Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
„VIÐ erum alltaf með einn og einn
á æfingu í einu,“ segir Stella Krist-
jánsdóttir hundaeigandi. „Svo skipt-
um við út kannski eftir hálftíma, á
meðan bíður hinn í bílnum. Á einni
æfingu eru því svona 8–10 hundar.“
Stella er í vinahópi sem hittist
einu sinni í viku og á sameiginlegan
hundaáhugann. Tilefnið til að hitt-
ast er að þjálfa hundana í hóp og
hreyfa þá. „Þetta er þéttur vina-
hópur og við öll eigum þetta sam-
eiginlega áhugamál,“ segir Stella.
„Við ákváðum að stofna æfingahóp
og hittast reglulega einu sinni í
viku. Yfirleitt erum við í Ölfushöll
en á sumrin erum við stundum úti.“
Þau hafa stundað þetta í tvö ár
og eru búsett á höfuðborgarsvæð-
inu og á Suðurlandi.
Tilgangurinn með þjálfuninni er
að hundarnir verði þægilegir heim-
ilishundar. „Við erum að kenna
hundunum hlýðni svo að þetta verði
þægilegir og skemmtilegir heim-
ilishundar. Við erum öll með frekar
öfluga hunda sem þurfa andlega
örvun líka, þetta eru ekki hundar
sem vilja liggja uppi í sófa allan
daginn, þeir þurfa að fá að nota
hausinn svolítið.“
Í hundahópnum eru st. bernharð-
shundar, dobermann, siberian
husky og boxer. „Þetta eru hundar
á öllum aldri og við erum öll búin
að vera með þá á námskeiðum.
Sumir eru búnir að taka hlýðni-
brons, sem er próf, og einn hundur
er búinn að taka sporapróf og tveir
hlýðni 1.“
Allir hundarnir í hópnum eru
sýndir á sýningum Hundarækt-
arfélags Íslands. „Fyrir sýningar
stækkar verulega hópurinn því að
þá koma fleiri á æfingar til að þjálfa
hundana með okkur því að þetta er
svo gott fyrir þá.“
ÁHUGAMÁLIÐ | Hundarnir fá umhverfisþjálfun og kynnast hver öðrum betur með hverri vikunni sem líður
Hundur er
hunds gaman
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Allir í röð! Frá vinstri: Anna Francesca með siberian husky-tíkina Sól, Guðný Vala Tryggvadóttir með st. bern-
harðs-tíkina Önnu Kareninu, Unnur Huld Hagalín með boxer-hundana Johnny og Kylie, Eyrún Steinsson með dob-
erman-tíkina Dimmu, Stella Kristjánsdóttir með Heru og Seif, sem eru doberman, og Hjalti Þór Halldórsson með
st. bernharðs-hundinn Cujo. Það var talsvert japl, jaml og fuður áður en tókst að láta hundana sitja stillta.
„Mér finnst ekkert gaman í mynda-
töku,“ gæti st. bernharðs-hund-
urinn Anna Karenina verið að
hugsa. Guðný Vala Tryggvadóttir
heldur í tauminn. Doberman-tíkin Dimma með eiganda sínum, Eyrúnu Steinsson. Hundarnir hafa bæði gott og gaman af því að hittast.
Siberian husky er sleðahundur og
þessi ber hið heita nafn Sól.
sia@mbl.is
ÁÍslandi þykir orðið svosjálfsagt að feður takifæðingarorlof, að þaðþótti ekki ástæða til að
gefa þessa bók út á íslensku,“ segir
Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri hjá
Jafnréttisstofu, um bókina MEN
DO IT! sem nýlega kom út á ensku,
dönsku og litháísku. Bók þessi
geymir frásagnir feðra í fæðing-
arorlofi í fjórum löndum, Íslandi,
Danmörku, Litháen og Möltu.
„Þessi bók er hluti af samevrópsku
verkefni sem Jafnréttisstofa tók
þátt í fyrir Íslands hönd og heitir
„Modern Men in Enlarged Europe“.
Skoðaðir voru möguleikar og hindr-
anir fyrir karla til að taka þátt í um-
hyggju eigin barna. Tekin voru við-
töl við atvinnurekendur og
stjórnmálamenn auk viðtalanna við
feðurna.
