Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
R
eynist skoðanakannanir
réttar verður Michelle
Bachelet kjörin forseti
Chile, fyrst kvenna, á
morgun, sunnudag.
Kosningabaráttunni lauk á fimmtu-
dagskvöld og gerðist hún persónu-
leg og óvægin á lokasprettinum.
Á fimmtudag var einnig birt síð-
asta skoðanakönnunin fyrir kjör-
dag. Samkvæmt henni nýtur Bache-
let stuðnings 45% kjósenda en 40%
kváðust ætla að kjósa andstæðing
hennar, auðkýfinginn Sebastián
Piñera.
Fyrri umferð forsetakosninganna
fór fram 11. desember. Fjórir voru
þá í framboði. Bachelet fékk 46%
atkvæðanna en stuðningur við Pi-
ñera reyndist 25,4%. Þriðji varð
Joaquín Lavín með um 23% at-
kvæða en hann var líkt og Piñera
frambjóðandi stjórnarandstöð-
unnar. Þar eð enginn frambjóðandi
hlaut meirihluta atkvæða var boðað
til síðari umferðar þar sem kosið er
á milli þeirra tveggja, sem flest at-
kvæði hlutu.
Sögulegt framboð
Framboð Bachelet er sögulegt
því fari hún með sigur af hólmi
verður hún forseti Chile fyrst
kvenna. Hún er 54 ára að aldri, ein-
stæð þriggja barna móðir, yfirlýst-
ur trúleysingi og sósíalisti. Þykir
það merkilegt að kona skuli hafa
náð þessari stöðu í svo íhaldssömu
samfélagi.
Bachelet er læknir að mennt en
hefur einnig gráðu í herfræðum frá
Bandaríkjunum. Árið 1990 þegar
lýðræðið var endurreist í Chile eftir
17 ára herforingjastjórn hóf Bache-
let afskipti af stjórnmálum á vett-
vangi Sósíalistaflokksins. Hún var
skipuð heilbrigðisráðherra árið 2000
í kjölfar sigurs Ricardo Lagos, frá-
farandi forseta, í kosningunum það
ár. Því starfi sinnti hún í tæp tvö ár
en 7. janúar 2002 var hún skipuð
ráðherra landvarna fyrst kvenna
ekki aðeins í Chile heldur í gjör-
vallri Rómönsku Ameríku. Bachelet
sagði af sér því embætti fyrir rúm-
um sex mánuðum til að geta ein-
beitt sér að forsetaframboðinu.
Piñera er 56 ára og tilheyrir hin-
um hægri sinnaða Endurnýj-
unarflokki („Renovación Nacional“).
Hann er aðaleigandi LAN-flug-
félagsins og stýrir einnig fleiri fyr-
irtækjum. Piñera er einn auðugasti
maður Chile, talinn ráða yfir um 70
milljörðum króna. Hann er íhalds-
samur og boðar kunnuglega að-
haldsstefnu á sviði ríkisfjármála en
getur talist heldur frjálslyndur á
sviði félagsmála. Frambjóðandinn
hefur heitið því að skapa 100.000 ný
störf í Chile nái hann kjöri og hús-
mæðrum landsins hefur hann lofað
eftirlaunum. Joaquín Lavín, sem fór
fram fyrir Bandalag óháðra lýðræð-
issinna („Unión Demócrata Indep-
endiente“), lýsti yfir stuðningi við
Piñera í þeirri síðari og hvatti
stuðningsmenn sína til að gera slíkt
hið sama.
Þrír stórir flokkar fara fyrir sam-
steypustjórninni í Chile, sem jafnan
er nefnd „Concertación“ á spænskri
tungu en það orð vísar til samvinnu
og sátta. Stærstur er flokkur kristi-
legra demókrata („Partido Demóc-
rata Cristiano“), þá kemur Sósíal-
istaflokkurinn („Partido Socialista“)
og loks Lýðræðisflokkurinn eða
„Partido por la Democracia“. Þeir
tveir síðastnefndu eru til vinstri svo
stuðst sé við viðteknar skilgrein-
ingar í stjórnmálum en flokk hinna
kristilegu má staðsetja á miðjunni í
stjórnmálum Chile.
Bachelet er félagi í Sósíalista-
flokknum en frá 1990 hafa fram-
bjóðendur Concertación jafnan far-
ið með sigur af hólmi í
forsetakosningum í Chile.
Róttækar samfélagsbreytingar
og aukinn jöfnuður
Kosningabaráttunni luku fram-
bjóðendur á fimmtudagskvöld með
fjölmennum útifundum. Að minnsta
kosti 50.000 manns komu á fund
Bachelet í höfuðborginni, Santiago,
(í nokkrum dagblöðum Chile sagði
að 200.000 manns hefðu komið þar
saman). Þúsundir manna hlýddu á
Piñera í hafnarborginni Valparaiso.
Í lokaræðu sinni ítrekaði Bache-
let að markmið hennar væri að
knýja fram róttækar samfélags-
breytingar í Chile. Stefna bæri að
nútímalegu réttlátu þjóðfélagi þar
sem megináhersla væri lögð á jöfn-
uð. „Stjórn mín verður stjórn fólks-
ins og hún mun starfa fyrir fólkið.
Ég mun segja það sem mér býr í
brjósti og framkvæma það sem ég
segi. Ég legg heiður minn sem kona
að veði.“ Hún veittist og harkalega
að andstæðingi sínum og sakaði
hann um að nýta sér gríðarlegan
auð sinn til að kaupa sér fylgi.
Bachelet vék að herforingjastjórn-
inni, sem drap föður hennar, og
lýsti því tímabili sem „myrkasta
skeiði í sögu Chile“. Hét hún því að
upp myndi rísa nýtt þjóðfélag þar
sem enginn yrði „dæmdur til að
draga fram lífið í fátækt“.
Boðar hertar refsingar
og fjölgun starfa
Piñera hefur gagnrýnt ríkisstjórn
Lagos forseta harðlega í kosninga-
baráttu sinni. Í Valapariso lagði
hann áherslu á að þrátt fyrir fögur
fyrirheit hefði stjórninni öldungis
mistekist að fjölga störfum í land-
inu. Þá fór hann hörðum orðum um
framgöngu stjórnvalda á sviði lög-
gæslu- og dómsmála en Piñera boð-
ar m.a. stórhertar refsingar og
mikla fjölgun lögreglumanna í því
skyni að sigrast á glæpagengjum,
sem mjög láta til sín taka í Chile nú
um stundir líkt og í fleiri ríkjum
Rómönsku-Ameríku. „Verðskuldar
ríkisstjórn, sem fengið hefur 16 ár
til að færa þjóðinni störf og öryggi
og mistekist gjörsamlega, að fá
fjögur ár til viðbótar?“ spurði hann.
Piñera fullyrti að Bachelet væri í
raun aðeins framhald á Lagos for-
seta enda hefðu stjórnvöld misnotað
aðstöðu sína í því skyni að tryggja
henni embættið. Lofta þyrfti út í
samfélaginu og hleypa nýjum
mönnum að. „Við munum byggja
upp réttlátara þjóðfélag og þurrka
út ójöfnuð í Chile,“ sagði Piñera,
Bachelet sagði fyrir fundinn í
Santiago að hún væri bjartsýn á
góðan árangur í kosningunum á
sunnudag. „Ég er viss um að ég
mun sigra og skoðanakönnunin er
til marks um það.“
Verði raunin sú hafa raunveruleg
þáttaskil orðið í stjórnmálasögu
Chile.
Fréttaskýring | Kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í Chile lauk í fyrrakvöld og kannanir benda til, að í fyrsta
sinn muni kona verða kjörin í embættið. Ásgeir Sverrisson segir frá frambjóðendum og stefnumálum þeirra.
Michelle Bachelet
spáð sigri í Chile
asv@mbl.is
AP
Bachelet á útifundinum í Santiago. Áherslur hennar eru helst á velferðar-
og félagsmál en ekki er talið að hún geri miklar breytingar á efnahags-
stefnunni, sem mótast af einkavæðingu og markaðshyggju.
Sebastián Piñera í hópi ungra aðdáenda. Áhersla hans á nauðsyn þess að
refsingar verði hertar og brugðist verði við af hörku við uppgangi glæpa-
gengja hafa fallið í frjóan svörð meðal kjósenda í Chile.