Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 29

Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 29 DAGLEGT LÍF Í JANÚAR Andlitsböð, litanir, vaxmeðferðir, nudd og öll almenn snyrtiþjónusta Notaðar eru MD-Formulation snyrtivörur sem eru lausar við ilmefni og önnur skaðleg aukaefni. Alfa-Beta er nýjasta MD-Formulation meðferðin en hún vinnur gegn ýmsum húðvandamálum, svo sem öldrun, litablettum og óhreinni húð. Snyrtistofa Díu Bergþórugötu 5 s. 551 8030 – 891 8030 araldri, þá er fyrirtækið að útiloka stóran hóp af best menntaða fólkinu. Í þeim fyrirtækjum þar sem er mikil samkeppni milli starfsmanna, þar er minnst um nýtingu á fæðingarorlofi, bæði hjá körlum og konum. Þetta eru oft fjármálafyrirtæki enda sagði Bjarni Ármannsson á Karlaráð- stefnunni um daginn að fjármálafyr- irtæki væru fjölskyldufjandsamleg.“ Verður að nýta mannauð kvenna Ingólfur segir það hafa komið sér mest á óvart í þessari rannsókn, hvað íslenskir atvinnurekendur virð- ast hafa sætt sig vel við og aðlagast feðraorlofi frá upphafi og tekist á við það á jákvæðan hátt. „Vonandi er þetta vegna þess að atvinnurek- endur hafa áttað sig á að kynja- staðan er gjörbreytt frá því sem var fyrir tuttugu árum. Ef Evrópa ætlar að halda sinni forystu, þá gerist það ekki öðruvísi en að nýta mannauð kvenna ekki síður en karla. Evrópa deyr út ef konur hætta að eiga börn og þess vegna verða samfélög að gera allt til að bæði konur og karlar geti með góðu móti átt börn og lifað fjölskyldulífi en verið á sama tíma þátttakendur á vinnumarkaðinum. Þetta skiptir mjög miklu máli, því það er ekki hægt að halda uppi vel- ferðarkerfi þegar kominn er öfugur aldurspíramídi, þar sem færri og færri eru á vinnumarkaði. Eitt af stærstu áhyggjuefnunum hjá Evr- ópusambandinu núna, er hvernig á að ná upp barneignatíðninni.“ „TÍMINN sem má skjóta upp sko- teldum er útrunninn,“ segir Herdís Storgaard, verkefnisstjóri barna- slysavarna á Lýðheilsustöð, og hún vill minna fólk á að fylgjast með hvort börn þeirra séu með skot- elda heima hjá sér ennþá. „Ég hef svolitlar áhyggjur af því að und- anfarin ár hafa börn og unglingar slasast af völdum skotelda allan janúarmánuð.“ Hún segir að kannski sé það vegna þess að þau hafa safnað birgðum og hafa af einhverjum ástæðum ekki náð að klára að skjóta upp innan tíma- markanna. „Mig langar að benda foreldrum á að vera á varðbergi gagnvart þessu því að þau kannski kveikja í þessu af óvitaskap, inni hjá sér, eða fikta með þetta á þann hátt að slys hljótast af. Það getur þá verið að þau séu að taka þetta í sundur eða útbúa sprengjur o.s.frv.“ Herdís vill líka benda á að skot- eldar eru mjög vandmeðfarnir í geymslu. „Ef börn fela þetta t.d. inni hjá sér, undir rúmi eða nálægt miðstöðvarofnum, ég tala nú ekki um á rökum stað, þá þola skot- eldarnir það ekki, þessa hitabreyt- ingu. Skoteldur sem orðið hefur fyrir raka getur sprungið án þess að borinn sé að honum eldur.“ Herdís segir frá umfjöllun um skotelda sem hún sá í dönskum þætti. „Þar var sýnt hvað einn fjöl- skyldupakki getur gert,“ segir hún, „honum var komið fyrir í skotti á bifreið og síðan var hent eldspýtu ofan í og bíllinn var ónýt- ur á eftir. Þetta sýnir hvað litlir skotelda geta gert mikinn skaða. Þarna sprakk skottið og lokið þeyttist langt í loft upp og bíllinn varð alelda á augabragði.“ Á vef Sorpu, sorpa.is, kemur fram að aldrei skuli setja ósprungna skotelda í sorptunnuna. „Þeim skal skilað á endur- vinnslustöðvar Sorpu og skal af- henda starfsmanni þá,“ segir á vefnum. Ekki er tekið endurvinnslugjald af skoteldum. „Ég vil hvetja fólk til að nýta sér þetta,“ segir Herdís.  SLYSAVARNIR | Aldrei að geyma flugelda Skilist til Sorpu Morgunblaðið/Ásdís Fólk er minnt á að farga ósprungn- um skoteldum. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.