Morgunblaðið - 14.01.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 33
MENNING
Landnámsmennirnir Ingólfur Arnarson
og Hallveig Fróðadóttir voru öndvegisfólk og sannir
frumkvöðlar. Þau reistu bæ sinn í fallegri vík sem
þau nefndu Reykjavík.
Reykjavík í mótun
Nú er komið að þér. Þú getur átt beinan þátt í mótun
Reykjavíkur. Sendu okkur álit þitt, ábendingar og hugmyndir,
t.d. um notkun útivistarsvæða, samgöngur, náttúruvernd,
landnýtingu, loftgæði, lýðheilsu, ásýnd borgarinnar,
umhverfisfræðslu eða hverfið þitt, á vefnum
www.hallveigarbrunnur.is eða í pósti.
Utanáskriftin er Hallveigarbrunnur, Umhverfissvið
Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, 101 Reykjavík.
Þú getur einnig lesið hugmyndir inn á talhólf,
gjaldfrjálst símanúmer er 800 1110.
Tökum þátt í mótun Reykjavíkur
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
Hverju viltu breyta? Hverju viltu halda?
Ertu með góða hugmynd?
who: Professional artists from music, literature, visual and performing arts
Where: Kirkenes, the Barents Region, Norway
When: June 17 – July 2, 2006
Deadline for application: February 6, 2006
Artistic Director Ong Keng Sen from TheatreWorks in Singapore
Brought to you by 5 Nordic Art Institutions
NIFCA, Nordbok, Nomus, NordScen and Pikene på Broen
www.connectionbarents.org
JOIN The Artistic Journey of 2006
Connection
barents a cross art collaborationwith everyday life
SÝNINGUM á Manntafli, leikgerð
Þórs Tulinius á smásögu Stefans
Zweig, fer nú fækkandi, en í verkinu
er tekist á við hið eilífa tafl mann-
skepnunnar um mennskuna. Leik-
stjóri að þessu verki, sem er ein-
leikur, er Hilmir Snær Guðnason, en
Þór sér sjálfur um leikinn.
„Þetta er ekki sýning um skák, þó
taflmennska komi við sögu, og engin
skákkunnátta er nauðsynleg til að
njóta leikritsins. Sýningin fjallar um
sígilda hluti, sem fólk er stöðugt að
upplifa – einnig í samtímanum –
ákveðna einangrun, og það tafl sem
við erum öll að tefla til þess að við-
halda mennsku okkar í siðuðu sam-
félagi, eins og kannski er gefið til
kynna í titlinum,“ segir Þór í samtali
við Morgunblaðið.
Tekst það sem Zweig áleit að
heiminum hefði ekki tekist
Verkið segir sögu manns sem
þurft hefur að sæta einangrun í
hörmungum seinni heimsstyrjaldar.
Hann viðhélt þar geðheilsu sinni
með því að tefla skák við sjálfan sig í
huganum. Aðstæðurnar sem skap-
aðar eru í verkinu eru mjög spennu-
þrungnar og snúast um það hvort
honum takist að bjarga því sem eftir
er af sinni eigin mennsku; en auðvit-
að ekki síður mennsku heimsins.
Skírskotunin til samtímans er ekki
síst þar að mati Þórs, því segja má
að aðalpersónunni takist í það sem
Zweig áleit að heiminum hefði ekki
tekist.
Hetjusaga þess er berst
fyrir tilvist siðferðisins
„Við erum í svipuðum aðstæðum
víða í dag. Þarna er maður sem er að
berjast fyrir þessu grundvallar-
atriði; að halda reisn og siðfágun við
þrúgandi aðstæður og sagan er að
því leytinu til hetjusaga. Sagan er
svo meitluð og vel skrifuð að fólk sit-
ur á brúninni á sætunum þar til
þessi tveggja tíma sýning er búin.
Kannski vegna þess að sagan vísar
til okkar allra með einhverjum
hætti.“
Þór segir hetjusöguna sem í
Manntafli býr ekki síst snúast um
það hvernig söguhetjunni tekst að
lifa með umhverfi sínu á þann veg að
þeim sem hann þarf og vill hlífa er að
lokum borgið. „Hann heldur vernd-
arhendi yfir sínum með því að berj-
ast fyrir tilvist siðferðisins, fyrir
ábyrgðartilfinningu gagnvart sjálf-
um sér og öðrum. Þannig verður
hann málsvari mennskunnar eins og
hún birtist – eða ætti að birtast – í
siðmenningunni. Sú hetjudáð gerir
hann að marbrotnum og áhugaverð-
um persónuleika.“
Leiklist | Sýningum á Manntafli fer fækkandi
Þór Tulinius í hlutverki sínu í Manntafli. Hann segir verkið mjög spennuþrungið, álítur það „magnað í því hvernig
höfundinum tekst að rígnegla mann yfir þessari frásögn af einum manni“.
Teflt um
mennsku
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni