Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 23

Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 23 MINNSTAÐUR Hornafjörður | Starfsmenn Vega- gerðarinnar luku viðgerð á þjóðveg- inum austan Laxár í Lóni í vikunni, nema lagningu bundins slitlags sem verður sett á síðar. Reynir Gunnars- son hjá Vegagerðinni segir að við- gerð á varnargarðinum við Dímu ljúki að mestu í dag og svo verði garð- urinn hækkaður nokkuð. Í öllum vatnsflauminum hefur opn- ast ós, um 25 m breiður, í fjörukamb- inn sunnan við Grænklett og rennur mikið vatn úr Jökulsá þar út. Nýi ós- inn er um 2 km sunnan við Bæjarós. Reynir telur litlar líkur á að vand- ræði hljótist af þessum nýja ós og ekki þurfi að gera ráðstafanir hans vegna. Friðrik Friðriksson í Hraunkoti vonast til að Bæjarós haldi sinni út- rás þar sem hann er núna bæði breið- ur og djúpur. Bæjarós hefur lokast með nokkurra ára millibili og síðast fyrir 2-3 árum og þá opnaði Vega- gerðin honum farveg yfir fjörukamb- inn. Lokist Bæjarós hækkar fljótt í lóninu austantil og þá er hætta á að þjóðvegurinn við Hvalnes geti lokast. Viðgerð lokið á vegi í Lóni Blönduós | Fasteignafélagið Ámundakinn ehf. hefur keypt hús- grunninn að Efstubraut 2 Blöndu- ósi sem var í eigu Húnakaupa og Blönduósbæjar og hefur hafið byggingu nýs húss. Þar stóðu áður pakkhús Húnakaupa, Vilko og Bílaþjónustan, en fyrirtækin urðu eldi að bráð haustið 2004. Á jólaföstu hófust framkvæmdir við byggingu á 1.320 fermetra verksmiðju- og verkstæðishúsnæði sem verður um 8500 rúmmetrar að stærð. Núna er risin á grunninum límtrésburðargrind frá Límtré – Vírneti sem verktaki þessarar framkvæmdar, Trésmiðjan Stíg- andi ehf. á Blönduósi, stóð að. Fleiri „hótelgestir“ Húsinu er skipt upp í þrjár sjálfstæðar brunaeiningar og þeg- ar hefur verið gengið frá leigu þessa húsnæðis til þriggja aðila en þeir eru Vélsmiðja Alla ehf., Létti- tækni ehf. og Blönduósbær og stefnt er að því að þeir geti flutt inn í byrjun júní. Ámundakinn ehf. á einnig húsnæði það sem ullar- þvottastöð Ístex flutti inn í fyrir rúmu ári og staðsett er á sama stað og fyrrgreint hús er að rísa. Jóhannes Torfason framkvæmda- stjóri Ámundakinnar ehf hafði á orði þegar Ullarþvottastöð Ístex flutti inn að Ámundakinn væri að opna fyrirtækjahótel. „Nú styttist í að fleiri hótelgestir bætist í hóp- inn,“ sagði Jóhannes í samtali við Morgunblaðið, ánægður með gang mála. Byggt yfir þrjú fyrir- tæki á gömlum grunni Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Bygging Nýja fyrirtækjahótelið rís hratt á grunni húss sem brann. Eftir Jón Sigurðsson LANDIÐ Húsavík | „Það hefur verið nóg að gera, maður,“ sagði Ragnar Þór Jónsson húsasmiður þegar fréttarit- ari hitti á hann við vinnu sína. Ragn- ar Þór stofnaði fyrirtækið Víkur- smíði ehf. í haust og er eini starfs- maður þess til þessa þótt hann hafi fengið mann sér til aðstoðar við ein- stök verkefni. „Það hafa bara allir iðnaðarmenn hér í bæ nóg að gera, held ég. Það hefur t.d. oft verið dauður tími hjá málurum á þessum árstíma en þeir hafa nóg að gera þessa dagana og þannig er það hjá flestum,“ sagði Ragnar Þór og var bara brattur. Ragnar Þór sagðist ekki sjá ástæðu til annars en bjartsýni í þessum efn- um því ýmis verkefni væru í deigl- unni á Húsavík. Enginn iðnaðarmaður á félags- svæði Þingiðnar er á atvinnuleys- isskrá, að sögn Aðalsteins Árna Baldurssonar, á skrifstofu stétt- arfélaganna í Þingeyjarsýslum. Hann sagði atvinnuástand almennt nokkuð gott í byggingariðnaði á svæðinu. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hefur verið nóg að gera Byggingariðnaður ♦♦♦ Upplýsingar um Ingibjörgu Hauksdóttur og stefnumál hennar eru á heimasíðunni: www.ingibjorgh.is Kosningaskrifstofa er að Hvannalundi 10. Sími: 555 7200. Netfang: ingibjorghauksdottir@internet.is Sterkur listi í vor skapar sigur Nú er komið að okkur Sjálfstæðismönnum í Garðabæ. Við höfum röðun á framboðslistann í hendi okkar við prófkjörið á laugardaginn kemur. Við vitum, að það verður sótt að Sjálfstæðis- flokknum í kosningunum í vor, m.a. með sam- einuðu framboði vinstri flokkanna í bænum. Það skiptir því sköpum, hvernig okkur tekst til í prófkjörinu. Takist okkur að velja heilsteypta sveit á fram- boðslista flokksins, frambjóðendur, sem mynda breiða samfylkingu og eiga traust fólks, þá mætum við sterk til leiks í vor. Tökum öll þátt í prófkjörinu og mótum saman sigurlistann. Ég leita hér með eftir stuðningi þínum í prófkjörinu. Með bestu kveðju, PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐIS- MANNA Í GARÐABÆ 14. janúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.