Morgunblaðið - 14.01.2006, Side 30
30 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Eftir að Guðný StellaGuðnadóttir útskrifaðistsem læknir frá HáskólaÍslands síðastliðið vor
pakkaði hún farangri í bakpoka og
fór á flakk um Suður-Ameríku í sex
mánuði. Guðný Stella kom heim
skömmu fyrir jól og hóf þá störf
sem læknir við Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í Reykjanesbæ. Frá Ís-
landi ferðaðist hún ásamt bekkjar-
félögum úr læknanáminu til Kúbu
og eftir að hafa kvatt hópinn hélt
Guðný áfram til Lima, höfuðborgar
Perú, og heimsótti auk þess Bólivíu,
Brasilíu og Argentínu.
„Það var búið að blunda lengi í
mér að fara til Suður-Ameríku eftir
að ein finnsk vinkona mín ferðaðist
þar um í eitt ár fyrir þremur árum
og svo var önnur íslensk vinkona
mín þar á síðasta ári.“
Guðný ferðaðist um helming leið-
arinnar ein þótt það hafi í sjálfu sér
ekki verið markmið í upphafi. Hún
kynntist í ferðinni ísraelskri stelpu
á flugvellinum í La Paz eftir tveggja
mánaða flakk og fylgdust þær að í
tvo og hálfan mánuð. Ísraelska
stúlkan, Maya, starfaði sem sjúkra-
flutningamaður í ísraelska hernum
á Vesturbakkanum. Margir sam-
ferðamenn þeirra glöddust því yfir
að hafa bæði lækni og sjúkraflutn-
ingamann með í för.
„Upphaflega áætlunin var að
ferðast til að byrja með til Norður-
Perú með vini, en hann þurfti óvænt
að hætta við. En þar sem ég var
stödd ein í Lima fékk ég skilaboð
frá sænskri vinkonu, sem var að
heimsækja kærastann sinn í Cuzco.
Ég breytti því snarlega um áætlun
og hélt til Cuzco í Andesfjöllunum í
Suður-Perú.“
Guðný var ekki búin að skipu-
leggja ferðina alla fyrirfram nema
að sumu leyti. Það sem hins vegar
var ákveðið var þriggja vikna
spænskuskóli í Cuzco og búseta þar
hjá fjölskyldu frá Perú. Hún var
líka harðákveðin í að ganga til
Macchu Pichu, sem eru frægustu
minjarnar um Inkana, fara í Ama-
zon-skóginn og heimsækja Iguazu-
fossana við landamæri Paragvæ,
Brasilíu og Argentínu. Öll þessi tak-
mörk náðust í ferðinni en hún upp-
lifði líka margt annað óvænt og
skemmtilegt.
Passaði illa í rútur innfæddra
„Fyrstu tíu dögunum varði ég
með sænsku vinkonu minni og kær-
astanum hennar, sem svo heppilega
vildi til að starfaði sem leið-
sögumaður á Inkaslóðum. Við ferð-
uðumst í anda heimamanna, sem
þýðir óloftkældar litlar rútur, sem
meðalstór evrópsk kona passar ekki
í, og leigubíla, sem voru pakkaðir af
fólki. Í eitt skiptið voru farþegarnir
ellefu talsins, þar af ein hæna. Gest-
risni er fólkinu í Perú í blóð borin og
arfleifð frá tímum Inkanna. Í þorpi
einu í Andesfjöllunum var okkur til
dæmis öllum boðið í heimsókn til fá-
tækrar konu, sem vildi endilega
gefa okkur af því litla sem hún átti
matarkyns, sem var kartöflur.“
Eftir tíu daga í Cuzco kvaddi
Guðný vinina og hélt enn sunnar í
Perú til borgarinnar Arequipa, sem
nefnd er hin hvíta borg vegna hvítra
steina, sem notaðir eru í bygging-
arnar. „Þarna fór ég í nokkurra
daga göngu um Colca-dalinn og
dreif mig svo beint í fjallgöngu upp í
5.825 metra hæð upp á topp eld-
fjallsins El Misty. Við löbbuðum
upp 2.200 metra á tveimur dögum
sem kom okkur nokkrum í koll þar
sem við fengum snert af há-
fjallaveiki og einn í hópnum veiktist
töluvert.“
Þriggja vikna spænskunám
Aftur hélt Guðný til Cuzco í
spænskunámið og síðan hélt hún í
fimm daga göngu til Macchu Pichu,
sem hún segir að sé sá magnaðasti
staður, sem hún hafi augum litið.
„Borgin er gríðarlega vel smíðuð,
falleg og óskemmd því Spánverj-
arnir fundu hana aldrei. Hún er
uppi á fjalli og umkringd risastórum
kynngimögnuðum fjöllum. Borgin
er vel skipulögð með tilliti til sól-
arupprásar og á ákveðnum stöðum
er hægt að ná fram bergmáli um
fjallasalina.“
Í stað þess að fara til Norður-
Brasilíu og í Amazon-frumskóginn
þar ákvað Guðný að fara í gegnum
Bólivíu.
„Með stoppum fór ég til La Paz í
Bólivíu og þaðan flaug ég til frum-
skógarins þar sem vegurinn land-
leiðina í frumskóginn gengur undir
nafninu Dauðavegurinn. Eftir tíu
daga dvöl í skóginum ásamt ísr-
aelskri vinkonu var ferðinni heitið
aftur til La Paz, svo í jeppaferð um
hálendi Bólivíu og Salteyðimörkina.
Frá Santa Cruz í Bólivíu ferðuð-
umst við vinkonurnar í 24 tíma með
Dauðalestinni svokölluðu að landa-
mærum Brasilíu, en lestin stendur
undir nafni sem óþægilegasti ferða-
máti Suður-Ameríku.
Síðan tók við annað 24 tíma rútu-
ferðalag til Sao Paulo í Brasilíu til
að heimsækja brasilíska vinkonu.
Sao Paulo telst vera ein hættuleg-
asta borg heims. Við lentum þó ekki
í vandræðum enda með heimafólki.
Ríó var næsti viðkomustaður. Þar
vorum við í rigningu í viku og vor-
um rændar í þokkabót og ákváðum
þá að taka flugið til höfuðborg-
arinnar Brasilíu.“
„Við flugum næst til sólarríkisins
Bahia í Norðaustur-Brasilíu og
dvöldum í Salvador og nágrenni í
tæpan mánuð. Afrísk áhrif eru áber-
andi í Norður-Brasilíu í tónlist,
dansi og menningu en evrópsk áhrif
eru ríkjandi í suðrinu. Dans og tón-
list eru innbyggð í menningu Bras-
ilíubúa og hafa þeir sérstakt dálæti
á grímuböllum. Ég lenti á þremur
slíkum uppákomum og skemmti
mér konunglega.“
Leiðir Guðnýjar og Mayu skildi í
Salvador. Maya varð eftir og Guðný
flaug til Suður-Brasilíu. „Þaðan fór
ég til Iguazu-fossanna en tíminn var
farinn að hlaupa frá mér svo að við
tók hraðara ferðalag. Ég fór til
Mendoza í Argentínu og þaðan til
Bariloche í S-Argentínu sem stund-
um er kölluð Litla-Sviss vegna um-
hverfisins. Þaðan lá leið til Buenos
Aires, höfuðborgar Argentínu. Það
var lokaáfangastaður minn í S-
Ameríku. Ég dvaldi þar hjá argent-
ískri vinkonu og hélt m.a. upp á 26
ára afmælið í 30 stiga hita. Borgin
er gríðarlega falleg og vel skipulögð
og minnir einna helst á París fyrir
utan pálmatrén. Tangóinn er auðvit-
að aðalsmerki Argentínubúa, en
matmálstímar eru þeim líka mjög
mikilvægir enda eyða þeir mörgum
klukkutímum á dag í að matast.“
Frá Buenos Aires flaug Guðný
heim og beint í vinnuna.
„Í mínum huga stendur upp úr
gestrisni, hjálpsemi og lífsgleði Suð-
ur-Ameríkubúa. Andstæðurnar eru
þó gríðarlegar milli ríkra og fá-
tækra og þegar ferðast er um þetta
svæði þarf að gera varúðarráðstaf-
anir, sem felast til dæmis í að eiga
falin afrit af öllum mikilvægum
skjölum, falið aukakreditkort og
peninga, rafrænt afrit af vegabréfi,
lás á bakpokann og almenna skyn-
semi.“
FERÐALÖG | Guðný Stella Guðnadóttir fór á sex mánaða flakk um Suður-Ameríku
Gestrisni, hjálpsemi og lífsgleði
Ferðalangarnir Guðný og Maya frá Ísrael með borgina Rio de Janeiro í baksýn.
Húsmóðir í Perú með barn sitt.
Guðný segir að lífsgleði einkenni íbúa Suður-Ameríku og hér er hún með börnum frá Perú.
Ævintýraþráin dró
Guðnýju Stellu Guðna-
dóttur alla leið til Suður-
Ameríku eftir lækna-
nám. Hún sagði Jóhönnu
Ingvarsdóttur að hún
hefði ákveðið að fylgja
draumi sínum eftir áður
en hún gerðist læknir á
Suðurnesjunum.
join@mbl.is
Frá og með mars nk.munu tvö flugfélögfljúga á milli Keflavík-
ur og Óslóar, þ.e. Icelandair
og SAS Braathens. Þannig fá
Íslendingar fleiri tækifæri til
að komast ódýrt til Norður-
landanna og jafnvel áfram
þaðan með lággjaldaflug-
félögum eða leiguflugi ferða-
skrifstofa suður eða austur á
bóginn.
Austur-Evrópa vinsæl
Á vef Aftenposten er ný-
lega greint frá því að Austur-
Evrópa verði að öllum lík-
indum vinsæll áfangastaður
ferðamanna árið 2006. Króat-
ía, Pólland, Eistland og Lett-
land eru nefnd í þessu sam-
hengi en til þessara landa
verður m.a. hægt að komast
ódýrt frá Ósló. Þetta geta
hvort tveggja verið borg-
arferðir til Prag, Varsjár,
Bratislava, Tallinn eða Riga
eða strandferðir t.d. til Búlg-
aríu, Rúmeníu eða Króatíu,
auk Grikklands og Tyrklands.
Ef fólk er tilbúið að eyða
klukkustundum á Netinu til
að finna út úr því hvaða flug-
félag flýgur hvaðan og hvert,
er hægt að finna mjög ódýrar
ferðir. Einn gagnlegur vefur í
því skyni er www.whichbud-
get.com. Áfangastaðirnir í
austri geta verið margir og
mismunandi. Einn af þeim er
t.d. Simferopol á Krímskaga.
Eistneska flugfélagið Estoni-
an flýgur t.d. þangað um Tall-
inn. Beint frá Ósló flýgur
flugfélagið Norwegian t.d. til
Madrídar, Düsseldorf, Rijeka
í Króatíu og Varna í Búlgaríu.
Auk flugleiðar til Íslands,
opnar SAS Braathens einnig
flugleiðir til Vínarborgar,
Aþenu, Krítar, Napólí og
Madrídar. Búist er við að
verð á millilandaflugmiðum
frá Noregi lækki á þessu ári
en innanlandsflug hækki í
verði.
Ýmsir möguleikar eru á fram-
haldsflugi frá Ósló en það er
líka hægt að eyða tíma í að
skoða Ósló og njóta þess sem
borgin hefur upp á að bjóða.
www.braathens.no
www.norwegian.no
www.estonianair.com
www.inyourpocket.com
www.whichbudget.com
NOREGUR
Ódýr
fargjöld
frá Ósló?