Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 49
KIRKJUSTARF
Sunnudagur
í Garðasókn
SUNNUDAGINN 15. janúar verður
guðsþjónusta og sunnudagaskóli í
Vídalínskirkju kl. 11, þar sem sr.
Friðrik J. Hjartar, Nanna Guðrún
Zoëga, Jóhann Baldvinsson org-
anisti, kór kirkjunnar og starfsfólk
sunnudagaskólans þjóna.
Á sama tíma er fjölskylduguðs-
þjónusta og upphaf sunnudagaskól-
ans í Bessastaðakirkju. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir þjónar, ásamt
Grétu Konráðsdóttur djákna og
starfsfólki sunnudagaskólans með
Kristjönu Thorarensen leik-
skólastjóra í fararbroddi.
Strax að lokinni guðsþjónustu kl.
12 verður fundur með foreldrum
fermingarbarna og börnunum sjálf-
um. Sama dag kl. 14 verður svo
sameiginleg guðsþjónusta Víði-
staðakirkju og Garðaprestakalls í
Vídalínskirkju. Guðsþjónustan er í
höndum safnaðar Víðistaðakirkju
og mun sr. Bragi Ingibergsson pre-
dika og Gaflarakórinn leiðir lof-
gjörðina. En messukaffi og dagskrá
á eftir er á ábyrgð Garða- og Bessa-
staðasóknar, þar sem m.a. kór eldri
borgara í Garðabænum syngur og
einnig mun organisti í Bessastaða-
kirkju, Bjartur Logi Guðnason,
hefja upp raust sína. Fólk er hvatt
til að mæta og styrkja tengslanet
safnaðanna.
Boðið verður upp á akstur frá
Hleinum kl. 13.40 en þeir eldri
borgarar sem kjósa akstur af Álfta-
nesinu geta hringt í hjónin Auði og
Linda í síma 565 0952 og óskað eft-
ir akstri. Allir velkomnir.
Þorvaldur Halldórs-
son í Seljakirkju
Sunnudagskvöldið 15. janúar kl. 20
verður guðsþjónusta í Seljakirkju.
Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar
og þjónar fyrir altari. Tónlist-
armaðurinn Þorvaldur Halldórsson
leiðir sönginn með dyggri aðstoð
kórs Seljakirkju undir stjórn Jóns
Bjarnasonar tónlistarstjóra kirkj-
unnar. Verið velkomin og njótum
saman góðrar stundar.
Jazz-messa og guðs-
þjónusta – Frímúr-
arakórinn syngur
Næstkomandi sunnudag 15. janúar
verður fjölbreytt helgihald í Graf-
arvogssókn. Barnamessur verða kl.
11 í kirkjunni og Borgarholtsskóla.
Nýr sunnudagaskólapóstur verður
afhentur.
Kl. 11 verður haldin Jazz-messa
tólfta árið í röð. Tríó Björns Thor-
oddsen annast tónlistina. Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson prédikar og
þjónar fyrir altari.
Kl. 14 er almenn guðsþjónusta,
Frímúrarakórinn undir stjórn Jóns
Kristins Cortes syngur ásamt Kór
Grafarvogskirkju sem stjórnað er
af Herði Bragasyni organista.
Fiðla: Hjörleifur Valsson. Selló:
Örnólfur Kristjánsson. Séra Vigfús
Þór Árnason prédikar og þjónar
fyrir altari.
Eftir guðsþjónustuna verður boð-
ið upp á kaffi og veitingar.
Fræðsla í Kefas
Fimmtudaginn 19. janúar verður
Sigurborg Kristjánsdóttir, þróun-
arfulltrúi leikskóla, með fræðslu í
Kefas. Fræðslan ber yfirskriftina:
„Jákvæður agi við uppeldi barna.“.
Fræðslan er kl. 20–22. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir. Láttu
þetta ekki fram hjá þér fara.
Kvennakirkjan í Hall-
grímskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í Hallgrímskirkju sunnu-
daginn 15. janúar kl. 20.30. Yf-
irskrift messunnar er hamingjan á
nýbyrjuðu ári, trú og jafnvægi og
láttu ekki umheiminn æra þig.
Kvennakirkjukonurnar Jóhanna
Magnúsdóttir, Gígja Árnadóttir og
Halldóra Jónasdóttir flytja hugleið-
ingar um efnið. Kór Kvennakirkj-
unnar leiðir söng undir stjórn Að-
alheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir
verður kaffi í safnaðarheimilinu.
Fimmtudaginn 19. janúar kl. 20
heldur Kvennakirkjan örþing í stof-
um sínum að Laugavegi 59, 4. hæð,
gengið inn frá Hverfisgötu. Þar
mun Gunnbjörg Óladóttir, dokt-
orsnemi í trúarbragðafræði, flytja
erindi um rannsókn sína á trúar-
fíkn. Gunnbjörg stundar dokt-
orsnám við Edinborgarháskóla þar
sem hún vinnur að rannsókn á sam-
bandi trúar og fíknar. Á eftir gefst
tækifæri til að ræða við Gunn-
björgu um efnið yfir kaffi og með-
læti.
Tólfsporin – andlegt
ferðalag í Laugarnes-
kirkju
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 17. jan-
úar kl. 20 verður efnt til kynningar
á merku hópastarfi í Laugarnes-
kirkju sem nefnt er 12 sporin – and-
legt ferðalag. Áralöng hefð hefur
skapast fyrir þessu starfi í söfn-
uðinum og nú er það hópur sjálf-
boðaliða undir forystu Guðrúnar K.
Þórsdóttur djákna sem stendur að
kynningunni og starfinu sem fram
undan er. Í þessari tólf spora vinnu
er markvisst hugað að eigin tilfinn-
ingum og unnið úr lífsreynslunni.
Unnið er í litlum kynskiptum hóp-
um sem koma vikulega saman í
safnaðarheimilinu. Þátttaka kostar
ekkert og það kostar heldur ekkert
að kynna sér málið á kynning-
arfundunum sem verða haldnir tvö
næstu þriðjudagskvöld. Það er auð-
velt að koma til Laugarneskirkju
og hún er góður og öruggur staður.
Jón Gnarr á kvöld-
vöku í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
Á morgun, sunnudaginn 15. janúar,
verður kvöldvaka í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði og hefst hún kl. 20.
Sérstakur gestur kvöldvökunnar
að þessu sinni er hinn landsþekkti
listamaður Jón Gnarr sem flytur
hugleiðingu. Að venju mun hljóm-
sveit kirkjunnar leiða tónlistina en
hljómsveitina skipa Örn Arnarson,
Guðmundur Pálsson og Skarphéð-
inn Hjartarson.
Þá mun kór kirkjunnar syngja.
Fyrirlestur
í Landakoti
„Í votta viðurvist – Heilög messa í
vitnisburði helgra manna“. Sr.
Jürgen heldur áfram fyrirlestri sín-
um 16. janúar kl. 20 í safnaðar-
heimilinu.
Að þessu sinni fjallar erindið um
altarisgöngu eða bergingu: Kat-
arína frá Síenu – að vera samein-
aður með Kristi. Auk þess er talað
um notkun latínunnar sem helgi-
máls í Rómarkirkju og þátttak-
endum verður gefið tækifæri til að
æfa sig í framburði ýmissa lat-
neskra orða og texta sem notuð eru
í heilagri messu.
Alfanámskeið í Graf-
arvogskirkju
Fimmtudaginn 19. janúar nk. verð-
ur kynningarkvöld um Alfa-
námskeið í Grafarvogskirkju. Það
hefst kl. 20. Um er að ræða 10
skipti, þar sem farið verður í
grundvallaratriði kristinnar trúar.
Námskeiðið er ókeypis.
Skráning fer fram í síma
587 9070, á skrifstofu Grafarvogs-
kirkju.
Sigga og skessan í
fjallinu í Lágafells-
kirkju
HVER man ekki eftir sögu-
persónum Herdísar Egilsdóttur:
„Sigga og skessan í fjallinu“? Þess-
ar þjóðþekktu og skemmtilegu per-
sónur eru nú að koma á íslenskt
leiksvið í glænýrri leikgerð Stopp-
leikhópsins. Byggir leikritið á
fyrstu bókinni þar sem Sigga og
skessan kynnast og verða vinkonur.
Afmælisveisla Siggu kemur við
sögu en hún býður síðan skessunni í
veisluna við mikinn fögnuð afmæl-
isgesta.
Sigga og skessan í fjallinu verður
sýnt í barnamessu kl. 13 í Lágafells-
kirkju næstkomandi sunnudag 15.
janúar. Allir velkomnir – Aðgangur
ókeypis.
Barnamessurnar/sunnudaga-
skólinn eru byrjaðar aftur eftir jól.
Barnamessur/sunnudagaskóli
verður alla sunnudaga yfir vetr-
artímann klukkan 13 í Lágafells-
kirkju. Þar er komið saman, sungið
og leikið og eru foreldrar hvattir til
þátttöku. Börnin fá í hendur
fræðsluefni í hverri samveru og
mætingarmerki.
Foreldramorgnar. Samverur
okkar eru á mánudagsmorgnum kl.
10–12 í safnaðarheimili Lágafells-
kirkju, Þverholti 3. Þetta eru stund-
ir fyrir foreldra, sem vilja koma
saman, ræða málin og fræðast um
málefni tengd börnum og fjölskyld-
unni. Komið og njótið góðs sam-
félags. Þið mætið á mánudögum
milli 10 &12 og þurfið ekki að skrá
ykkur eða tilkynna komu ykkar
fyrir fram.
T.T.T. (Töff, Töfrandi og Takt-
fast) – TTT er félagsskapur fyrir
öll tíu til tólf ára börn sem langar til
að eiga skemmtilegan vetur saman.
T.T.T. fundirnir verða á fimmtu-
dögum kl. 16.30 í safnaðarheimili
Lágafellskirkju. Þar munum við
skemmta okkur við margs konar
verkefni. Hægt er að nálgast dag-
skrá TTT á heimasíðu kirkjunnar.
www.lagafellskirkja.is.
Alfa námskeið í Breið-
holtskirkju
HVER er tilgangur lífsins? Hvernig
leiðbeinir Guð okkur? Hvað með ei-
lífðina? Þessar spurningar eru með-
al þess sem fjallað verður um á
Alfa-námskeiði sem haldið verður í
Breiðholtskirkju í Mjódd næstu
þriðjudagskvöld.
Alfa er tíu vikna námskeið þar
sem þátttakendur koma saman einu
sinni í viku og hefst hver samvera
með léttum málsverði. Á námskeið-
inu er fjallað um grundvallaratriði
kristinnar trúar á einfaldan og
þægilegan hátt. Alfa-námskeiðið er
opið fyrir alla sem hafa áhuga á að
velta fyrir sér mikilvægum spurn-
ingum lífsins og er engin krafa
gerð um trúarafstöðu. Hver og einn
kemur á Alfa á eigin forsendum og
hafa námskeiðin notið mikilla vin-
sælda á síðastliðnum árum.
Kynningarkvöld fyrir Alfa-
námskeiðið verður haldið í safn-
aðarheimili Breiðholtskirkju næst-
komandi þriðjudagskvöld 17. jan-
úar kl. 20. Námskeiðið hefst síðan á
sama stað viku síðar, þann 24. jan-
úar kl. 19. Hverri samveru lýkur
um kl. 22, en einnig er gert ráð fyr-
ir að þátttakendur fari saman einn
sólarhring út úr bænum. Frekari
upplýsingar eru veittar í Breið-
holtskirkju í síma 587 1500 og þar
er einnig tekið við skráningum.
nnari upplýsingar á heimasíðunni
www.alfa.is
Samvera í KFUM og
KFUK
KFUM og KFUK bjóða til samvera
á hverjum sunnudegi kl. 17 í fé-
lagshúsinu á Holtavegi 28 í Reykja-
vík. Áhersla er lögð á hlýlega sam-
veru þar sem Guðs orð er boðað og
komið er saman til að lofa Guð. Á
meðan á samkomu stendur er boðið
upp á barnastarf. Sunnudaginn 15.
janúar flytur Keith Reed, listrænn
stjórnandi KFUM og KFUK, ræðu.
Í janúar verða auk þess fræðslu-
stundir fyrir hverja samveru sem
hefjast klukkan 16 og er hug-
myndin að tækifæri gefist til að
þekkja Guð betur og kynnast öðr-
um. Á fyrstu fræðslustundinni
fjallar Árný Jóhannsdóttir um:
„Hvað eru náðargjafir?“. Allir vel-
komnir.
Sigga og skessan í
fjallinu í Bústaða-
kirkju
Í barnasamveru næstkomandi
sunnudag kl. 11 mun STOPP-
leikhópurinn flytja okkur leikritið
um Siggu og skessuna í fjallinu. Þá
er um að gera að taka alla fjöl-
skylduna með. Sjáumst hress á
sunnudaginn í Bústaðakirkju kl. 11.
Hver man ekki eftir sögu-
persónum Herdísar Egilsdóttur:
„Sigga og skessan í fjallinu“? Þess-
ar þjóðþekktu og skemmtilegu per-
sónur eru nú að koma á íslenskt
leiksvið í glænýrri leikgerð Stopp-
leikhópsins. Byggir leikritið á
fyrstu bókinni þar sem Sigga og
skessan kynnast og verða vinkonur.
Afmælisveisla Siggu kemur við
sögu en hún býður síðan skessunni í
veisluna við mikinn fögnuð afmæl-
isgesta. Allir velkomnir.
Réttindi samkyn-
hneigðra í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
UNDANFARIÐ hefur töluverð um-
ræða farið fram í samfélaginu um
réttarstöðu samkynhneigðra. Fyrir
Alþingi liggur lagafrumvarp sem
miðast að því að bæta réttarstöðu
þeirra með breytingu ýmissa laga.
Einnig hafa ummæli Biskups Ís-
lands bæði í nýárspredikun sinni
sem og við fjölmiðla kallað á við-
brögð fólks.
Sunnudagsmessan kl. 14 verður
helguð réttindabaráttu samkyn-
hneigðra. Ætlunin er að eiga frið-
sæla, bæna- og íhugunarstund þar
sem þessi mál eru borin upp í Guðs
helgidómi í trú, von og kærleika.
Fulltrúar samkynhneigðra munu
stíga í predikunarstól og flytja pre-
dikunarorð ásamt safnaðar-
prestum. Landsþekktir tónlist-
armenn munu flytja tónlist. Meðal
annarra gesta verða þær Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona og Mo-
nika Abendroth hörpuleikari þar
að auki Guðrún Gunnarsdóttir og
Valgeir Skagfjörð. Önnur tónlist
verður í höndum Önnu Sigríðar
Helgadóttur og Carls Möllers auk
Fríkirkjukórsins. Fríkirkjuprest-
arnir Hjörtur Magni Jóhannsson og
Ása Björk Ólafsdóttir munu þjóna
fyrir altari. Kirkjukaffi verður í
safnaðarheimili Fríkirkjunnar að
Laufásvegi 13, að lokinni messu.
Allir velkomnir.
Alfanámskeið III í
Óháða söfnuðinum
17. janúar kl. 19 hefst Alfa-
námskeið III í Óháða söfnuðinum.
Verður Filippíbréfið tekið fyrir á
næstu 9 þriðjudagskvöldum.
Hefst hvert fræðslukvöld með
heimilismataráti. Að því loknu er
smásöngstund og frumfræðsla í um
stundarþriðjung eða svo. Þá er
skipt upp í hópa – efni kvöldsins
tekið fyrir – og rætt í almennum
umræðum. Endað er uppi í kirkju
með bænastund, og er öllu lokið kl.
22. Þátttökugjald er 5.000 kr. og
eru allir velkomnir.
Safnaðarfélag
Dómkirkjunnar
FUNDUR í Safnaðarheimilinu að
lokinni messu sunnudaginn 15. jan-
úar nk. Harmonikkuleikari kemur
og leikur nokkur lög og viðstaddir
syngja saman.
Safnaðarfélagið er opið öllum,
bæði sóknarbörnum og öðrum vel-
unnurum Dómkirkjunnar. Fé-
lagsmenn hittast einu sinni í mán-
uði yfir vetrartímann, hlýða á
messu og borða saman léttan há-
degisverð. Allir velkomnir.
Morgunblaðið/Árni SæbergVídalínskirkja