Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
NÝR AÐILI tók til starfa á sviði
bílatrygginga í gær, en þá hóf starf-
semi á Netinu tryggingasalinn El-
ísabet. Á vefslóðinni www.elisabet-
.is munu viðskiptavinir geta keypt
bílatryggingar og sótt um lán til
bílakaupa. Merki félagsins er
skjaldbaka sem talsmenn þess
segja að endurspegli öryggi og
seiglu þess. Hið nýja félag var
kynnt á blaðamannafundi í gær.
Jón Páll Leifsson, rekstrarstjóri
Elísabetar, segir félagið munu ein-
beita sér að einföldum og ódýrum
bílatryggingum og bílalánum fyrir
fólksbíla og jeppa til einkanota. Þá
muni hún bjóða tryggingar á for-
sendum viðskiptavinarins, en ekki á
forsendum gömlu tryggingafélag-
ana. Sem dæmi nefnir Jón Páll að
Elísabet býður viðskiptavinum að
kaupa þjónustu til eins mánaðar í
senn en ekki eins árs eins og tíðkast
hjá gömlu tryggingafélögunum. Þá
segir hann viðskiptavinunum einnig
standa til boða aukið val við töku
trygginga og geti þeir því hagað
tryggingunum í samræmi við eigin
þarfir og áhættu.
Lítil yfirbygging
Elísabet getur að sögn Jóns Páls
Leifssonar boðið afar hagstæð kjör
og er ástæðan bæði lítil yfirbygging
og að starfsemin fer fram á Netinu.
Fylgir því að viðskiptin eru papp-
írslaus að mestu og seðil- og póst-
burðargjöldum er haldið í lág-
marki. Þá verði talsverð samnýting
á þjónustuþáttum og starfskröftum
TM.
Elísabet er vörumerki í eigu
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og
leggur Jón Páll á það áherslu að því
byggist tjónaþjónusta hennar á 50
ára reynslu TM á því sviði. Jón Páll
sagði að vegna þess að um nýja
nálgun væri að ræða á trygginga-
markaði hér á landi hefði verið
ákveðið að stofna um reksturinn
nýtt félag í stað þess að bjóða
tryggingarnar undir merkjum TM.
Jón Páll segir tryggingar Elísa-
betar munu sérstaklega koma góð-
um ökumönnum vel og áskilur fé-
lagið sér rétt til að hækka iðgjöld
þeirra sem lenda í þremur eða fleiri
tjónum á fimm árum. Segir hann
það gert til að tryggja þeim sem
best kjör sem eru varkárastir í um-
ferðinni. Bendir hann á að vegna
þess að tryggingarnar eru seldar til
eins mánaðar í senn muni enginn
þurfa að búa við hækkuð iðgjöld
sem ekki vill það.
Skjaldbakan Elísabet lætur
til sín taka á tryggingamarkaði
Morgunblaðið/Sverrir
Léttir á því Skari Skrípó mætti undir lok blaðamannafundar um stofnun Elísabetar og lýsti yfir ánægju sinni með
þjónustu félagsins. Miðað við aksturslag Skara, sem margoft keyrði bíl sínum í húsveggi fyrir framan blaðamenn,
þarf hann á tryggingunum að halda. Með honum á myndinni er Jón Páll Leifsson, rekstrarstjóri Elísabetar.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær
voru fyrir tæpa 19,2 milljarða króna,
þar af voru viðskipti með hlutabréf
fyrir um 16,7 milljarða. Næstmest
voru viðskipti með ríkisbréf, fyrir um
1,6 milljarða. Það sem af er ári
nema viðskipti með hlutabréf tæp-
lega 206 milljörðum króna og hafa
þau aðeins einu sinni í sögunni verið
meiri í einum mánuði, í september
síðastliðnum.
Mest viðskipti voru í gær með bréf
Landsbankans, fyrir um 4,3 millj-
arða.
Mest hækkun í gær varð á bréfum
Atlantic Petroleum, 2,3%, en mest
lækkun varð á bréfum Össurar,
1,7%.
Úrvalsvísitala aðallista heldur
áfram að hækka og þar með slá met
en lokagildi hennar í gær var
6.070,97 stig og hefur það aldrei
verið hærra. Hæsta gildi innan dags
var 6.080,46 stig sem einnig er met.
Mikil viðskipti
með hlutabréf
STELIOS Haji-Ioannou, stofn-
andi og aðaleigandi lágfargjalda-
flugfélagsins easyJet, segist ein-
ungis selja þau 16,5% sem hann á
í félaginu ef hann treysti viðkom-
andi kaupanda fyrir vörumerkinu
„easy“. Stelios Haji-Ioannou,
bróðir hans og systir eiga sam-
anlagt liðlega 40% hlut í easyJet
en hlutur FL Group er 16,2%.
Stelios Haji-Ioannou sagði í
samtali við BBC-sjónvarpsstöð-
ina að tvennt skipti hann máli:
hvaða verð hann fengi fyrir bréfin
og hvort hann treysti viðkomandi
fyrir vörumerkinu. Stelios sagði
að í öllum öðrum rekstri sínum,
þ.m.t. bílaleigum og hótelum,
byggði hann á vörumerkinu
„easy“, og því mundi hann ein-
ungis selja þeim sem hann
treysti.
Í frétt AFP segir að skoðanir
markaðsrýna séu skiptar um það
hvort FL Group hafi getu til þess
að leggja fram yfirtökutilboð í ea-
syJet en heimildir AFP úr fjár-
málaheimi Lundúnaborgar
herma að Stelios Stelios vilji fá
500 pens á hlut hið minnsta fyrir
bréf sín í easyJet en gengi bréfa
félagsins var liðlega 401 pens á
hlut í Kauphöllinni í London í
gærmorgun.
