Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 37 UMRÆÐAN SÚ ÁKVÖRÐUN mín að bjóða mig fram í 2. sæti á framboðslista sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi til bæjarstjórnar fyrir nk. kjör- tímabil er ekki alveg ný af nálinni. Ég hef um tíma íhugað framboð vandlega og tók ákvörðun 12. des- ember sl. að nú væri rétti tíminn til að láta slag standa. Opinbera til- kynningu birti ég svo í Morg- unblaðinu 14. des. 2005. Ákvörðunina tók ég fyrir sjálfan mig studdur af fjölskyldu og vinum. Ég er ekki í kosningabandalagi með einum né neinum heldur geri þetta á eigin forsendum sem ég tel heið- arlegast og eðlilegast. Viðbrögðin hafa verið ótrúleg og er ég afar þakklátur og stoltur fyrir þau sterku og jákvæðu viðbrögð sem ég hef fengið. Þau sanna fyrir mér að ákvörðun mín var rétt. Af hverju býð ég mig fram? Fyrst skal telja löngun mína til þessara starfa, mér þykir vænt um Seltjarnarnesið og vil hag þess og bæjarbúa sem mestan. Ég tel að ég hafi mikið fram að færa bæði í reynslu, þekkingu og viðhorfi sem getur nýst bæjarfélaginu á jákvæð- an og uppbyggilegan hátt. Ég hef nánast alla tíð starfað við sölu og þjónustu með einum eða öðr- um hætti. Í þeim störfum hef ég ávallt fylgt þeim lögmálum að liðs- andinn sé sterkur og maður þurfi að hafa gaman af sínum viðfangsefnum til að hámarksárangur náist. Óánægja er aldrei vænleg til árang- urs. Persónulega finnst mér ekki vera nægjanleg liðsheild í núverandi meirihluta og tel mig þar geta komið inn með ferska vinda, tilbúinn að vinna með öllum og mynda sterkt lið sem nær sameiginlegum mark- miðum. Ég sat í æskulýðs- og íþróttaráði sem aðalfulltrúi í hálft annað kjör- tímabil á síðasta kjörtímabili. Ég tók hins vegar þá meðvituðu ákvörðun að gefa ekki kost á mér sem aðal- fulltrúi á því kjörtímabili sem nú fer að ljúka en bauð mig fram sem vara- maður og hef haldið áfram að fylgj- ast með æskulýðs- og íþróttaráði. Nú háttar hins vegar þannig til að ég er meir en tilbúinn til að koma inn í þetta umhverfi og vil einhenda mér í bæjarmálin af fullum krafti. Mér hefur fundist vanta töluvert upp á að hinn almenni borgari á Nesinu skilji þær ákvarðanir sem koma frá bæjarstjórn. Þar þarf að vinna betur að kynningarmálum ásamt því að vanda betur undirbún- ing stærri ákvarðana sem geta ork- að tvímælis og farið skakkt í fólk. Nefni ég þar til dæmis undirbúning í tengslum við fyrirhugaða heilsurækt í íþróttamiðstöðinni. Tilgangur Það sem ég tel vera línuna í mín- um málflutningi er að við sjálfstæð- ismenn á Nesinu verðum að vinna betur saman sem ein heild. Vissu- lega hafa menn ólíkar skoðanir sem ber að virða – en í liði eins og því liði sem ég vil eiga aðild að er markviss samvinna og sameiginleg ákvarð- anataka liðsins lykilatriði. Það er enginn einn einstaklingur stærri en liðið sem hann er í og í lýðræðislegu liði eru málefni krufin til mergjar. Pólitík má aldrei valda heift eða erj- um sem ná út fyrir liðið. Mín skoðun er sú að pólitík og persónulegt líf einstaklingsins geti alveg farið sam- an en það markast þó af þroska hvers og eins. Ég held að prófkjör eins og er fyr- irhugað hjá okkur á Nesinu eigi að þjappa okkur sjálf- stæðimönnum saman fremur en hitt. Við getum ekki sætt okk- ur við neitt miðjumoð – við erum í þessu til að ná hámarks- árangri fyrir bæj- arbúa og halda áfram að gera bæinn okkar enn fjölskylduvænni og betri. Markmið Markmið mitt með framboði mínu er að sjálfsögðu að láta gott af mér leiða, eins og allir reyna. Ég vona svo sannarlega að ég komist í liðið og mun vinna af heil- indum, festu og sanngirni og ekki síst mun ég vinna með bjartsýni að leiðarljósi. Ég tel það vera skyldu okkar sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi að mynda samhent og trú- verðugt lið. Mér finnst vanta tals- vert upp á léttleikann því oft á tíðum virðast áhugaverð mál þurr og óspennandi. Þarna mun ég koma að málum og reyna eftir megni að gera hlutina meira að- laðandi til þess að fá fleiri til að láta sig málin varða. Þeir sem mig þekkja vita að ég hef óbilandi bjart viðhorf til lífsins og er ævinlega létt- ur í viðmóti. Það mun ég hiklaust nota til að innleiða í bæjarmála- pólitíkina því ég hef þá skoðun að það vanti sem stendur. Allt snýst þetta um sölu og þjón- ustu og hvað bæjarfélagið getur gert betur fyrir þegnana. Hlusta þarf á mismunandi skoðanir bæjarbúa, þarfagreina þar sem við á og taka tillit til þeirra eins og hægt er. Að mínu mati er mjög mikilvægt að það sé bæði aðlaðandi að búa og vinna á Seltjarnarnesi. Mitt mark- mið er því að stuðla að því að laða áfram til okkar hæfasta starfsfólkið í vinnu hjá Seltjarnarnesbæ því það skilar sér án efa í betri þjónustu til handa bæjarbúum og alveg örugg- lega ánægðari íbúum Seltjarn- arness. Liðsheild til árangurs Eftir Þór Sigurgeirsson Þór Sigurgeirsson ’Ég tel það vera skylduokkar sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi að mynda samhent og trú- verðugt lið.‘ Höfundur sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi. Prófkjör Seltjarnarnes TENGLAR ............................................. www.thors.is Fréttasíminn 904 1100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.