Eftir útgáfu bókarinnar eru ís-
lensku feðurnir í henni eiginlega
orðnir alþjóðlega frægir pabbar,
þeir Dagur B. Eggertsson, Guð-
mundur Steingrímsson, Kristján
Kristjánsson, Guðni Indriðason og
Þórhallur Árni Ingason.“
Svipuð upplifun
Ingólfur segir upplifun feðranna
af því að vera í fæðingarorlofi vera
mjög svipaða í öllum fjórum lönd-
unum. „Þeir lýsa þessu sem já-
kvæðri reynslu og mjög gefandi
tímabili. Þeir uppgötvuðu nýjar hlið-
ar á sjálfum sér og áttuðu sig betur á
því hvað heimilis- og umönnunar-
störf eru gríðarlega tímafrek. Ís-
lensku og dönsku feðurnir upplifðu
jákvæð viðbrögð samfélagsins við
því að þeir fóru í feðraorlof en á
Möltu og í Litháen þá þurftu menn
bæði að takast á við mjög neikvæð
viðbrögð atvinnulífsins og taka við
þeim skilaboðum í kringum sig að
þeir væru nú ekki merkilegir karlar
að vera heima og skipta um bleiur.“
Feður fórna vinnu fyrir orlof
Ingólfur segir mikinn mun vera á
þessum fjórum löndum í mögu-
leikum og hindrunum feðra til að
taka þátt í umönnun barna sinna. „Á
Íslandi taka tæp 90% feðra fæðing-
arorlof og flestum finnst það alveg
eðlilegt og sjálfsagt, en á Möltu er
það til dæmis algjör undantekning.
Þar er samfélagið mjög kaþólskt og
litið svo á að hlutverk konunnar sé
að sjá um börnin. Þeir feður á Möltu,
sem taka sér fæðingarorlof, þurfa að
gera það á eigin kostnað og fórna
jafnvel vinnunni. Þeir verða fyrir
vikið oft heimavinnandi í nokkur ár
eftir að hafa farið í feðraorlof. Malta
og Litháen eiga verulega langt í land
í þessum málum en vilja bæta úr
þessu því yfirvöld hafa virkilegar
áhyggjur af því hversu mikið hefur
dregið úr barneignum.“
Kynjajafnrétti þýðir fleiri börn
„Það er háfgert Lísiströtu-
verkfall í gangi í stærstum hluta
Evrópu, því þar sem konur eru í
raun þvingaðar til að velja á milli
barneigna og þátttöku á vinnumark-
aðinum, þá velja æ fleiri konur að
eignast ekki börn. Og feðraorlof
skiptir miklu máli í þessum efnum,
vegna þess að aðalatriðið í ákvörðun
kvenna um að eignast barn númer
tvö eða þrjú, er hversu virkur fað-
irinn er í barnaumönnun og inni á
heimilinu. Þetta er auðvitað spurn-
ing um kynjajafnrétti, því það helst í
hendur við barneignir, sem sést á
því að Norðurlöndin sem standa sig
best í kynjajafnrétti, þau eru líka
með skárstu tölurnar í fæðing-
artíðni.“
Fjölskyldufjandsamleg fyrirtæki
Kynjajafnrétti á Norðurlöndunum
felst meðal annars í því að fólki er
gefinn kostur á því að sameina það
að vera foreldri og vera á vinnu-
markaðinum. „Á Norðurlöndunum
eru konur líka að verða betur
menntaðar heldur en karlar, þannig
að ef fyrirtæki þorir ekki að ráða
konu af því að hún er á barneign-
RANNSÓKN | Feður sem fara í fæðingarorlof – ólíkar aðstæður í fjórum löndum
Púað á pabba sem skipta um bleiu
Guðni Indriðason er þakklátur fyrir þau nánu tengsl sem hann myndaði við
dóttur sína í feðraorlofinu og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð frá öllum.
Vinnufélagar Erlandas Karlikauskas frá Litháen kölluðu hann mömmu
þegar hann tók sér fæðingarorlof enda karlar ekki vanir slíku þar.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is