Vörumerkið
skiptir miklu máli
ÝMSAR breytingar hafa átt sér
stað hjá Master ehf. sem flytur inn
dýrari bíla. Nú koma að félaginu
feðgarnir Emanúel og Ólafur Mort-
hens, Valgarð Kristjánsson fyrrum
eigandi IDEX ehf., Kristján Thor-
arensen, eigandi Öndvegis ehf. og
einkahlutafélagið Úranus ehf.
Ný stjórn hefur verið kosin og
skipa hana þeir Jón Tryggvi Krist-
jánsson, sem jafnframt er stjórn-
arformaður og aðaleigandi, Em-
anúel Morthens, Kristján
Thorarensen og Hinrik Greipsson.
Framkvæmdastjórar eru Ólafur
Morthens, sem hefur yfirumsjón
með daglegum rekstri félagsins og
Valgarð Kristjánsson, sem hefur yf-
irumsjón með fjármálasviði fyr-
irtækisins, eflingu viðskiptatengsla
og samskiptum við erlenda birgja.
Þá segir í tilkynningu frá Master
að félagið muni verða í nánu sam-
starfi við TM varðandi fjármögnun,
tryggingamál og fleira.
Ný stjórn
hjá Master
Morgunblaðið/Júlíus
BAUGUR Group er stærsti hluthafi
í Dagsbrún hf. með 28,85% eins og
sjá má á meðfylgjandi hluthafalista.
Næststærsti hluthafi er Runnur ehf.
sem er Mogs, félag í eigu þeirra
Magnúsar Ármann og Sigurðar
Bollasonar, auk Byggs, Saxhóls, Víf-
ilfells og Fjárfestingarfélagsins
Primus, sem er í eigu Hannesar
Smárasonar.
Landsbanki Íslands er skráður
fyrir samtals 17,85% hlut en lang-
stærstur hluti þeirrar eignar er
vegna framvirkra samninga. Það
sem eftir stendur er skráð í veltubók
bankans sem felur í sér að Lands-
bankinn nýtir ekki atkvæðisrétt sinn
í félaginu og hefur þar með engin
áhrif innan þess.
Grjóti ehf. sem er sjötti stærsti
hluthafi er félag sem að mestu leyti
er í eigu Baugs og eignarhalds-
félagsins Fengs.
Dagsbrún hf. er eignarhalds- og
fjárfestingarfélag á sviði fjarskipta,
fjölmiðlunar og afþreyingar. Dóttur-
félög þess eru Og fjarskipti, 365 ljós-
vaka- og prentmiðlar og Pf. Kall í
Færeyjum.
Baugur
stærsti
hluthafi í
Dagsbrún
!
!"
#$%&"'
( "#)*$
)*%+
, $ +
#-$.#
!+ $
+/+
0#
1$
2#/ %
!"+
%
#$
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
● KAUPHÖLL Íslands hefur sam-
þykkt beiðni um afskráningu hluta-
bréfa Hampiðjunnar af aðallista
Kauphallarinnar. Verða bréfin af-
skráð eftir lokun viðskipta föstudag-
inn 30. júní næstkomandi. Í tilkynn-
ingu frá Kauphöllinni segir að
eignarhald almennra fjárfesta dreif-
ist ekki á 300 hluthafa og því upp-
fylli félagið ekki lengur skilyrði til
skráningar. Farið var fram á afskrán-
ingu bréfa Hampiðjunnar þann 5.
desember síðastliðinn. Samfara því
sem félagið verður afskráð af aðal-
listanum verður það skráð á Fjár-
málatorgi sem er nýr hlutabréfa-
markaður í Kauphöllinni.
Í Morgunkorni Greiningar Íslands-
banka kemur fram að auk Hampiðj-
unnar verði Jarðboranir afskráðar á
næstu mánuðum. Á móti þessari
fækkun félaga á aðallistanum komi
að Avion Group verði skráð innan
skamms í Kauphöll Íslands. Fjöldi fé-
laga á aðallista Kauphallarinnar
stefnir því í 26 en er sem stendur
27.
Hampiðjan afskráð
í lok júní
! "# #
!4%
'+$
!% /
//
'&
5
$6
,#
,
$#
-$
/+
0
7+
/
0&
-$
/+ $#
-$
2
#
2 $
+4 ,
$+ $
,
%
8"
1$ ,)1
/+
9$$
!"#$
,+$/
/
" $#
-$
-+
:
+")
;4#
-+4
<
"
+ (=)+
>?, !%#
%+4 >% #
@A+
+"$%&"+
B+$#$%&"+
%&$'($) *
,+$/#-+ CA)
)
"
#1%.#
"#
-$ $'
)+,-$
;DCE
F"
$%
'+"$/'"
8
8
8
8
8
8
8
A%+ 1
A
'+"$/'"
8 8 8
8
8 8 8
8 8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
G 8 3H
G 83H
8
G 3H
8
G
3H
G 3H
G 3H
G 3H
G 3H
G 83H
G 83H
G 8
3H
G 3H
G 83H
8
8
8
8
8
8
G 3H
8
8
8
8
G 3H
:+#-
'+"$/+ %+
-
$+$
@+# " F # / -
$I
0
#
8
8
8
8
8
8
8
B+"$/+ %+ F 76$ /
!@: J !%
#+$%+ ,)&#-+
'+"$/+ %
8
8
8
8
8
8
8
(
$-
K
L>
3
3
,@ C
5!M
3
3
D!D
N2M
3
3
N2M 0&
(+//+
3
3
;DCM 5 O < $
3
3
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI