á milli byggðahverfanna í Njarðvík og Keflavík. Þá er það í tengslum við knattspyrnuhúsið Reykjaneshöll og í næsta nágrenni við Íþróttaakadem- íuna. Nýja íþróttasvæðið er stórt. Fram kom hjá Páli Tómassyni arki- tekt hjá arkitektur.is, sem unnið hef- ur að skipulagningu í samvinnu við bæjaryfirvöld og íþróttafélögin, að það væri 26 hektarar að stærð sem er jafnstórt landsvæði og íþrótta- svæðið í Laugardalnum í Reykjavík. Byggt fyrir aldraða á svæði UMFN Reykjanesbær gerði í lok síðasta árs samning við Nesvelli ehf. um uppbyggingu á nýju þjónustusvæði eldri borgara á íþróttavöllum UMFN. Nesvellir eru sameiginlegt fyrirtæki Klasa hf., sem er eign- arhaldsfélag Íslandsbanka, og bygg- ingarfélagsins Húsaness ehf. í Reykjanesbæ. Nesvellir annast skipulagningu svæðisins í samvinnu við Reykjanesbæ og Dvalarheimili aldraðra sem reka munu hjúkr- unarheimili og aðra þjónustu fyrir eldri borgara á svæðinu. Fyrstu hjúkrunaríbúðirnar verða teknar í notkun á miðju næsta ári og þá er gert ráð fyrir að risin verði félags- og þjónustumiðstöð auk að minnsta kosti tuttugu öryggisíbúða. Samhliða þessari uppbyggingu tóku Nesvellir að sér að hefja gerð nýs knattspyrnuæfingasvæðis fyrir UMFN í stað þeirra valla sem félag- ið missir, auk vallarhúss og fé- lagsaðstöðu. Gert er ráð fyrir að nýja íþróttasvæðið verði tekið í notkun í sumar. UMFN fær tvö samliggjandi íþróttasvæði, sem samtals verða um 2 hektarar að stærð, og þar er hægt að koma fyrir fjórum æfingavöllum. Svæðið verður lagt grasi. Framkvæmdir við völlinn hófust í gær með því að Ellert B. Schram, forseti Íþrótta- og ólympíusam- bands Íslands, spyrnti bolta og tók fyrstu skóflustunguna ásamt for- mönnum helstu íþróttafélaganna í Reykjanesbæ. Upphafið að mikilli uppbyggingu Framkvæmdin sem hófst í gær markar upphaf gríðarlegrar upp- byggingar á fjölþættri aðstöðu fyrir íþróttir og útivist, eins og Árni Sig- fússon bæjarstjóri tók til orða við at- höfnina í gær. Hann sagði að þegar búið yrði að skapa UMFN nauðsyn- lega æfingaaðstöðu yrði haldið áfram og „innan tíðar verður hér fyrir ofan Reykjaneshöll risið eitt glæsilegasta íþróttasvæði landsins. […] Verður það byggt í samstarfi opinberra aðila, einkaaðila og íþróttahreyfingarinnar. Á betra verður ekki kosið,“ sagði Árni. Í næsta áfanga er reiknað með byggingu nýs aðalleikvangs fyrir Reykjanesbæ, keppnisvallar fyrir bæði félögin, Keflavík og UMFN. Áætlað er að hann verði tekinn í notkun á árinu 2008. Fram kom hjá Páli Tómassyni arkitekt að hann yrði hannaður með það í huga að hann uppfylli reglugerðir fyrir leiki í Evrópukeppni félagsliða. Aðal- leikvangurinn verður fyrir aftan Reykjaneshöllina og tengist henni með stúkubyggingu sem tekur 1500 manns. Síðar er fyrirhugað að byggja aðra eins stúku vestan við völlinn. Völlurinn verður grafinn nokkuð niður og sagði Páll að lögð væri áhersla á nánd áhorfenda þann- ig að hægt yrði að skapa stemningu eins og í sannkallaðri ljónagryfju. Á íþróttasvæðinu er einnig skipu- lagt æfingasvæði fyrir knatt- spyrnumenn Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, heldur stærra svæði en Njarðvík fær. Þar er um að ræða þrjá samliggjandi knatt- spyrnuvelli. Einnig er gert ráð fyrir sérstökum frjálsíþróttavelli og úti- svæði fyrir körfuknattleik. Þá er svæðið tengt útivistarsvæði. Vinnuheitið Melavellir hefur verið notað um svæðið. Fram kom hjá Árna Sigfússyni í gær að á næstunni yrði efnt til skoðanakönnunar meðal bæjarbúa um nafn á svæðið. Framkvæmdir hafnar við nýtt íþróttasvæði Reykjanesbæjar vestan og sunnan við Reykjaneshöllina Gert ráð fyrir sex íþróttavöll- um auk nýs að- alleikvangs Melavellir? Fimm tvöfaldir æfingavellir eru á nýja íþróttasvæðinu. Vellir Njarðvíkinga eru efst á myndinni, við hliðina á frjálsíþróttavelli, en vellir Keflavíkinga eru næst. Reykjaneshöllin sést til vinstri á myndinni, með hvítu hvolfþaki, hérna megin við hana er nýr aðalleikvangur Reykjanesbæjar sýndur. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Spyrnt til himins Ellert B. Schram sparkaði fast í boltann en sú athöfn markaði upphaf framkvæmda á nýju íþróttasvæði Reykjanesbæjar. Jóhann B. Magnússon, formaður ÍRB, Kristján Pálsson, formaður UMFN, og Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur, bíða tilbúnir með skóflurnar ásamt Stef- áni Bjarkasyni, framkvæmdastjóra hjá Reykjanesbæ. „ÉG er ánægður með þetta. Áform- in eru metnaðarfull,“ sagði Kristján Pálsson, formaður UMFN. UMFN fær 20 þúsund fermetra svæði, auk aðildar að sameiginlegu svæði eins og frjálsíþróttavelli og aðalleikvangi Reykjanesbæjar. Í staðinn lætur félagið 60 þúsund nú- verandi fótboltavelli sína, alls um 60 þúsund fermetra. „Vissulega er eft- irsjá að gömlu völlunum. Þeir eru mjög vel staðsettir. En þeir eru börn síns tíma og við fáum nýja velli með betri tækni til að viðhalda grasi og þjónusta völlinn,“ segir Kristján. Telur hann nýju aðstöðuna betri en þá sem fyrir er. Þá leggur hann áherslu á að verið sé að byggja upp fyrir framtíðina og gaman að taka þátt í því. Mikil fjölg- un sé að verða í Njarðvíkurhverfinu vegna nýju hverfanna sem þar rísa. Kristján segir að framkvæmdum á gamla svæðinu verði hagað þann- ig að þeir nýtist í sumar, þar til nýja svæðið kemst í gagnið. Hins vegar verði að leita á náðir Keflvíkinga um keppnisaðstöðu eftir sumarið, þar til nýr aðalleikvangur kemst í gagnið. Fáum betri aðstöðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.